84 prósent fylgjandi því að framlínufólk fái greitt aukalega vegna COVID-19

Stuðn­ingur við það að fram­línu­starfs­fólk fái greitt auka­lega fyrir það álag sem fylgt hefur kór­ónu­veiru­far­aldr­inum er almennur á Íslandi. Stuðn­ing­ur­inn mælist minnstur hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks en þar mælist hann samt afger­andi.

Alls segj­ast 84 pró­sent lands­manna vera sam­mála því að hið opin­bera, ríki og sveit­ar­fé­lög, greiði fram­línu­starfs­fólki auka­lega fyrir það álag sem fylgt hefur COVID-19 far­aldr­inum. Með fram­línu­starfs­fólki er átt við t.d. starfs­fólki Almanna­varna, Lands­spít­al­ans og heilsu­gæsl­unnar.

Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Prósent gerði fyrir BSRB. Einungis sex pró­sent svar­enda var ósam­mála því að fram­línu­starfs­fólk ætti að fá álags­greiðslur.

Þegar afstaða fólks til greiðsln­anna er skoðuð eftir því hvaða flokk það ætlar að kjósa kemur í ljós að mik­ill meiri­hluti allra flokka vill álags­greiðslur til fram­línu­starfs­fólks. Minnstur er stuðn­ingur við þær hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins (70 pró­sent styðja álags­greiðslur) og hjá kjós­endum Mið­flokks­ins (75 pró­sent styðja álags­greiðslur). Kjós­endur Sam­fylk­ingar (96 pró­sent), Sós­í­alista­flokks Íslands (95 pró­sent), Vinstri grænna (94 pró­sent) og Pírata (94 pró­sent) var lík­leg­ast til að styðja greiðsl­urnar.

Um var að ræða net­könnun sem gerð var dag­anna 17. til 23. ágúst 202. Úrtakið var 2.600 ein­stak­lingar 18 ára og eldri og svar­endur voru 1.341. Svar­hlut­fallið var því 52 pró­sent.

[adspot]Konur styðja álags­greiðslur til fram­línu­starfs­fólks frekar en karlar og mark­tækt fleiri íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu styðja þær en þeir sem búa á lands­byggð­inni. Þegar afstaðan er skoðuð eftir tekjum kemur í ljós að þeir sem eru í hæsta tekju­flokknum sem mældur var, og eru með 800 þús­und krónur eða meira í tekjur á mán­uði, vilja síður greiða auka­lega fyrir álag sem fram­línu­starfs­fólk varð fyrir vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Sonja Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, segir að starfs­fólk almanna­þjón­ust­unnar hafi verið undir gríð­ar­legu álagi síð­ast­liðna 18 mán­uði. „Við getum ekki gert þá kröfu á þennan stóra hóp fólks að þau leggi enda­laust á sig fyrir okkur hin án þess að fá greiðslur í sam­ræmi við þetta mikla álag. Það er virki­lega ánægju­legt að sjá íslensku þjóð­ina þjappa sér með þessum hætti að baki þeim sem staðið hafa vakt­ina í heims­far­aldr­inum. Þjóðin er með þessu að segja að þakk­lætið eitt og sér dugi ekki til heldur þurfi að umb­una fram­línu­fólk­inu okkar með sér­stökum álags­greiðslum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár