Veiruafbrigðið „deltakron“ var aldrei til

Fyrir hálfum mán­uðum breidd­ust fréttir af nýju ofuraf­brigði kór­ónu­veirunnar, deltakron, eins og eldur í sinu um heim­inn. En vís­inda­menn segja nú að afbrigðið hafi aldrei verið til.

Raðgreiningar eru mikilvægt tæki til að fylgjast með þróun kórónuveirunnar.
Rað­grein­ingar eru mik­il­vægt tæki til að fylgj­ast með þróun kór­ónu­veirunnar. Mynd: EPA

Þær fréttir bár­ust frá Kýpur-háskóla þann 7. jan­úar að vís­inda­menn við skól­ann hefðu rað­greint nokkrar kór­ónu­veirur og að í ljós hafi komið að í gena­mengi þeirra hefðu fund­ist eig­in­leikar bæði delta og omikron-afbrigð­is­ins.

Veiru­fræð­ing­ur­inn sem fór fyrir hópnum, Leondios Kostrikis, flutti þessi tíð­indi í sjón­varpi á Kýpur. Afbrigðið sem vís­inda­menn­irnir töldu sig hafa greint var þegar í stað kallað deltakron og höfðu upp­lýs­ingar um upp­götv­un­ina á þessum tíma­punkti verið færðar inn í hinn opna gagna­grunn GISAID. Frétta­stofa Bloomberg fékk veður af þessu og birti fyrstu frétt um málið innan við sól­ar­hring eftir að Kýp­verjar höfðu fengið að heyra af hinu nýja – og meinta – kór­ónu­veiru­af­brigði.

[adspot]

Það er ekk­ert skrítið að fréttin hafi farið á flug í fjöl­miðlum um allan heim. Ómíkron-afbrigðið, sem vís­inda­menn í Botsvana og Suður-Afríku höfðu fyrstir allra greint í nóv­em­ber, hafði valdið ótta enda mun meira smit­andi en delta-afbrigðið sem á undan hafði komið. Delta er hins vegar ekki eins smit­andi, þótt smit­andi sé, en veldur þeim mun alvar­legri veik­indum. Að heyra svo af ofur-afbrigði með eig­in­leika beggja þess­ara veira, kall­aði fram hroll hjá mörgum.

Kýp­versku vís­inda­menn­irnir höfðu aðeins rað­greint 52 veiru­sýni sem höfðu eig­in­leika beggja afbrigð­anna. Vís­inda­menn ann­ars staðar í heim­inum bentu þegar í stað á að svo fá sýni gætu ekki verið grund­völlur til að slá nokkru föstu. Nokkrir komu fram með þá kenn­ingu að mun lík­legra væri að sýnin á rann­sókn­ar­stofu Kýpur-háskóla hefðu spillst.

„Það er ekk­ert til sem heitir deltakron,“ skrif­aði Krutika Kuppalli, sem er í tækni­teymi Alþjóða heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, á Twitter. „Ómíkron og delta hafa EKKI myndað ofur-afbrigði.“ Yfirmenn WHO hafa einnig sagt hið sama en bent á að fólk geti verið smitað af delta- og ómíkron-afbrigð­unum sam­tímis.

Þá bendir Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur á það í nýju svari á Vís­inda­vefnum að það sé fjar­lægur mögu­leiki, en raun­veru­legur þó, að tvö eða fleiri afbrigði myndi nýtt blend­ingsaf­brigði, með end­ur­röðun erfða­efnis.

Vís­inda­menn um allan heim hafa verið hvattir til að skrá upp­lýs­ingar um rað­grein­ingar sínar í GISAID-gagna­grunn­inn. Þannig hefur tek­ist að fylgj­ast vel með þróun veirunnar og stökk­breyt­ingum hennar. En dæmið frá Kýpur-háskóla þykir að margra mati sýna að fara verði var­lega í allar yfir­lýs­ingar og að grand­skoða verði mál ofan í kjöl­inn, að minnsta kosti áður en greint er frá þeim opin­ber­lega. Af nógu mörgum slæmum fréttum hefur verið að taka í far­aldr­inum þó að rangar upp­lýs­ingar séu ekki einnig settar í dreif­ingu.

Kostrikis hefur svarað þeirri gagn­rýni með því að fjöl­miðlar hafi mistúlkað orð hans. Hann hafi aldrei haldið því fram að nýtt blend­ingsaf­brigði ómíkron og delta væri orðið til. Um kenn­ingu hefði verið að ræða. Þremur sól­ar­hringum eftir að hafa sett nið­ur­stöður rað­grein­inga sinna inn í gagna­grunn­inn fjar­lægði hann þær og sagði að frek­ari rann­sókna á þeim væri þörf.

Mistök fyrirsjáanleg

Tals­maður GISAID segir að frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafi yfir 7 milljón gena­mengi kór­ónu­veira verið sett inn í gagna­grunn­inn og að ein­staka mis­tök við rað­grein­ingar ættu því ekki að koma mjög á óvart.

Rað­grein­ingar á „deltakron“ voru gerðar á sýnum sem tekin voru á Kýpur í des­em­ber. Kostrikis segir í sam­tali við vís­inda­tíma­ritið Nature að kenn­ing teym­is­ins hefði verið sú að delta-afbrigðið hefði tekið stökk­breyt­ingar í brodd­prótein­inu sem svip­aði til eig­in­leika ómíkron – eig­in­leika sem gera það afbrigði mun meira smit­andi. Sér­fræð­ingar ann­ars staðar í heim­inum rýndu í gögnin frá Kýpur og töldu mun lík­legra að um mann­leg mis­tök hefði verið að ræða. Sýnin hefðu spillst á rann­sókn­ar­stof­unni. Blandast saman.

Slíkt er ekki óal­gengt segja við­mæl­endur Nature og því er svo mik­il­vægt að fara var­lega í allar álykt­anir til að byrja með.

[adspot]

Kostrikis efast hins vegar sjálfur um að kross­mengun hafi átt sér stað á rann­sókn­ar­stof­unni en telur engu að síður þörf á að rann­saka alla mögu­leika. Kollegar hans hafa svo ein­hverjir bætt við að ef engin mis­tök hafi verið gerð á rann­sókn­ar­stof­unni og rað­grein­ingar veiru­sýn­anna þar með réttar, breyti það ekki því að stökk­breyt­ing­arnar sem Kýp­verjarnir fundu eru alls ekki aðeins bundnar við ómíkron heldur finn­ast í ýmsum öðrum afbrigðum veirunnar. Deltakron sé því rang­nefni.

Þótt Kostrikis hafi verið gagn­rýndur fyrir að oftúlka nið­ur­stöð­urnar hefur honum verið hrósað fyrir að skrá rað­grein­ing­arnar inn í gagna­bank­ann. Vís­inda­menn mega ekki hika við slíkt, segja við­mæl­endur Nature, en þeir verða hins vegar að tala mjög var­lega. „Allt sem við segjum getur valdið því að landa­mærum er lokað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár