Tíu staðreyndir um verslunarmannahelgina 2020

Nú er vika í versl­un­ar­manna­helg­ina. Ljóst er að í ár verður hún með mjög óhefð­bundnu sniði en hjá mörgum er það fastur liður að skella sér á úti­há­tíð um versl­un­ar­manna­helgi.

Þjóðhátíð hefur ekki fallið niður síðan í fyrri heimsstyrjöld.
Þjóð­há­tíð hefur ekki fallið niður síðan í fyrri heims­styrj­öld. Mynd: Birgir Þór

1. Fjöldatakmarkanir og smithætta setja strik í reikninginn

Þessa versl­un­ar­manna­helgi gilda enn fjölda­tak­mark­anir vegna COVID-19 og því mega að hámarki 500 manns koma saman. Þessar fjölda­tak­mark­anir hafa gert það að verkum að hátíðum hefur verið aflýst eða dag­skrá þeirra breytt að miklu leyti. Fjölda­tak­mark­anir verða rýmkaðar 4. ágúst og þá mega að hámarki þús­und manns koma saman.

2. Engin Þjóðhátíð í fyrsta sinn síðan í fyrri heimsstyrjöld

Ein þeirra hátíða sem ekki verður haldin í ár er Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum. Hún hefur verið haldin á hverju ári frá 1901, að heims­styrj­ald­ar­ár­unum 1914 og 1915 und­an­skildum. Eldgosið á Heimaey kom ekki í veg fyrir að hátíðin yrði haldin, en árið 1973 stóð Þjóð­há­tíð í einn dag og var hún haldin fyrir starfs­menn sem unnu að hreinsun eyj­ar­innar.

3. Ein lítil með öllu

Ein með öllu verður haldin á Akureyri en þó með gjör­breyttu sniði. Sú breyt­ing verður á hátíð­inni að ekki verða haldnir stórir úti­tón­leikar í mið­bænum né svo­kall­aðir Spari­tón­leikar sem fram áttu að fara við Sam­komu­húsið. Á fés­bók­ar­síðu hátíð­ar­innar er sagt að boðið verði upp á litla fjöl­skyldu­væna við­burði í bænum og að tryggt verði að aldrei komi fleiri en 500 saman.

4. Innipúkar geta vel við unað

Ferða­latir Reyk­vík­ingar, sem og gestir höf­uð­borg­ar­innar, geta sótt tón­list­ar­há­tíð­ina Inni­púk­ann um versl­un­ar­manna­helg­ina. Að þessu sinni fer dag­skráin fram í Gamla bíó og á skemmti­staðnum Röntgen. Þetta er í 19. sinn sem hátíðin er haldin um versl­un­ar­manna­helgi.

5. Neistinn slokknar í bili

Strax í maí var tekin sú ákvörðun að aflýsa Neista­flugi á Nes­kaup­stað. Í til­kynn­ingu á fés­bók­ar­síðu hátíð­ar­innar kemur fram að stjórn Neista­flugs telji það sam­fé­lags­lega skyldu sína að minnka mögu­leika á smit­hættu með því að aflýsa hátíð­inni sem haldin hefur verið árlega síðan árið 1993.

6. Síldarbrestur á Siglufirði

Engin form­leg dag­skrá verður um versl­un­ar­manna­helgi fyrir gesti Siglu­fjarðar. Til að lífga upp á til­ver­una hefur verið ákveðið að halda í tvær nýj­ungar sem reynd­ust vel á Síldar­æv­in­týri um versl­un­ar­manna­helgi í fyrra. Hverfi bæj­ar­ins verða hvert um sig skreytt hverf­islitum sínum og verða verð­laun veitt fyrir skreyt­ingar. Þá verða skipu­lagðar götu­grill­veislur fyrir íbúa bæj­ar­ins. Á fés­bók­ar­síðu hátíð­ar­innar er bent á að nóg verði um að vera í bænum um versl­un­ar­manna­helgi líkt og aðrar helgar sum­ars­ins

7. Vímulaus sæla í Vatnaskógi

Í Vatna­skógi halda Skóg­ar­menn KFUM Sæludaga sem er vímu­laus fjöl­skyldu­há­tíð. Dagskrá hátíð­ar­innar er í anda sum­ar­búða KFUM og KFUK og sögð höfða til flestra. Sælu­dagar hafa verið haldnir árlega frá árinu 1992 og þátt­tak­endur hátíð­ar­innar að jafn­aði ríf­lega þús­und sam­kvæmt heima­síðu Vatna­skógar. Í ár er miða­sala tak­mörkuð til að hægt sé að tryggja að ekki komi fleiri en 500 saman á svæð­inu.

8. Gestir við Ísafjarðardjúp verða í það minnsta hreinir

Þetta sum­arið hafa engar aug­lýs­ingar dunið á áhuga­fólki um mýr­ar­bolta þar sem það er hvatt til að drulla sér vestur um versl­un­ar­manna­helgi. Ástæðan er sú að Evr­ópu­mót í mýr­ar­bolta fer ekki fram í ár en það hefur verið haldið á Ísafirði og í Bol­ung­ar­vík á hverju ári síðan árið 2004.

9. Unglingalandsmóti frestað um ár

Ung­linga­lands­mót UMFÍ hafa verið haldin reglu­lega frá árinu 1992 og á hverju ári frá árinu 2002. Í ár átti Ung­linga­lands­mótið að fara fram á Selfossi um versl­un­ar­manna­helg­ina en því hefur verið frestað um ár. Til stóð að keppt yrði í ýmsum keppn­is­greinum. Auk íþrótta­greina er til að mynda keppt í köku­skreyt­ingum, staf­setn­ingu og upp­lestri.

10. Margir verða á faraldsfæti

Þrátt fyrir að skipu­lögð dag­skrá yfir versl­un­ar­manna­helgi hafi breyst í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs er ljóst að margir verða á far­alds­fæti. Á síð­asta upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna sagði Karl Steinar Valsson yfir­lög­reglu­þjónn nokkuð ljóst að versl­un­ar­manna­helgi, sem og þessi helgi, verði nokkur áskorun fyrir lög­regl­una í land­inu. Hann brýndi sér­stak­lega fyrir fólki að virða þær reglur sem eru í gildi auk þess sem hann hvatti fólk til að virða tveggja metra regl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár