Engin smit út frá bólusettum með virkt smit – „Hver er þá áhættan? Mikil eða lítil?“

Ellefu bólu­settir ein­stak­lingar hafa greinst með veiruna á landa­mær­unum. Engin smit hafa hins vegar greinst út frá þeim. Sótt­varna­læknir segir enn óvíst hvort smit­hætta fylgi bólu­settum með smit en að hún sé „alveg örugg­lega“ minni en frá óbólu­settum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Á tæp­lega þriggja mán­aða tíma­bili, frá 1. apríl til 21. júní, hafa 72 af um 66 þús­und far­þegum greinst með virkt smit á landa­mær­unum. Af þeim voru ell­efu með vott­orð um bólu­setn­ingu. Það þýðir að 0,03 pró­sent af far­þegum sem fram­vís­uðu bólu­setn­ing­ar­vott­orði, sem voru um 42 þús­und, reynd­ust sýktir. Engin smit hafa hins vegar greinst út frá þessum full­bólu­settu ein­stak­lingum, segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, og ekki heldur út frá fólki sem hefur fram­vísað vott­orði um fyrri sýk­ingu. „Þannig að þó að bólu­sett fólk sé að grein­ast þá vitum við ekki hvað það þýðir í raun og veru.“

[adspot]

Í frétt RÚV í morgun kom fram að bólu­sett banda­rísk hjón, sem voru að koma hingað í brúð­kaups­ferð, hefðu greinst með veiruna á landa­mær­unum og dvelji nú í far­sótt­ar­húsi. Þórólfur segir að þó að dæmin sýni að bólu­settir geti fengið veiruna í sig sé það, miðað við þær upp­lýs­ingar sem liggi þegar fyrir erlendis frá, miklu minna smit­andi en óbólu­settir. „Öll smitin sem við höfum séð hér inn­an­lands og tengjum við landa­mærin á þessum tíma eru frá fólki sem hefur fram­vísað nei­kvæðu PCR-vott­orði,“ segir Þórólfur. Það þurfa aðeins þeir að gera sem ekki eru full­bólu­settir. „Það fólk hefur þurft að fara í tvær skimanir með fimm daga sótt­kví á milli en hélt ein­hverra hluta vegna ekki sótt­kví eða ein­angrun nógu vel og olli þannig smitum.“

[links]Allir sem grein­ast með virkt smit á landa­mær­unum þurfa að fara í ein­angrun. Það á því einnig við um þá sem hingað koma full­bólu­settir. Þórólfur segir að þrátt fyrir að smit­hætta frá þeim ein­stak­lingum sé talin lítil vilji yfir­völd fara að öllu með gát. Það sé enn­fremur í sam­ræmi við ráð­legg­ingar Sótt­varna­stofn­unar Evrópu og Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar. „Það er gert á meðan menn eru að átta sig á því til fulls hver smit­hættan er.“ Hún geti verið ein­hver en hversu mikil sé enn ekki vitað.

Þórólfur segir „allan gang á því“ hvort og þá hversu mikil ein­kenni bólu­settir fái sýk­ist þeir af veirunni. Hann minnir á að bólu­efni veiti ekki 100 pró­sent vörn. „Bólu­setn­ing er nán­ast hund­rað pró­sent hvað varðar að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi en svo er ein­hver hætta á að bólu­sett fólk fái í sig veiruna og finni lítil og jafn­vel engin ein­kenni. Og við vitum ekki hver áhættan er á frek­ari útbreiðslu hjá þessum ein­stak­lingum. Hún er alveg örugg­lega minni en frá óbólu­settum.“

Því sé brýnt, á meðan verið er að ná betra ónæmi í sam­fé­lag­inu með bólu­setn­ingum, að fara gæti­lega.

Stendur til að hætta að skima bólu­setta við landa­mærin fyrsta júlí?

„Ég er að fara að skila minn­is­blaði og eins og áður vil ég ekki tala um þær til­lögur sem ég kem með til ráð­herra. Það er hún sem vegur þær og metur og kemur síðan með end­an­lega nið­ur­stöðu í það mál.“

Er ekki ráð­leg­ast að halda áfram að skima bólu­setta, fyrst að enn eru að grein­ast smit meðal þeirra?

Þórólfur minnir á hversu fá slík til­felli hafa verið und­an­farna mán­uði. „Það eru 0,03 pró­sent af bólu­settum sem grein­ast með smit. Og engin smit út frá þeim. Hver er þá áhættan? Mikil eða lítil?“

Hann segir vinnu við sýna­tökur á landa­mær­unum mikla og dýra og krefj­ast mjög mik­ils mann­afla. „Núna til dæmis erum við í vand­ræðum með mann­skap á landa­mærum til að sinna þeim verk­efnum sem þar þarf að sinna.“ Fólk sé að hverfa til ann­arra starfa, m.a. innan ferða­þjón­ust­unnar. „Við þurfum að aðlaga okkur að þeim aðstæðum líka.“

Spurður um hvaða afbrigði veirunnar séu að grein­ast á landa­mær­unum nefnir hann að aðeins tveir ferða­menn, báðir bólu­settir, sem voru að fara úr landi, hefðu greinst með hið svo­kall­aða Delta-afbrigði sem fyrst upp­götv­að­ist á Indlandi. „En það hefur engin dreif­ing orðið út frá þeim.“

Þórólfur bendir á að vegna þess að bólu­setn­ing veitir ekki 100 pró­sent vörn gegn sýk­ingu af veirunni sé ákveðin óvissa fólgin í því að ferð­ast bólu­settur til landa þar sem veiran er útbreidd í augna­blik­inu. „Fólk getur smit­ast, en það er ólík­legt að fólk veik­ist alvar­lega í kjöl­farið, mjög ólík­legt.“ Það geti hins vegar borið með sér veiruna án þess að vita af því „og komið með hana heim. Þannig er staðan“.

Sótt­varna­yf­ir­völd ráð­leggja óbólu­settum frá því að fara í ónauð­syn­leg ferða­lög til útlanda og þá sér í lagi áhættu­svæða. Það á einnig við um börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár