Bandaríkin ætla að halda ferðabanni gagnvart Evrópu til streitu enn um sinn

Íslend­ingar og aðrir Evr­ópu­búar munu ekki geta sótt Banda­ríkin heim alveg á næst­unni án þess að hafa sér­stakar und­an­þágur. Í ljósi útbreiðslu delta-afbrigðis kór­ónu­veirunnar hefur Banda­ríkja­stjórn ákveðið að halda núver­andi ferða­tak­mörk­unum í gildi.

Joe Biden Bandaríkjaforseti.
Joe Biden Banda­ríkja­for­seti. Mynd: EPA

Talsmenn banda­ríska for­seta­emb­ætt­is­ins hafa stað­fest að ferða­banni þeirra gagn­vart löndum Schengen-sam­starfs­ins verði við­haldið um sinn, vegna útbreiðslu delta-afbrigðis kór­ónu­veirunnar. Íslend­ingar munu því enn sem komið er ekki geta ferð­ast til Banda­ríkj­anna nema með sér­stökum und­an­þágum.

Reuters sagði frá þessu í dag og vís­aði til ónafn­greindra heim­ilda­manna sinna í Hvíta hús­inu. Samkvæmt frétt mið­ils­ins var fundað um málið fyrir helgi og ákveðið að ekki væri tíma­bært að lyfta neinum af núgild­andi ferða­tak­mörk­unum í Banda­ríkj­unum.

Evrópa bíður eftir að Bandaríkin opni sig

Ferða­bannið gagn­vart Schengen-ríkjum, sem Donald Trump fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti skellti á í mars í fyrra, gildir nú ein­ungis í aðra átt­ina og hefur óþreyja vaxið í Evrópu vegna þessa að und­an­förnu, en þann 18. júní ákvað leið­toga­ráð Evr­ópu­sam­bands­ins að byrja að leyfa Banda­ríkja­mönnum að ferð­ast til ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins.

[adspot]

Þá voru Íslend­ingar reyndar þegar búnir að bjóða bólu­setta Banda­ríkja­menn vel­komna um nokk­urra mán­aða skeið, rétt eins og aðra bólu­setta ferða­menn og voru Banda­ríkja­menn rúm­lega helm­ingur allra erlenda ferða­manna sem til lands­ins komu um Kefla­vík­ur­flug­völl í júní­mán­uði, sam­kvæmt tölum frá Ferða­mála­stofu.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti vakti nýlega vonir um að ferða­bann­inu yrði brátt aflétt af hálfu Banda­ríkj­anna. Í kjöl­far fundar hans með Angelu Merkel Þýska­landskansl­ara um miðjan mán­uð­inn sagði hann að það væri til umræðu og að hann yrði fær um að svara spurn­ingum um málið á kom­andi dögum.

Nú er ljóst að Banda­ríkja­stjórn þykir ekki tíma­bært að aflétta þeim hömlum á ferða­lögum til lands­ins sem hafa verið í gildi. Því er alls óljóst enn hvenær Íslend­ingar og aðrir Evr­ópu­búar geta heim­sótt Banda­ríkin án þess að hafa til þess sér­staka und­an­þágu.

Flugfélög bíða og vona

Banda­rísk flug­fé­lög eru sögð hafa beitt sér fyrir því að ferða­bann­inu yrði aflétt, en þeim hefur ekki orðið ágengt í þeirri hags­muna­gæslu sinni.

Icelandair er einnig með vænt­ingar um að það stytt­ist í opnun Banda­ríkj­anna.

Haft var eftir Boga Nils Bogasyni for­stjóra Icelandair Group í upp­gjörstil­kynn­ingu á dög­unum að vonir væru bundnar við að Banda­ríkin myndu opna fyrir ferða­lög frá Evrópu á þessum árs­fjórð­ungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár