Tímabært að „henda grímunni“

Í dag kemur í ljós hvort dönsk stjórn­völd fall­ist á til­lögu far­sótt­ar­nefndar um að aflétta nær öllum tak­mörk­unum í land­inu á næstu dögum. „Tímabært“ segja margir sér­fræð­ingar en ein­hverjir eru þó skept­ískir á tíma­setn­ingu.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Danska far­sótt­ar­nefndin telur að COVID-19 ógni ekki lengur sam­fé­lag­inu og mælir með því að nán­ast allar tak­mark­anir verði afnumdar 31. jan­úar. Eina und­an­tekn­ingin verði skimun far­þega sem koma til lands­ins og ein­angrun þeirra ef þeir grein­ast jákvæðir.

Þetta mun þýða, sam­þykki stjórn­völd til­lögur nefnd­ar­innar, að grímu­skylda verður afnumin og engar fjölda tak­mark­anir verða á bað­stöðum og stórum við­burðum svo dæmi séu tekin. Danska rík­is­út­varpið segir að for­sæt­is­ráð­herr­ann Mette Frederik­sen muni halda blaða­manna­fund í dag og til­kynna ákvörðun stjórn­valda.

[adspot]

Met fjöldi smita hafa greinst í Danmörku, rétt eins og á Íslandi, síð­ustu daga. Engu að síður telja margir sér­fræð­ingar sem Danska rík­is­út­varpið ræðir við að tíma­bært sé að „henda grímunum í ruslið“ og losa um allar tak­mark­anir í dönsku sam­fé­lagi.

„Jafnvel þótt smit­fjöld­inn sé mik­ill eru ekki margir sem þurfa á gjör­gæslu­með­ferð að halda,“ segir Alan Randrup Thomsen, pró­fessor í veiru­fræðum við Háskól­ann í Kaup­manna­höfn. Hann segir að enn­fremur séu smit­aðir íbúar öldr­un­ar­heim­ila fæstir alvar­lega veikir. Thomsen hefði hins vegar viljað sjá losað um tak­mark­anir í nokkrum skrefum svo bregð­ast megi við ef eitt­hvað óvænt komi upp á. Hann nefnir sér­stak­lega næt­ur­lífið – skemmti­stað­ina – sem hann hefði viljað bíða með að opna án tak­mark­ana. Ástæðan er ekki heilsu­fars­leg heldur sú að hann vill koma í veg fyrir að skortur verði á „vinn­andi höndum“ vegna smita.

Thomsen spáir því að smitum eigi eftir að fjölga sam­hliða aflétt­ingum en að sjúkra­húsinn­lögnum eigi ekki eftir að fjölga skarpt líkt og þegar delta-afbrigðið geis­aði.

Hættan er að líða hjá

„Í tvö ár höfum við aðvarað almenn­ing um hversu hættu­legur sjúk­dóm­ur­inn er. Núna þurfum við að skýra út fyrir fólki að hættan er að líða hjá.“

Þetta hefur Danska rík­is­út­varpið eftir Jes Søgaard, pró­fessor í heilsu­hag­fræði. Hann sér ekk­ert athuga­vert við það að aflétta tak­mörk­unum. „Þetta hljómar skyn­sam­legt í mín eyru,“ segir hann og bætir við að hin „bráða hætta“ af völdum COVID-19 sé yfir­staðin. Søgaard seg­ist ekki ótt­ast aflétt­ing­arnar. Bæði sé ljóst að ómíkron valdi minni ein­kennum og eins hafi með­ferðum við COVID-19 fleygt fram.

[adspot]

Danska rík­is­út­varpið ræðir einnig við Viggo Andr­e­a­sen, aðstoð­ar­pró­fessor í lýð­töl­fræði við Hró­arskeldu­há­skóla. „Við erum að nálg­ast tíma­punkt þar sem tak­mark­anir eru óþarfar. Það er ljóst að far­ald­ur­inn er á fleygi­ferð í augna­blik­inu en að fáir þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús.“ Hann er þó á því að bíða mætti með aflétt­ingar í ein­hverjar vikur, leyfa far­aldr­inum að ganga yfir innan tak­mark­ana til að vernda hjúkr­un­ar­heim­ili, skóla og spít­ala og þá á hann við hlífa þeim við smitum eða veik­indum fjölda starfs­manna í einu.

Eskild Petersen, pró­fessor emertus í smit­sjúk­dómum, er hins vegar mun gagn­rýnni á fyr­ir­hug­aða aflétt­ingu. „Af hverju ósköp­unum ættum við að gera þetta?“ segir hann við Ritzau-frétta­stof­una. „Við vitum að það mun koma nýtt afbrigði,“ heldur hann áfram og það gæti sett sjúkra­húsin á hlið­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár