Bandaríkin opnast og ferðagleði grípur um sig

Icelandair flýgur til níu áfanga­staða í Banda­ríkj­unum og stefnir á fleiri. Flug­fé­lagið hefur ekki farið var­hluta af auknum áhuga á ferða­lögum þangað enda verða landa­mærin opnuð fyrir bólu­settum á næstu dögum. Far­ald­ur­inn er sem fyrr stóri óvissu­þátt­ur­inn.

Hún er þarna enn, Frelsisstyttan.
Hún er þarna enn, Frels­is­styttan. Mynd: EPA

Um leið og banda­rísk stjórn­völd til­kynntu að landa­mærin yrðu opnuð fyrir bólu­settum ferða­mönnum frá og með 8. nóv­em­ber varð spreng­ing í fyr­ir­spurnum til ferða­skrif­stofa og í gegnum leit­ar­vélar á net­inu. Bókunum í gegnum Skyscanner, sem er ein vin­sælasta síða ver­aldar þegar kemur að því að leita að flug­ferðum, fjölg­aði um 800 pró­sent sam­dæg­urs og 28 pró­sent aukn­ing varð í leit að gist­ingu í Banda­ríkj­unum í gegnum vef Expedia.

Icelandair hefur ekki farið var­hluta af þessum end­ur­vakta áhuga á ferðum til Banda­ríkj­anna, bæði frá Íslend­ingum sem og öðrum Evr­ópu­búum og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá flug­fé­lag­inu hafa bók­anir þangað þegar auk­ist.

[adspot]

Þeir hafa verið margir og langir mán­uð­irnir sem fólk hefur almennt ekki getað ferð­ast til Banda­ríkj­anna. Þótt ferða­langa þyrsti aug­ljós­lega marga í að kom­ast þangað eru það ekki síst ást­vinir sem hafa verið aðskildir vegna far­ald­urs­ins sem eru hvað fegn­astir.

Tíðindin af opnun landamær­anna höfðu einnig áhrif á ferða­vilja Banda­ríkja­manna sjálfra – bæði inn­an­lands og utan. Þakk­ar­gjörð­ar­há­tíðin er á næsta leyti og jólin svo handan við hornið. Bjart­sýni hefur auk­ist og fólk mun viljugra að ferð­ast eftir að stjórn­völd ákváðu að opna landa­mærin fyrir bólu­settum. Ákvörð­un­inni er tekið sem ákveðnum skila­boðum um að óhætt sé að ferð­ast – að far­ald­ur­inn hafi minni áhrif á ferða­lög nú en síð­ustu mán­uði.

Í svörum Icelandair við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að eft­ir­spurn Banda­ríkja­manna hingað til lands hafi verið sterk og að þeir stór hluti ferða­manna sem hingað hafa komið síð­ustu mán­uði. Fréttir á borð við opnun landamæra hafi yfir­leitt jákvæð áhrif í báðar áttir og þannig finni flug­fé­lagið fyrir auknum áhuga á ferða­lögum almennt. „Eftir átt­unda nóv­em­ber verður opið á milli allra okkar mark­aðs­svæða og það skapar aukið jafn­vægi í starf­sem­inni okkar og opnar á ný tæki­færi,” segir í svari Icelandair.

Icelandair flýgur nú til níu áfanga­staða í Banda­ríkj­unum en stefnir á að þeir verði orðnir fjórtán næsta sumar.

Búðu þig undir einhverjar tafir

Þótt flug­vélar margra flug­fé­laga séu að hefja sig til flugs þá er hins vegar nokkuð víst að ferða­þjón­ustan og veit­inga­geir­inn í Banda­ríkj­unum mun mögu­lega hökta að ein­hverju leyti – að minnsta kosti fyrst í stað. Upp­sagnir hafa verið í þessum greinum, líkt og ann­ars staðar í heim­inum, og aðeins nokkra vikna fyr­ir­vari var gef­inn á opnun landamær­anna. Að manna öll störf mun taka tíma.

Hins vegar segj­ast yfir­völd til­búin að taka á móti fjölda fólks á flug­völl­unum og að skoðun skil­ríkja, bólu­setn­ing­ar­vott­orða meðal ann­ars, eigi að ganga nokkuð snurðu­laust fyrir sig. Það má þó vissu­lega búast við töfum frá því sem var fyrir heims­far­ald­ur­inn.

Í frétta­skýr­ingu New York Times um ferða­lög á þessum óvissu­tímum segja ferða­þjón­ustu­að­ilar einmitt að búast þurfi við hinu óvænta. Og að flestir eigi orðið von á því að eitt­hvað komi upp á. Þess vegna sé mælt með því að skipu­leggja ferða­lög vel, bóka gist­ingu tím­an­lega og flug sömu­leiðis. Krossa svo fingur og búast við hinu besta. Sumir ferða­menn vilja hins vegar gera þver­öf­ugt, bóka með stuttum fyr­ir­vara þegar óvissan í kringum ferða­lagið er minni.

Þessi bið gæti þó kostað sitt. Verð eru þegar farin að hækka og sum hótel á vin­sæl­ustu ferða­manna­stöð­unum eru til að mynda strax orðin full­bókuð yfir hátíð­irnar. Verð á inn­an­lands­flugi í Banda­ríkj­unum fer einnig hækk­andi og sam­kvæmt ferða­app­inu Hopper er það að nálg­ast það að vera á pari við það sem þekkt­ist í kringum jólin árið 2019. Milli­landa­flug er þó enn ódýr­ara sem kann þó að breyt­ast með auk­inni eft­ir­spurn er nær dregur des­em­ber.

Stefna á sífellt meira framboð

Icelandair segir að nú á fjórða árs­fjórð­ungi 2021 sé gert ráð fyrir að flug­fram­boðið hjá flug­fé­lag­inu verði um 65 pró­sent af því sem það var árið 2019 sem var síð­asta heila rekstr­ar­árið áður en far­ald­ur­inn skall á. „Hins vegar stefnum við á að ná upp í 80 pró­sent af fram­boði þess árs næsta vor.“

Stóri óvissu­þátt­ur­inn í ferða­lögum nútím­ans er auð­vitað þróun far­ald­urs­ins. Hvort að smitum fari að fjölga á ný, ýmist í því landi sem fólk er að ferð­ast frá eða í Banda­ríkj­unum, eða hvort hlut­irnir hald­ist í svip­uðu horfi og þá sótt­varna­að­gerðir sömu­leiðis.

[adspot]

Nýjasta smit­bylgjan skall á Banda­ríkj­unum í ágúst og hefur verið á stöðugri nið­ur­leið síð­ustu vikur. Smit­tölur eru þó enn tölu­vert hærri en þær voru snemma í sumar. Stærsta bylgjan sem gekk yfir landið hófst í byrjun nóv­em­ber í fyrra og gekk ekki niður fyrr en í byrjun febr­úar. Um 75 þús­und manns hafa greinst með veiruna dag­lega að með­al­tali síð­ustu vik­una. Bólu­setn­ingar ganga ágæt­lega og eru nú tæp­lega 60 pró­sent Banda­ríkja­manna full bólu­sett og yfir 70 pró­sent 12 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár