Ólíkur skilningur lagður í nýja reglugerð á landamærunum

Á mið­nætti tók gildi ný reglu­gerð sem skyldar alla far­þega sem koma til lands­ins að skila inn vott­orði um nei­kvætt COVID-19 próf. Ekki er hægt að meina Íslend­ingum að koma til lands­ins og túlkun á regl­unum virð­ist vera ólík meðal flug­fé­laga og lög­reglu.

Allir farþegar sem komið hafa til landsins frá miðnætti hafa skilað viðeigandi vottorðum um neikvæð COVID-19 próf.
Allir far­þegar sem komið hafa til lands­ins frá mið­nætti hafa skilað við­eig­andi vott­orðum um nei­kvæð COVID-19 próf. Mynd: Bára Huld Beck

Íslenskir rík­is­borg­arar sem ferð­ast til lands­ins án vott­orðs um nei­kvætt COVID-19 próf geta átt yfir höfði sér háa fjár­sekt sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Icelandair og emb­ætti land­læknis en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum er það við­kom­andi flug­fé­lag sem getur átt yfir höfði sér sekt fyrir að flytja far­þega án þess að afla við­eig­andi gagna. Ekki er hægt að meina Íslend­ingum sem ekki geta fram­vísað slíku vott­orði að koma til lands­ins en Kjarninn hefur leit­ast við að kom­ast að því hvaða við­ur­lögum er beitt, ferð­ist ein­stak­lingur án vott­orðs. Ólíkur skiln­ingur er lagður í regl­urnar sem nú gilda á landa­mær­unum.

Á mið­nætti tók gildi breyt­ing á reglu­gerð um sótt­kví og ein­angrun og sýna­töku við landa­mæri Íslands vegna COVID-19. Breyt­ingin kveður á um að bólu­sett ferða­fólk þurfi að verða sér úti um vott­orð um nei­kvætt COVID-19 próf áður en haldið er til Íslands.

„Hafi ferða­maður við kom­una til lands­ins undir höndum við­ur­kennt vott­orð um ónæm­is­að­gerð vegna COVID-19 eða vott­orð sem sýnir fram á að COVID-19 sýk­ing sé afstaðin er honum ekki skylt að fara í sótt­kví eða gang­ast undir sýna­töku við landa­mæri, en hins vegar ber honum skylda við byrð­ingu erlendis að fram­vísa vott­orði sem sýnir fram á nei­kvætt COVID-próf, ann­að­hvort PCR eða antigen (hrað­próf), sem er ekki eldra en 72 klst. gam­alt,“ segir í nýju við­bót­inni við reglu­gerð­ina.

Ekki hægt að neita íslenskum ríkisborgurum um flug

Hjá Icelandair feng­ust þær upp­lýs­ingar að far­þegar á leið til lands­ins þurfa að fram­vísa vott­orði um nei­kvætt próf við inn­ritun áður en farið er um borð í flug til Íslands, það gildir um Íslend­inga jafnt sem aðra far­þega. „Flug­fé­lög geta þó ekki neitað Íslend­ingum sem vilja koma heim um að fljúga til Íslands en far­þegar sem ferð­ast án nei­kvæðs prófs geta átt von á sekt frá lög­reglu við komu til lands­ins,“ segir í svari frá flug­fé­lag­inu.

Þetta þýðir þó ekki að flogið sé með ein­stak­linga sem greinst hafa með COVID-19 en tekið er fram í svar­inu að ef fólk grein­ist jákvætt erlendis þá fer það í ein­angrun í því landi sem það er.

100 þúsund króna sekt fyrir vottorðalausa

Þetta er í sam­ræmi við svar frá emb­ætti land­læknis við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. „Allir full­bólu­settir ein­stak­lingar og ein­stak­lingar með mótefni vegna fyrri sýk­ingar, verða að fram­vísa nei­kvæðu PCR prófi/antigen prófi við byrð­ingu erlendis og við lend­ingu í KEF,“ segir meðal ann­ars í svari frá emb­ætt­inu.

Þar kemur fram að réttur íslenskra rík­is­borg­ara sé sterkur í þessum aðstæðum, flug­fé­lög geti ekki neitað að hleypa íslenskum rík­is­borg­urum um borð á grund­velli þess að þeir séu ekki með nei­kvætt próf. Heldur sé ekki hægt að neita íslenskum rík­is­borg­urum um inn­göngu í landið. Hægt sé að beita þá sekt á landa­mær­unum hafi þeir ekki vott­orð en útlend­ingum sem ekki búa á Íslandi sé hægt að bjóða sýna­töku, ellegar sé þeim vísað frá landi.

Varðandi sekt­ina sem Íslend­ingar geta átt yfir höfði sér er vísað á upp­lýs­ingar um sekt fyrir brot á reglum um fram­vísun vott­orðs um nei­kvætt PCR próf sem finna má á island.is. Þar kemur fram að ein­stak­lingur getur átt yfir höfði sér 100 þús­und króna sekt fyrir það að fram­vísa ekki vott­orði.

Lögreglan vill heldur sekta flugfélög

Arn­grímur Guð­munds­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjón lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á Kefla­vík­ur­flug­velli, telur það ólík­legt að íslenskir ferða­menn án vott­orða um nei­kvætt COVID-19 próf verði beittir sektum á flug­vell­inum. Hann segir að gerð sé krafa á flug­fé­lög um að sinna því að afla réttra gagna frá far­þegum sem koma til lands­ins. Sekt­ar­á­kvæði sé til staðar og þá er það Sam­göngu­stofu að beita við­kom­andi flug­fé­lag stjórn­valds­sektum ef það sinnir ekki skyldu sinni og aflar við­eig­andi gagna.

Að sögn Arngríms hefur nýja fyr­ir­komu­lagið ekki verið til vand­ræða og allir far­þegar skilað við­eig­andi gögnum. „Þetta byrj­aði á mið­nætti og þetta hefur bara gengið mjög vel. Það hafa ekki verið neinar upp­á­komur og það hafa allir verið með það sem til þurfti,“ segir Arn­grímur í sam­tali við Kjarnann.

Skylt að meina erlendum ferðamönnum um flutning

Þessari laga­túlkun er lög­fræð­ingur Icelandair ósam­mála sam­kvæmt svörum frá flug­fé­lag­inu. Sá vill meina að sektin lendi á far­þeg­anum, sé hann íslenskur rík­is­borg­ari, og vísar flug­fé­lagið meðal ann­ars í breyt­ingar sem gerðar voru í maí á lögum um loft­ferðir. Þar kemur fram að Sam­göngu­stofa geti vissu­lega lagt stjórn­valds­sektir á flug­rek­enda ef hann sinnir ekki skyldu sinni um að kanna hvort far­þegi hafi vott­orð eða þá að synja far­þega um flutn­ing geti hann ekki fram­vísað slíku vott­orði. Í lög­unum er skýrt tekið fram að skylda flug­rek­enda til að synja far­þega um flutn­ing nái ekki til íslenskra rík­is­borg­ara.

Skylda flug­rek­and­ans til að meina fólki um flutn­ing vegna skorts á vott­orði nær því ein­ungis til erlendra ferða­manna sam­kvæmt lög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár