Misjafnar kvaðir á erlendum landamærum fyrir ferðamenn frá Íslandi

Bólu­settir Íslend­ingar geta almennt ferð­ast án mik­illa vand­kvæða til vin­sæl­ustu áfanga­stað­anna. Á þessu eru þó ein­hverjar und­an­tekn­ingar og almennt gildir ferða­bann til Banda­ríkj­anna og Kanada. Staðan gæti breyst mikið verði Ísland ekki lengur grænt land.

Reglur á landamærum breyast í takt við þróun faraldursins og því mikilvægt að kynna sér reglulega hvaða reglur eru í gildi ef ætlunin er að fara til útlanda.
Reglur á landa­mærum brey­ast í takt við þróun far­ald­urs­ins og því mik­il­vægt að kynna sér reglu­lega hvaða reglur eru í gildi ef ætl­unin er að fara til útlanda. Mynd: Úr safni

Frá og með þriðju­degi, 27. júlí, munu allir far­þegar sem koma til Íslands þurfa að skila inn nei­kvæðu COVID-prófi, ýmist PCR-prófi eða hrað­prófi, áður en haldið er af stað. Þessi nei­kvæðu próf mega að hámarki vera 72 klukku­stunda gömul. Þá verður einnig mælst til þess að þeir sem eru búsettir á Íslandi eða hafa tengsla­net hér á landi fari í skimun við kom­una til lands­ins, en það verður ekki skylda.

Kjarninn kann­aði hvaða kröfur eru gerðar til ferða­langa frá Íslandi í þeim löndum sem Íslend­ingar sækja helst heim. Samkvæmt könnun Ferða­mála­stofu eru þetta mark­aðs­svæðin Spánn og Portúgal, Danmörk, Bretland og Írland, Banda­ríkin og Kanada og loks Þýska­land.

Um þessar mundir er Ísland talið vera svo­kallað grænt land hjá sótt­varn­ar­yf­ir­völdum þess­ara landa. Þar af leið­andi eru ekki settar miklar kvaðir á ferða­lög bólu­settra Íslend­inga til margra þess­ara landa. Þetta gæti þó breyst umtals­vert breyt­ist staða Íslands til hins verra. Sé fólk óbólu­sett er yfir­leitt gerð krafa um fram­vísun nei­kvæðs PCR-prófs og þá er gerð er krafa um for­skrán­ingu í þeim flestum. Banda­ríkin og Kanada skera sig nokkuð úr enda er ferða­bann í gildi til þess­ara landa með nokkrum und­an­tekn­ingum.

Vert er að taka fram að sótt­varna­læknir mælir gegn ferða­lögum óbólu­settra til áhættu­svæða, líkt og tekið er fram á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem finna má ferða­ráð vegna COVID-19.

Spánn og Portúgal

Allir far­þegar á leið til Spánar þurfa að for­skrá sig áður en þeir leggja af stað. Ferða­menn sem koma frá lágá­hættu­svæðum líkt og Íslandi þurfa ekki að fram­vísa neinum vott­orðum. Eftir að for­skrán­ingu lýkur ættu íslenskir ferða­menn því að fá QR kóða sem segir að við­kom­andi eigi að fá flýti­með­ferð við kom­una til lands­ins. Á Spáni er grímu­skylda í almenn­ings­sam­göngum og þar sem ekki er hægt að halda 1,5 metra fjar­lægð á milli fólks.

Frá 1. júlí hafa star­fræn evr­ópsk COVID-19 vott­orð verði tekin gild í Portúgal sem leyfa full­bólu­settu fólki að ferð­ast þangað án þess að þurfa að fram­vísa nei­kvæðu PCR prófi. Óbólu­settir ferða­menn þurfa sýna nei­kvætt PCR próf sem tekið hefur verið innan 72 klukku­stunda fyrir brott­för. Einnig er í boði að fram­vísa nei­kvæðu hrað­prófi sem tekið er innan við 48 klukku­stundum fyrir brott­för. Þá þurfa allir far­þegar að for­skrá sig fyrir kom­una til lands­ins.

Svipaðar reglur gilda fyrir ferða­langa á leið til Asoreyja og Madeira. Þó er í boði að fara í skimun við komu og fara í sótt­kví á meðan beðið er eftir nið­ur­stöðu, sem ætti að taka á bil­inu 12 til 24 klukku­stundir.

Mismunandi reglur innan Bretlandseyja

Allir sem koma frá grænum löndum geta sótt England heim. Þó þurfa allir, líka þeir sem eru full­bólu­settir eða hafa smit­ast af COVID-19, að fara í PCR próf á öðrum degi eftir kom­una til lands­ins. Á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að þann 19. júlí, í gær, hafi flestum tak­mörk­unum verið aflétt á Englandi. Þó þarf að nota grímur í almenn­ings­sam­göngum í London og ein­hverjar versl­anir munu áfram krefj­ast grímunotk­unar.

Áður en fólk frá grænum löndum ferð­ast til Skotlands, Wales og Norður-Írlands þarf það að taka COVID próf. Allir ferða­langar frá grænum löndum þurfa svo að fara í annað próf innan við tveimur dögum eftir kom­una til lands­ins. Þá þurfa allir að for­skrá sig fyrir brott­för til þess­ara svæða.

Á Írlandi er nóg að fram­vísa bólu­setn­ing­ar­vott­orði eða vott­orði sem sýnir fram á að ferða­maður hafi smit­ast af COVID-19 á síð­ustu 180 dögum við kom­una til lands­ins. Aðrir þurfa að fram­vísa nei­kvæðri nið­ur­stöðu úr PCR prófi sem var tekið innan við 72 klukku­stundum fyrir brott­för. Þá þurfa allir sem hyggja á ferða­lög til lands­ins að for­skrá sig fyrir brott­för.

Regluleg próf í Danmörku...

Á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að bólu­settir ein­stak­lingar frá grænum, gulum og app­el­sínu­gulum löndum þurfi ekki að fara í skimun við komu til Dan­merkur en Ísland er skil­greint sem grænt land. Óbólu­settir frá grænum löndum þurfa heldur ekki að fara í skimun.

Reglur inn­an­lands í Danmörku eru frá­brugðnar reglum á Íslandi. Til að mynda er víða gerð krafa um fólk fram­vísi sér­stökum kór­ónu­veirupassa. Fólk þarf að sýna pass­ann ætli það sér að heim­sækja söfn, kvik­mynda- og leik­hús, dýra­garða og aðra sam­komu­staði. Þá er gerð krafa um fram­vísun slíks passa á veit­inga­húsum og börum. Í pass­anum er að finna QR kóða sem sýnir nið­ur­stöðu úr síð­astu skimun fyrir kór­ónu­veirunni. Pass­arnir eru í gildi í 96 klukku­stundir eftir síð­asta PCR próf en í 72 klukku­stundir eftir hrað­próf. Víðs­vegar um landið er hægt að fara í slík próf en þau eru ókeypis.

...sem og í Þýskalandi

Staðan er nokkuð svipuð í Þýska­landi og í þeim löndum sem upp hafa verið talin. Þeir sem ekki eru full­bólu­settir eða hafa smit­ast af veirunni þurfa að sýna nei­kvætt PCR próf sem tekið hefur verið innan við 48 klukku­stundum fyrir brott­för.

Almenn grímu­skylda er í land­inu inn­an­dyra, svo sem í búðum og á veit­inga­stöðum og almenn­ings­sam­göngum. Þá þarf fólk að geta sýnt fram á nýlega nei­kvæða nið­ur­stöðu úr sýna­töku ef það er ekki bólu­sett eða með vott­orð um fyrra smit, svipað og tíðkast í Danmörku.

„Íbúum Þýska­lands er boðið upp á ókeypis skyndi­próf (Antigen eða „Schnelltest“ á þýsku) tvisvar viku og ferða­menn geta einnig nýtt sér það, stundum fyrir smá gjald. Stundum þarf nið­ur­stöðu úr slíku prófi til þess að kom­ast í verl­anir sumar og á inn­i­svæði veit­inga­staða, en bólu­setn­ing­ar­vott­orð og vott­orð um fyrri smit eru oft­ast einnig tekin gild,“ segir á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Bann við ferðalögum til Bandaríkjanna og Kanada

Banda­ríkin eru tölu­vert sér á parti í þess­ari upp­taln­ingu en þar er í gildi ferða­bann gagn­vart rík­is­borg­urum Schengen-ríkj­anna sem gildir þá einnig um Íslend­inga. Þó geta hand­hafar ákveð­inna árit­ana fengið und­an­þágu frá ferða­bann­inu sem sækja þarf sér­stak­lega um, líkt og fram kemur á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Fyrir flug til Banda­ríkj­anna er gerð krafa um að allir, einnig þeir sem eru bólu­settir, sýni fram á nei­kvætt próf sem er ekki eldra en 72 klukku­stunda gam­alt. Eftir kom­una til lands­ins er mælt með því að ferða­menn fari í skimun þremur til fimm dögum eftir kom­una til lands­ins. Óbólu­settir far­þegar þurfa hins vegar að sæta sótt­kví í sjö daga eftir kom­una til lands­ins og fara í COVID-19 próf þremur til fimm dögum eftir komu.

Svipað er uppi á ten­ingnum í Kanada. Landa­mærin eru ekki opin fyrir fólk með búsetu á Íslandi, nema við­kom­andi sé með búsetu­rétt í Kanada, sé kanadískur rík­is­borg­ari, náinn ætt­ingi kanadísks rík­is­borg­ara eða eigi brýnt erindi til lands­ins vegna vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár