Hafa þurft að vísa vottorðalausum farþegum frá

Flug­fé­lagið Play hefur fengið jákvæð við­brögð við þeirri ákvörðun að meina far­þegum um flug sem ekki hafa vott­orð um nei­kvætt COVID próf. Fyr­ir­komu­lagið verður enn í gildi hjá Play þrátt fyrir að vott­orða­lausum muni bjóð­ast sýna­taka á landa­mær­unum.

Til að fá að fljúga með flugfélaginu Play verða farþegar að skila inn vottorði um neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi eða hraðprófi.
Til að fá að fljúga með flug­fé­lag­inu Play verða far­þegar að skila inn vott­orði um nei­kvæða nið­ur­stöðu úr PCR-prófi eða hrað­prófi. Mynd: Play

Nokkrir far­þegar hafa ekki getað flogið með flug­fé­lag­inu Play vegna þess að við­kom­andi far­þegar voru ekki með vott­orð um nei­kvætt COVID próf. Flug­fé­lagið til­kynnti í gær að á mið­nætti yrði þeim far­þegum sem ekki geta fram­vísað vott­orði um nei­kvætt COVID-19 próf við inn­ritun meinað um að fljúga með flug­fé­lag­inu. Nýtt fyr­ir­komu­lag á landa­mær­unum sem skikkar þá sem ekki geta skilað nei­kvæðum vott­orðum í sýna­tökur mun ekki hafa nein áhrif á þessa ákvörðun Play.

[links]Samkvæmt til­kynn­ingu frá Play var ákveðið að fara þessa leið til þess að tryggja öryggi far­þega og áhafna. Í til­kynn­ing­unni var einnig sagt að með til­hög­un­inni væri ekki verið að bera brigður á rétt Íslend­inga til að snúa til síns heima. „Við erum ekki landamæra­eft­ir­lit. Það er ekki okkar hlut­verk að hleypa far­þegum til lands­ins. Við erum bara einka­fyr­ir­tæki sem er að fljúga far­þegum og það er algjör­lega okkar réttur eins og við túlkum það,“ er meðal þess sem Birgir Jónsson for­stjóri sagði í við­tali við Bylgjuna í gær um til­hög­un­ina.

Fram kom í frétt RÚV í gær­kvöldi að íslenskum rík­is­borg­urum yrði ekki vísað frá í flugum með Icelandair, séu þeir án vott­orða um nei­kvætt COVID próf. Farþegar sem mæta án vott­orða geti hins vegar átt von á 100 þús­und króna sekt þegar heim er komið.

Skimun á landamærum fyrir vottorðalausa

Víðir Reyn­is­son fjall­aði um þær reglur sem gilda á landa­mær­unum á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag. Hann sagði að nú væri verið að skerpa á reglu­gerð­inni þannig að þeir sem ekki geta fram­vísað nei­kvæðu COVID prófi áður en lagt er af stað munu þurfa að fara í sýna­töku við kom­una til lands­ins.

„Það er skylda á flug­rek­endur að fylgja því eftir við byrð­ingu erlendis að þú sért með þetta próf. Hættan er sú að þú fáir ekki að fara með vél­inni. Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum eru flug­fé­lög að skerpa á þessu hjá sér, að þeir munu ekki hleypa far­þegum um borð nema að þeir séu með nei­kvæð PCR-próf eða nei­kvæð hrað­próf fyrir byrð­ingu,“ sagði Víðir á fundi almanna­varna. Hann bætti því við að það sé ekki val­kvætt að skila nei­kvæðu vott­orði fyrir flug, hins vegar sé sýna­taka við komu orðin skylda ef fólk hefur ekki tök á að skila slíku vott­orði.

„En þetta ætti að vera algjör und­an­tekn­ing,“ sagði Víðir.

Akvörðun Play stendur óhögguð

Þessar nýju reglur munu ekki breyta neinu um fyr­ir­komu­lagið hjá Play og enn verður vott­orða­lausum Íslend­ingum meinað að fljúga með flug­vélum félags­ins, segir Nadine Guðrún Yaghi, upp­lýs­inga­full­trúi flug­fé­lags­ins Play, í sam­tali við Kjarnann. Hún segir að vel hafi gengið frá því að þessi til­högun tók gildi hjá flug­fé­lag­inu á mið­nætti.

„Við höfum fengið mjög jákvæð við­brögð við þess­ari ákvörðun frá far­þegum. Þetta hefur ekki verið neitt vesen. Ég held að þeir átti sig alveg á því að þetta snýst fyrst og fremst um að verja þá og áhafn­irnar,“ segir Nadine.

Hún bætir því við að flug­fé­lagið aðstoði far­þega sem ekki fá að fljúga við að finna nýtt flug með flug­fé­lag­inu .„Þetta er nátt­úr­lega fyrsti dag­ur­inn í dag sem að reynir á þetta og það eru bara örfáir sem hafa ekki kom­ist með út af þessu og við aðstoðum þau við að finna annað flug með Play. Um leið og þau eru komin með prófið þá fá þau að fara í næsta flug ef það er laust sæti, þeim að kostn­að­ar­lausu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár