Grímur draga úr hættu á COVID-smiti

Stærsta rann­sókn hingað til á gagn­semi gríma í bar­átt­unni við COVID-19 hefur litið dags­ins ljós. Nið­ur­staðan: Grímunotkun er árang­urs­rík vörn gegn smiti.

Til að grímur dragir úr hættu á smiti verður að nota þær rétt.
Til að grímur dragir úr hættu á smiti verður að nota þær rétt. Mynd: EPA

Nið­ur­staða stærstu rann­sóknar hingað til á því hvort grímur gagn­ist raun­veru­lega til að hefta útbreiðslu kór­ónu­veirunnar sem veldur COVID-19 er sú að jú, þær gera það og einnota grímur enn meira en þær sem eru úr taui. Rann­sóknin gekk einnig út á að kanna áhrif hvatn­ingar til grímunotk­unar og fræðslu. Slíkt inn­grip skilar sér, að sögn höf­unda rann­sókn­ar­innar, og getur þar með aukið lýð­heilsu í sam­fé­lögum.

Rann­sóknin náði til yfir 340 þús­und manns í um 600 þorpum í Bangla­dess. Íbúum þorp­anna var ýmist boðið að fá að gjöf einnota grímur, taugrímur eða engar grímur yfir höfuð.

Vís­inda­menn­irnir rann­sök­uðu svo áhrifin á hegðun fólks í marg­menni, m.a. í moskum, á mörk­uðum og stöðum þar sem fólk kemur saman til að drekka te. Þátt­tak­end­urnir voru spurðir um COVID-19 ein­kenni sín og þeir sem þau höfðu fóru í frek­ari rann­sóknir.

Nið­ur­staðan var sú að í þorp­unum þar sem grímum hafði verið dreift voru ein­kenna­smit 9,3 pró­sent færri en í við­mið­un­ar­þorp­unum þar sem engum grímum var dreift. Hlut­fallið var enn lægra meðal þorps­búa sem höfðu fengið einnota skurð­grímur eða 11 pró­sent.

Eldra fólk hafði mestan ábata af því að nota grímur. Fjöldi sýk­inga sex­tugra og eldri sem báru einnota grímur var 35 pró­sent minni en sam­bæri­legs ald­urs­hóps þar sem engum grímum hafði verið dreift.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var birt af mann­úð­ar­sam­tök­unum Innovations for Poverty Action nýverið en hana á enn eftir að rit­rýna. Aðal­höf­undar hennar eru Laura Kwong, aðstoð­ar­pró­fessor við Berkeley-háskóla, Jason Abaluck og Mushfiq Mobarak í Yale-háskóla og Steve Luby og Ashley Styczynski frá Stanford-háskóla.

Nið­ur­stöð­urnar eru sagðar sér­stak­lega mik­il­vægar fyrir þau lönd sem enn þurfa fyrst og fremst að reiða sig á sam­fé­lags­legar tak­mark­anir í bar­átt­unni við COVID-19 þar sem bólu­efni er þeim ekki enn almennt aðgengi­legt. En þær ættu líka að gagn­ast öðrum sam­fé­lögum til að taka ákvarð­anir um hvort og þá hvar eigi að hafa grímu­skyldu eða að minnsta kosti hvetja fólk til að bera þær.

„Spurn­ingin sem við vorum að reyna að svara var: Ef þú dreifir grímum og færð fólk til að nota þær, gagn­ast þær?“ segir Mushfiq Mobarak, hag­fræði­pró­fessor við Yale-háskóla, sem er einn aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar.

Mobarak og sam­starfs­menn hans hófu rann­sókn sína í Bangla­dess í nóv­em­ber í fyrra. Þeir völdu þorp af handa­hófi þar sem grímur voru gefnar, rétt notkun þeirra kennd og hvatt var til grímunotk­unar almennt í sam­fé­lag­inu.

Meðal þeirra rúm­lega 178 þús­und ein­stak­linga sem voru hvattir til að nota grímur jókst notk­unin um 30 pró­sent og sú hegðun hélst í að minnsta kosti tíu vikur. Mobarak segir að þótt árang­ur­inn af grímunotk­un­inni sem í ljós kom við rann­sókn­ina kunni að virð­ast lít­ill verði að muna að hann fékkst með því að auka grímunotkun um 30 pró­sent. „Ímyndið ykkur ef hún myndi aukast um 100 pró­sent,“ segir hann í sam­tali við NBC sjón­varps­stöð­ina um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár