Þriðjungur ferðagjafa nýttur í gistingu

Alls hafa um 311 millj­ónir verið greiddar út í formi ferða­gjafar rík­is­stjórn­ar­innar. Margir hafa valið að nota ferða­gjöf­ina sína til að kaupa skyndi­bita en mest hefur þó runnið til gisti­staða ef horft er til ein­stakra flokka.

Af þeim 311 milljónum sem útleystar hafa verið í formi ferðagjafar hafa um 100 milljónir runnið til gististaða.
Af þeim 311 millj­ónum sem útleystar hafa verið í formi ferða­gjafar hafa um 100 millj­ónir runnið til gisti­staða. Mynd: Pexels

Alls hafa Íslend­ingar nýtt rétt rúm­lega 100 millj­ónir af ferða­gjöf stjórn­valda til að kaupa sér gist­ingu sam­kvæmt upp­lýs­ingum um ferða­gjöf­ina sem skoða má á mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar. Sú upp­hæð er um þriðj­ungur af heild­ar­upp­hæð­inni sem greidd hefur verið út í formi ferða­gjafar en alls hafa Íslend­ingar greitt rétt tæpar 311 millj­ónir fyrir vöru og þjón­ustu með ferða­gjöf­inni. Næst stærsti flokk­ur­inn, á eftir gist­ingu, er afþrey­ing en um 92 millj­ónir hafa verið nýttar í afþrey­ing­ar­tengda ferða­þjón­ustu.

Það svæði sem tekið hefur við mestu er Höf­uð­borg­ar­svæðið, alls 74 millj­ónum. Nú er kom­inn nýr flokkur í svæða­skipt­ing­una sem kall­ast ein­fald­lega „Allt landið“ og er sá flokkur næst­stærstur, til fyr­ir­tækja í þeim flokki hafa runnið 58 millj­ónir. Þar á eftir kemur Suð­ur­land með 46 millj­ónir. Lang­sam­lega minnstur er flokkur fyr­ir­tækja á hálend­inu en til þeirra hefur runnið rúm­lega hálf milljón króna. Næst fyrir ofan hálendið koma Vest­firðir en fyr­ir­tæki á Vest­fjörðum hafa tekið á móti tæp­lega ell­efu millj­ónum króna.

Milljónir í skyndibita

Af ein­stökum fyr­ir­tækjum sem tekið hafa á móti stærstum upp­hæðum er Icelandair Hotels í efsta sæti. Þangað hafa runnið tæpar 14,5 millj­ónir króna. Næst á eftir kemur Flyover Iceland sem hefur tekið á móti tæpum 12,9 millj­ónum króna og í þriðja sæti er Íslands­hótel hf. sem hefur tekið á móti tæpum 12,8 millj­ónum króna.

Íslend­ingar hafa verið dug­legir að inn­leysa ferða­gjafir sínar á skyndi­bita­stöðum og hafa verið fluttar af því fréttir. Meðal þeirra skyndi­bita­fyr­ir­tækja sem tekið hafa á móti flestum ferða­gjöfum eru meðal ann­ars Domino’s með 4,7 millj­ónir, KFC með 3,9 millj­ónir, Hlölla­bátar með 3,1 milljón og Grill­húsið með 2,7 millj­ónir.

Gert ráð fyrir að úrræðið kosti 1,5 milljarð

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir um ferða­gjöf­ina: „Ferða­gjöfin er hluti af aðgerða­pakka stjórn­valda og liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferða­þjón­ustu í kjöl­far COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Þannig er greinin efld sam­hliða því að lands­menn eru hvattir til að eiga góðar stundir á ferða­lagi víðs vegar um landið.“

Allir sem hafa lög­heim­ili á Íslandi, fæddir árið 2002, eða fyrr, geta fengið ferða­gjöf­ina. Áætl­aður kostn­aður rík­is­sjóðs vegna ferða­gjaf­ar­innar er um 1.500 millj­ónir króna en nú er búið að nýta rúman fimmt­ung af þeirri fjár­hæð. Ferða­gjöf­ina þarf að nýta fyrir árs­lok 2020.

Nánari upp­lýs­ingar um notkun ferða­gjaf­ar­innar má nálg­ast á Mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár