Afléttingar leiði til frjálsræðis

Sótt­varna­læknir vonar að aflétt­inga­á­ætlun stjórn­valda leiði til meira frjáls­ræðis. „Þetta er stefnu­breyt­ing,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Ef fjöldi dag­legra smita verður áfram svip­aður ætti hjarð­ó­næmi að nást innan tveggja mán­aða.

Þríeykið var á sínum stað á 196. upplýsingafundi almannavarna í dag. Á morgun verða tvö ár síðan óvissustigi vegna faraldursins var fyrst lýst yfir.
Þríeykið var á sínum stað á 196. upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Á morgun verða tvö ár síðan óvissu­stigi vegna far­ald­urs­ins var fyrst lýst yfir. Mynd: Almannavarnir

1.597 smit greindust í gær, 1.539 inn­an­lands og 58 á landa­mær­unum. 11.744 eru í ein­angrun með COVID-19. 37 eru á sjúkra­húsi. 25 eru með virkt smit en hinir með eft­ir­köst. Þrír eru á gjör­gæslu, allir í önd­un­ar­vél. Einn er á sjúkra­hús­inu á Akureyri vegna COVID-19 og er staðan við­ráð­an­leg að sögn land­læknis.

Tölur um sótt­kví hafa ekki verið upp­færðar en sam­kvæmt reglum sem tóku gildi á mið­nætti þurfa ein­ungis þeir sem verða útsettir fyrir kór­ónu­veirusmiti innan heim­ilis þurfa að fara í sótt­kví, en aðrir í smit­gát. Í gær voru um 13 þús­und í sótt­kví og sú tala hefur því fækkað svo um munar eftir að nýju regl­urnar tóku gildi.

Mikilvægt að aflétta í skrefum til að koma í veg fyrir bakslag

Samhliða breyttum reglum um sótt­kví munu stjórn­völd kynna aflétt­ingar á ýmsum tak­mörk­unum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í lok vik­unnar. Sótt­varna­læknir mun leggja fram til­lögur til stjórn­valda varð­andi aflétt­ingu tak­mark­ana í skrefum en það er svo í höndum stjórn­valda að taka loka­á­kvörðun.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, benti á í upp­hafi upp­lýs­inga­fundar dags­ins, sem var sá 196. í röð­inni, að á morgun verða tvö ár frá því að óvissu­stigi var í fyrsta skipti lýst yfir vegna far­ald­urs­ins.

Sótt­varna­læknir segir stefnu­breyt­ingu í aðgerðum til að takast á við far­ald­ur­inn stafa af ýmsu, meðal ann­ars breyttu eðli far­ald­urs­ins sökum útbreiðslu ómíkron-afbrigð­is­ins. Rúmlega 90% smita sem grein­ast þessa dag­ana eru af ómíkron-afbrigð­inu en 10% af delta-afbrigð­inu. Að sögn Þórólfs er örv­un­ar­bólu­setn­ing að reyn­ast vel, færri þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna COVID og færri veikj­ast alvar­lega.

„Þannig er nokkuð ljóst að alvar­leg veik­indi af völdum COVID-19 eru nú til muna fátíð­ari en við höfum áður séð, en þó þufa um 0,2 pró­sent ein­stak­linga sem grein­ast að leggj­ast inn. Ný áskorun er hins vegar útbreidd smit hjá öðrum inniliggj­andi sjúk­lingum og önnur veik­indi og fjar­vistir starfs­fólks vegna COVID-19,“ sagði Þórólfur.

Aflétt­inga­á­ætlun stjórn­valda verður kynnt í lok vik­unnar og seg­ist Þórólfur vona að hún muni leiða til meira frjáls­ræðis. Hann telur hins vegar mik­il­vægt að ekki verði farið of hratt í aflétt­ingar og þær verði gerðar í nokkrum skrefum. „Annars er hætt við að bakslag komi í far­ald­ur­inn,“ sagði Þórólfur. Helstu áhyggj­urnar, að hans mati, fel­ast í auknum fjölda smita í sam­fé­lag­inu og fjölgun alvar­legra veik­inda með til­heyr­andi áhrifum á heil­brigð­is­kerfið, en einnig auknum veik­indum hjá heil­brigð­is­starfs­fólki og öðru starfs­fólki í umönn­un­ar­störfum.

„Ekki langt í land þar til faraldrinum fari að slota“

Þórólfur reyndi einnig að svara spurn­ingu sem brennur á mörgum, það er hvenær megi búast við að far­aldr­inum muni ljúka? „Þessu er auð­vitað ekki hægt að svara með neinni vissu en þó er hægt að segja að með þessum útbreiddu smitum í sam­fé­lag­inu sem við erum að sjá þá stytt­ist í að við förum að sjá fyrir end­ann á honum.“

[links]Þórólfur vís­aði meðal ann­ars í skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar eftir mótefnum gegn kór­ónu­veirunnar, en sam­kvæmt nið­ur­stöðu hennar gæti veiran verið búin að smita um 130 þús­und Íslend­inga. „Ef þessar for­sendur eru not­aðar og reiknað er með að um 80 pró­sent lands­manna þurfi að smit­ast til að ná hjarð­ó­næmi má búast við að það geti tekið enn um einn og hálfan til tvo mán­uði að ná því marki ef fjöldi dag­legra smita verður svip­aður og verið hefur,“ sagði Þórólfur, en bætti við:

„Vissu­lega þarf að taka þessum útreikn­ingum með fyr­ir­vara en þessi hug­ar­leik­fimi sýnir þó að lík­lega er ekki langt í land þar til far­aldr­inum fari að slota. Við þurfum hins vegar að vera undir það búin að eitt­hvað óvænt komi upp, eins og ný afbrigði veirunnar, sem geta breytt okkar spá og okkar áætl­unum. Ég held hins vegar að við ættum að vera von­góð um að betri tíð sé innan seil­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár