Biden búinn að fá nóg: Óbólusettir „valda miklum skaða“

Hann reyndi að höfða til þeirra með hvatn­ingu. Hann reyndi að segja þeim hversu „sam­staðan“ væri mik­il­væg. En allt kom fyrir ekki. Þess vegna byrsti Joe Biden sig í vik­unni við óbólu­setta landa sína sem yfir­fylla sjúkra­húsin.

Joe Biden á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í vikunni.
Joe Biden á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu í vik­unni. Mynd: EPA

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti setti háleit mark­mið fyrir þjóð sína í bólu­setn­ingum gegn COVID-19: Að minnsta kosti 75 pró­sent full­orð­inna áttu að vera komin með eina eða tvær sprautur í sumar. Hann hafði allt til alls til verks­ins; nóg af bólu­efni, góða inn­viði í heil­brigð­is­þjón­ust­unni. Dreifing efn­anna var heldur ekki stórt vanda­mál. En þegar bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið nálg­að­ist 40 pró­sent fór skyndi­lega eitt­hvað að breyt­ast. Heil­brigð­is­starfs­fólk beið til­búið með skammt­ana. En færri og færri mættu til að fá þá. Andstaða við bólu­setn­ingar, sem hefur almennt verið vanda­mál í Banda­ríkj­unum í áraraðir, kom ber­sýni­lega í ljós. Henda hefur þurft að minnsta kosti 15 millj­ónum skammta í Banda­ríkj­unum frá því í mars af þessum sökum.

[adspot]

Og þessi svo­kall­aða bólu­setn­ing­ar­tregða hefur orðið til þess að í dag eru aðeins 53 pró­sent Banda­ríkja­manna full­bólu­settir. Þeim býðst nú að fá örv­un­ar­skammta – þótt það útspil Bidens sé þvert á ráð­legg­ingar sér­fræð­inga. Stóra vanda­málið sé ekki dvín­andi virkni bólu­efn­anna sem kalli á þriðja skammt­inn heldur sú ein­falda stað­reynd að stór hluti þjóð­ar­innar hefur ekki í hyggju að fá einn ein­asta.

Nú hefur Biden loks misst þol­in­mæð­ina. Eftir að hafa hvatt fólk með var­færnum hætti til að fara í bólu­setn­ingu, notað orð á borð við „sam­stöðu“ til að höfða til þess, er komið allt annað hljóð í strokk­inn. Og skila­boðin: Ef þið eruð óbólu­sett þá þurfið þið að borga því þið eruð að ógna heilsu þjóð­ar­innar.

Biden til­kynnti á fimmtu­dag að héðan í frá yrði ekki farið sér­stak­lega mjúkum höndum um þá sem vilja ekki láta bólu­setja sig. Allir þeir sem störf­uðu hjá hinu opin­bera og einka­fyr­ir­tækjum með fleiri en 100 starfs­menn skulu láta bólu­setja sig. Annars eiga þeir yfir höfði sér fjár­sektir. Ákvörð­unin mun hafa áhrif á meiri­hluta vinnu­mark­að­ar­ins.

Biden beindi orðum sínum til þeirra 80 millj­óna full­orð­inna Banda­ríkja­manna sem enn hafa ekki þegið bólu­setn­ingu. „Þessi 25 pró­sent gætu valdið miklum skaða og þau eru þegar farin að gera það,“ sagði Biden. „Óbólu­settir yfir­fylla sjúkra­húsin okkar. Bráða­deildum hefur þurft að breyta í gjör­gæslur svo fólk sem glímir við aðra alvar­lega sjúk­dóma fær þar ekki pláss.“

Hann var harð­orður í garð fólks sem berst gegn grímunotkun og sagði því að „sýna virð­ingu“.

[adspot]

Biden hefur hingað til ekki viljað styggja þann stóra hóp sem vill ekki bólu­setn­ingu. Hann hefur frekar viljað reyna hina leið­ina – hvetja og styðja. En þetta hefur ekk­ert gagn­ast honum þegar kemur að stuðn­ingi við hann sjálfan. Demókratar eru upp til hópa búnir að láta bólu­setja sig. Bólu­setn­ing­ar­her­ferð Bidens naut gríð­ar­legs fylgis meðal þeirra. En fylgi þeirra við Biden sjálfan hefur dalað, sam­hliða því að far­ald­ur­inn hefur dreg­ist á lang­inn, ekki síst vegna þess að alltof margir eru enn óbólu­settir.

Í upphafi andvígur skyldubólusetningum

Í des­em­ber, áður en her­ferðin hófst, sagð­ist Biden vera and­vígur því að skylda fólk í bólu­setn­ingu. Hann hefur þó síð­ustu mán­uði tekin nokkur skref frá þeirri stefnu sinni og það stærsta var stigið í vik­unni.

Ýmis mis­tök hafa svo verið gerð í við­brögðum við far­sótt­inni. Grímu­skylda var t.d. afnumin í maí en fólk áfram hvatt til að bera þær, ekki síst hinir óbólu­settu. En það var einmitt sá hópur sem tók grím­urnar fyrst niður og neit­aði að setja þær upp aftur.

Svo kom sumar. Og svo kom delta.

Þetta sumar delta-afbrigð­is­ins kost­aði fjöl­mörg manns­líf. Í vor lét­ust um 300 Banda­ríkja­menn dag­lega vegna COVID-19. Í byrjun sept­em­ber var fjöld­inn í kringum 1.500 manns á dag.

Reynið bara

Biden og hans stjórn vildi fara var­lega í að skylda fólk í bólu­setn­ingu. Setja málin upp þannig að jú, þú hefur enn val um bólu­setn­ingu, en ef þú ert ekki bólu­settur, getur þú ekki unnið hjá hinu opin­bera. Því þá setur þú aðra í hættu. Lífs­hættu mögu­lega. Þetta hefur vissu­lega ekki farið vel ofan í alla. Og lík­legt að ein­hverjir reyni að fara með málið fyrir dóm­stóla. Fram­kvæmda­stjórn Repúblikana­flokks­ins er þegar að velta slíkri máls­sókn fyrir sér. „Reynið það bara,“ sagði Biden.

Nýjar kann­anir hafa líka sýnt að margt óbólu­sett fólk (40 pró­sent) myndi lík­lega frekar segja upp starfi en að láta undan kröfu um bólu­setn­ingu. Um 35 pró­sent svar­enda sögðu að þeir myndu reyna að fá und­an­þágu frá bólu­setn­ingu af ýmist heilsu­fars- eða trúar­á­stæðum. Aðeins 16 pró­sent sögð­ust ætla að fara í bólu­setn­ingu ef krafa yrði gerð um slíkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár