Ekki komið til tals að breyta ferðatakmörkunum fullbólusettra

Rúmlega helm­ingur landamæra­smita í júlí má rekja til ferða­fólks á leið til landa sem krefj­ast nei­kvæðs PCR prófs frá öllum, óháð bólu­setn­ingum. Full­bólu­settir hafa ekki þurft að skila nei­kvæðu PCR prófi við kom­una til lands­ins frá upp­hafi mán­aðar.

Frá mánaðamótum hafa fullbólusettir ekki þurft að fara í skimun eða skila vottorði um neikvætt PCR próf við komuna til landsins.
Frá mán­aða­mótum hafa full­bólu­settir ekki þurft að fara í skimun eða skila vott­orði um nei­kvætt PCR próf við kom­una til lands­ins. Mynd: EPA

Ekki hefur komið til tals að krefja bólu­sett ferða­fólk um að skila nei­kvæðum nið­ur­stöðum PCR prófs við kom­una til lands­ins en frá 1. júlí hefur nægt að fram­vísa full­gildu bólu­setn­ing­ar­vott­orði við komu. Þetta segir Hjördís Guð­munds­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi Almanna­varna í sam­tali við Kjarnann. Ferða­fólk sem ekki er full­bólu­sett þarf engu að síður að fara í tvö­falda skimun við kom­una til lands­ins með fimm daga sótt­kví á milli. Hjördís segir fyr­ir­komu­lagið hald­ast óbreytt á meðan staðan sé góð en gild­andi tak­mark­anir og sótt­varnir séu stöðugt til end­ur­skoð­unar.

Tvö smit greindust inn­an­lands í gær og voru þeir ein­stak­lingar báðir bólu­settir. Engin aug­ljós tengsl eru þeirra á milli.

Spurð að því hvort aukn­ing hafi orðið í greindum smitum á landa­mær­unum upp á síðkastið segir Hjördís að lændamæra­smitum hafi fjölgað eitt­hvað á síð­ustu dögum og vikum en ekki mikið og vís­aði í við­tal frétta­stofu RÚV við Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni frá því í gær. Þar kom fram að 29 ferða­menn hefðu greinst við landa­mærin, þar af var um helm­ingur bólu­settur. Sex inn­an­lands­smit í júlí hefði mátt rekja til þess­ara land­armæra­smita.

Líkt og áður segir þá þurfa full­bólu­settir ferða­menn, íslenskir sem erlendir, ekki að skila vott­orði um nei­kvætt PCR próf við kom­una til lands­ins. Hins vegar er gerð krafa um nei­kvætt PCR próf við komu til ann­arra landa og það er þá sem að bólu­settir ferða­menn grein­ast. „Fólk er að fara aftur erlendis eða heim til sín og þá fer það í PCR próf því það land óskar eftir því prófi og þá kemur það inn í töl­urnar okkar,“ segir Hjördís. Smit sem grein­ist þannig telst til landamæra­smits en ekki sem inn­an­lands­smit þrátt fyrir að hinir smit­uðu hafi verið á ferð um landið.

Vikuleg uppfærsla á covid.is

Spurð að því hvort til greina komi að upp­færa tölu­legar upp­lýs­ingar á covid.is oftar en einu sinni í viku líkt og verið hefur að und­an­förnu segir Hjördís ekki stefnt að því í bráð. „Meðan smit í sam­fé­lag­inu var eins og það var og er búið að vera þá teljum við ekki þurfa að gefa upp þessi fáu smit sem hafa verið,“ segir Hjördís.

Hún bendir þó á að þegar upp komi smit utan sótt­kvíar, líkt og gerð­ist í gær, þá sé send út til­kynn­ing. Það sé gert vegna þess að smit sem grein­ist utan sótt­kvíar geti haft sam­fé­lags­leg áhrif. „Eins og er ætlum við að halda þessu svona,“ segir Hjördís um viku­lega upp­færslu talna á covid.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár