Afsláttur af skimunargjaldi ef greitt er fyrirfram

Þeir sem ferð­ast til lands­ins frá1. júlí munu geta greitt fyrir skimun fyr­ir­fram. Ef greitt er fyr­ir­fram fæst tvö þús­und króna afsláttur af 11 þús­und króna skimun­ar­gjald­inu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ferða­menn sem koma til lands­ins frá 1. júlí munu geta greitt fyrir skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli og öðrum landamæra­stöðvum raf­rænt áður en þeir fara af stað. Gjaldið verður þá 9 þús­und krónur, en 11 þús­und krónur fyrir þá sem kjósa að greiða fyrir skimun­ina við kom­una til lands­ins.

Þetta kom fram í máli Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu í dag, þar sem rætt var um skimun fyrir kór­ónu­veirunni á landa­mærum.

Katrín sagði að fylgst yrði með því hvort gjald­takan myndi hafa fæl­ing­ar­á­hrif fyrir ferða­fólk, en stjórn­völd hefðu ákveðið að nauð­syn­legt væri að inn­heimta gjald fyrir skimun­ina til þess að mæta þeim kostn­aði sem til fellur við hana.

For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist einnig með­vituð um að margir hefðu nú áhyggjur af því smiti sem nú hefur komið upp hér inn­an­lands, sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að sé senni­lega eitt stærsta rakn­ing­ar­mál sem rakn­ing­arteymið hefur feng­ist við.

Eins og fram hefur komið eru nú á þriðja hund­rað ein­stak­linga í sótt­kví vegna sam­skipta við einn ein­stak­ling, knatt­spyrnu­konu sem kom frá til Íslands frá Banda­ríkj­unum 18. júní. Að minnsta kosti einn ein­stak­lingur hefur greinst með stað­fest smit sem rakið var til kon­unnar og er það fyrsta inn­an­lands­smitið sem grein­ist síðan í maí.

Katrín sagði að þessi smit minntu á að fólk þyrfti að halda vöku sinni, stríð­inu við veiruna væri ekki lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár