Veiran gæti jafnvel verið búin að smita um 130 þúsund manns hérlendis

Staðfest kór­ónu­veirusmit hér­lendis til þessa eru rúm­lega 58 þús­und tals­ins. Kári Stef­áns­son seg­ist telja að veiran gæti jafn­vel verið búin að smita 130 þús­und Íslend­inga, sam­kvæmt fyrstu nið­ur­stöðum úr mótefna­rann­sókn fyr­ir­tæk­is­ins.

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að nið­ur­stöður úr skimun fyr­ir­tæk­is­ins eftir mótefnum gegn kór­ónu­veirunni, í blóð­sýnum sem tekin voru skömmu fyrir ára­mót, sýni það að umtals­vert fleiri hafi smit­ast af kór­ónu­veirunni en búið hafi verið að greina í PCR-prófum á þeim tíma­punkti.

Hversu mikið fleiri er erfitt að segja, að sögn Kára, en hann segir nið­ur­stöð­urnar gefa til kynna að um 20 pró­sent af þeim sem séu undir 40 ára aldri hafi smit­ast af kór­ónu­veirunni og segir við Kjarnann að jafn­vel séu vís­bend­ingar um að allt að 130 þús­und íbúar á Íslandi hafi smit­ast af kór­ónu­veirunni nú þegar.

„En allir þessir útreikn­ingar eru allir hrika­lega óná­kvæmir og að öllum lík­indum eru töl­urnar sem ég er að tala um aðeins meiri en raun­veru­leik­inn segir okkur, en það er ekk­ert víðs­fjarri,“ segir Kári við blaða­mann.

Myndin verði skýrari í febrúar

Kári segir við Kjarnann að þessar nið­ur­stöður sem hann sé að draga álykt­anir út frá eigi við um sam­fé­lagið eins og það var fyrir um fjórum vikum síðan.

Síðan þær blóðprufur voru teknar hafa greind smit í PCR-prófum síðan nær und­an­tekn­inga­laust verið yfir þús­und tals­ins á degi hverjum. Frekari blóðprufur voru teknar af hálfu Íslenskrar erfða­grein­ingar fyrir rúmri viku síðan og nið­ur­stöður úr grein­ingu á þeim eru vænt­an­legar um miðjan febr­úar, segir Kári. Þá verður meira hægt að segja um stöð­una eins og hún er í dag.

[adspot]

Í dag eru alls 11.109 manns með stað­fest smit og í ein­angrun, sam­kvæmt tölum á töl­fræði­vef yfir­valda og stað­fest smit á land­inu orðin 58.409 – sem jafn­gildir því að um 16 pró­sent íbúa á Íslandi hafi fengið COVID-19.

Pestin gæti verið búin að hlaupa sitt skeið í apríl

Kári telur þó að hlut­fallið sé enn hærra og notar töl­una 2,7 sem marg­feldi til þess að áætla raun­veru­lega útbreiðslu veirunnar um sam­fé­lagið, og byggir það á nið­ur­stöð­unum úr blóðpruf­unum í lok des­em­ber.

Hann vill ekki full­yrða of mikið í sam­tali við blaða­mann, en segir nið­ur­stöð­urnar úr blóð­tök­unni í lok des­em­ber þó veita þær vís­bend­ingar að smit í sam­fé­lag­inu séu tölu­vert útbreidd­ari en opin­berar tölur sýni.

„Þetta er nátt­úr­lega algjör­lega óleið­rétt fyrir aldri og öllu slíku, það eina sem þetta segir okkur er að í dag erum við að öllum lík­indum komin með ansi mikið smit í sam­fé­lagið. En við komum til með að vita þetta eftir um það bil þrjár vikur,“ segir Kári.

„Mér sýn­ist, eins og maður horfir á þetta núna, að þessi pest verði búin að hlaupa sitt skeið í apríl, eða svo,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár