Böllin leyfð á ný – grímulaust og í nánd

Meðal þess sem sótt­varna­læknir lagði til í nýjasta minn­is­blaði sínu og fært hefur verið í reglu­gerð sem tekur gildi á mið­nætti er að grunn- og fram­halds­skólum sé heim­ilt að halda skemmt­anir fyrir allt að 1.500 nem­endur.

Loksins má halda aftur böll í framhaldsskólunum.
Loksins má halda aftur böll í fram­halds­skól­unum. Mynd: Pexels

„Ef vel tekst til með tak­mörk­unum á landa­mærum að lág­marka flutn­ing veirunnar hingað til lands frá útlöndum þá tel ég allar for­sendur vera fyrir hendi til að slaka frekar á tak­mörk­unum inn­an­lands á næstu vikum og mán­uðum,“ skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­lækni í sínu nýjasta minn­is­blaði til heil­brigð­is­ráð­herra. Í því leggur hann þegar til nokkra aflétt­ingu aðgerða, m.a. klukku­stundar lengri opn­un­ar­tíma veit­inga­staða og til­slak­anir hvað varðar fjölda tak­mark­anir. Allt þetta og fleira er komið inn í nýja reglu­gerð um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sóttar – þessa sem upp­færð hefur verið reglu­lega síð­asta eina og hálfa árið – er tekur gildi á mið­nætti.

[adspot]

Ætla má að engri til­lögu Þórólfs að til­slökun nú verði fagnað meira en þeirri er snýr að grunn – og fram­halds­skóla­nemum. Samkvæmt henni leyf­ist skól­unum á ný að halda sam­komur fyrir nem­endur, fyrir allt að 1.500 gesti, að því gefnu að þeir fram­vísi nei­kvæðu hrað­grein­ing­ar­prófi sem ekki má vera eldra en 48 klukku­stunda gam­alt. Þannig að frá og með morg­un­deg­inum má halda böll í fram­halds­skólum á ný og árs­há­tíðir í grunn­skólum, svo dæmi séu tekin. Fá ef nokkur slík böll hafa farið fram frá því snemma í far­aldr­inum. „Slíkar skemmt­anir eru und­an­þegnar nálægð­ar­tak­mörkun og grímu­skyldu,“ segir í reglu­gerð ráðu­neyt­is­ins um þennan lið. „ Skrá skal alla gesti með nafni, kenni­tölu og síma­núm­eri. Skrána skal varð­veita í tvær vikur og henni eytt að þeim tíma liðnum.“

Í minn­is­blaði Þórólfs fer hann yfir þróun far­ald­urs­ins síð­ustu vikur. „Í ljósi þeirrar reynslu sem fékkst í lok júní 2021 af aflétt­ingum allrar tak­mark­ana inn­an­lands og breyt­inga á skimunum á landa­mærum, tel ég rétt að fara hægt í til­slak­anir á næst­unni, sér­stak­lega á landa­mærum. Þau alvar­legu veik­indi sem hlut­ust af þessum til­slök­unum gengu nærri þol­mörkum Land­spít­ala.“

Frá 30. júlí þegar núver­andi bylgja náði hámarki hefur far­ald­ur­inn verið á hægri nið­ur­leið, skrifar Þórólfur, og að síð­ustu daga hafi fáir þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús. Ástandið á Land­spít­al­anum vegna COVID-19 sé ekki eins alvar­legt nú og fyrr í þess­ari bylgju. „Ástæðan fyrir batn­andi ástandi eru margar og þær helstar, að tak­mark­anir inn­an­lands hafa verið við­hafðar, beitt hefur verið smitrakn­ingu, sótt­kví og ein­angrun eins og áður, hert hefur verið á skimunum á landa­mær­unum og auk þess hefur gengið vel að bólu­setja börn og ung­linga og við­kvæmir hópar hafa fengið þriðja skammt bólu­efnis.“

100 manns þurft að leggjast inn

Frá 1. júlí hafa um 4.700 manns greinst með COVID-19 hér á landi og um 2,1 pró­sent þeirra (100 manns) þurft á sjúkra­hús­vist að halda. Átján hafa lagst inn á gjör­gæslu­deild (0,4 pró­sent), níu þurft aðstoð önd­un­ar­véla (0,2 pró­sent) og þrír lát­ist (0,1 pró­sent). Smitin greindust bæði hjá óbólu­settum og full­bólu­settum ein­stak­lingum en líkur á smiti hjá óbólu­settum eru um þrefalt meiri og líkur á inn­lögnum á sjúkra­hús um fimm­falt hærri, skrifar Þórólfur. Um 60 pró­sent þeirra sem leggj­ast inn á sjúkra­hús eru hins vegar full bólu­settir. „Þó er því ljóst að góð þátt­taka í bólu­setn­ingum hér á landi hefur bæði komið í veg fyrir útbreidd­ara smit og alvar­legri afleið­ingar COVID-19.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár