Novak Djokovic: Baráttumaður eða forréttindapési?

Tenn­is­stjarnan Novak Djokovic er í varð­haldi á flótta­manna­hót­eli í Melbourne þar sem vega­bréfs­á­ritun hans var ekki tekin gild við kom­una til lands­ins. Málið hefur vakið upp margar spurn­ingar, ekki síst um bólu­setn­ingar og for­rétt­inda­stöðu frægs fólks.

Novak Djokovic hefur kært yfirvöld í Ástralíu fyrir að meta vegabréfsáritun hans ógilda. Djokovic, sem er óbólusettur, fékk undanþágu til að keppa á Opna ástralska meistaramótinu í tennis en áströlsk yfirvöld segja læknisfræðilegar ástæður ófullnægjandi.
Novak Djokovic hefur kært yfir­völd í Ástralíu fyrir að meta vega­bréfs­á­ritun hans ógilda. Djokovic, sem er óbólu­settur, fékk und­an­þágu til að keppa á Opna ástr­alska meist­ara­mót­inu í tennis en áströlsk yfir­völd segja lækn­is­fræði­legar ástæður ófull­nægj­andi. Mynd: EPA

Djokovic, sem er einn fremsti tenn­is­spil­ari heims í karla­flokki, stefnir á þátt­töku á Opna ástr­alska meist­ara­mót­inu sem hefst í Melbourne 17. jan­úar. Bólu­setn­ing er skil­yrði fyrir þátt­töku en Djokovic er óbólu­settur og hefur talað gegn bólu­setn­ingum. Hann sótti um und­an­þágu sem yfir­völd í Viktoríu-fylki veittu honum, líkt og nokkrum öðrum kepp­endum. Þegar Djokovic kom til lands­ins á mið­viku­dag var honum hins vegar meinuð inn­ganga í landið af landamæra­vörðum. Djokovic hefur kært ákvörð­un­ina og mun dóm­stóll skera úr um á morgun, mánu­dag, hvort honum verði vísað úr landi eða ekki.

Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, var í fyrstu hlynntur ákvörðun yfir­valda í Viktoríu-fylki um að veita Djokovic und­an­þágu en skipti síðar um skoðun þar sem hann sagði að eng­inn ætti að vera haf­inn yfir gild­andi reglur. Und­an­þágan er veitt af lækn­is­fræði­legum ástæðum og fyrst um sinn var ekki gefið upp á hvaða for­sendum und­an­þágan var veitt en í rétt­ar­skjölum sem gerð voru opin­ber í gær kemur fram að Djokovic hefði smit­ast af Covid-19 16. des­em­ber og því hafi und­an­þágan verið sam­þykkt af Tenn­is­sam­bandi Ástralíu. Athygli vekur að á Twitter-síðu Djokovic má sjá færslu frá 17. des­em­ber þar sem hann tekur á móti við­ur­kenn­ingu í Serbíu fyrir afrek sín, grímu­laus.

Lagaleg og pólitísk flækja

Morrison hefur verið sak­aður um að gera und­an­þágu­beiðni Djokovic að póli­tísku máli. Aðgerðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa verið hvað harðastar í Ástralíu þar sem íbúar hafa búið við strangar tak­mark­anir svo mán­uðum skiptir. Um 90 pró­sent Ástrala eru bólu­settir en sótt­varna­reglur voru aftur hertar nýlega vegna ómíkron-afbrigð­is­ins. Auk þess eru strangar reglur á landa­mær­unum þar sem aðeins tví­bólu­settum ein­stak­lingum eða þeim sem hafa lækn­is­fræði­lega und­an­þágu frá bólu­setn­ingu er hleypt inn í landið. Morrison er undir þrýst­ingi, þing­kosn­ingar fara vænt­an­lega fram í maí, en for­sæt­is­ráð­herr­ann þver­tekur fyrir að aft­ur­köllun vega­bréfs­á­rit­unar Djokovic hafi eitt­hvað með tengsl Ástralíu við Serbíu að gera.

[adspot]Forseti Serbíu, Aleksandar Vucic, er á öðru máli þar sem hann segir Djokovic fórn­ar­lamb áreitni. Jóla­há­tíð rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar stendur yfir um þessar mundir og sendi æðsti biskup serbnesku rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu til Djokovic í predikun sinni þar sem hann segir millj­ónir Serba biðja fyrir honum.

Djokovic hefur einmitt vakið athygli fyrir það á íþrótta­ferli sínum að biðja bænir, meðal ann­ars í þeim til­gangi að hreinsa mengað vatn. Þá hefur hann setið inni í egg­laga belg á stór­mótum í þeim til­gangi að auka blóð­streymi lík­am­ans og auka fram­leiðslu rauðra blóð­korna. Þessar óhefð­bundnu aðferðir Djokovic hafa mest megnis vakið upp kátínu meðal stuðn­ings­manna hans. Þar til nú.

Umræða um bólu­setn­ingar virð­ist ekki falla vel inn í íþrótta­heim­inn. Mál Djokovic hefur sett af stað umræðu um að íþrótta­fólk eigi ekki að fá und­an­þágu ein­ungis vegna stöðu sinnar. Íþrótta­fólk hefur hingað til, ekki síst fyrir til­stuðlan sam­fé­lags­miðla, getað komið skoð­unum sínum óáreitt á fram­færi svo lengi sem þær skaða ekki aðra. En þegar skoð­un­unum fylgir að fara eftir öðrum reglum en allir aðrir breyt­ist staðan.

„Almenn­ingur heldur áfram að bregð­ast vel við þegar íþrótta­fólk tjáir sig um mál­efni sem hafa sam­fé­lags­leg áhrif og hafa jákvæð áhrif á líf fólks,“ segir Michael Lynch, fyrr­ver­andi yfir­maður mark­aðs­mála íþrótta hjá Visa, í sam­tali við blaða­mann New York Times. Lynch hefur einnig starfað sem ráð­gjafi í íþrótta­heim­inum um langa hríð og segir hann það vera nei­kvæða þróun ef ein­hverjir ætli að taka afstöðu með skoð­unum sem geta stofnað lífi fólks í hættu.

Rafael Nadal, helsti keppi­nautur Djokovic, er á meðal þeirra sem hafa tjáð sig um þá stöðu sem upp er komin. Nadal segir Djokovic frjálst að taka eigin ákvarð­anir. „En það eru afleið­ingar og mér líkar ekki við þá stöðu sem er komin upp,“ sagði Nadal á blaða­manna­fundi. Hann seg­ist finna til með Djokovic að vissu leyti en að hann hafi vitað með margra mán­aða fyr­ir­vara að bólu­setn­ing væri skylda fyrir þátt­töku á mót­inu. „Heim­ur­inn hefur þjáðst of mikið til að þurfa að sætta sig við þá sem fara ekki eftir settum reglum,“ sagði Nadal og yppti öxlum, furðu lost­inn yfir ástand­inu.

Umdeilt innflytjendahótel

For­eldrar Djokovic hafa einnig tjáð sig um stöð­una og segja þau Djokovic vera fanga ástr­al­skra yfir­valda. Flótta­menn og hæl­is­leit­endur hafa verið vistaðir á hót­el­inu sem Djokovic dvelur á og hafa stuðn­ings­menn hans safn­ast saman fyrir utan hót­elið. En þar hafa einnig aðgerða­sinnar í inn­flytj­enda­málum komið saman þar sem þeir von­ast til að dvöl Djokovic á hót­el­inu veki athygli á slæmri aðstöðu sem inn­flytj­endur og hæl­is­leit­endur hafa þurft að búa við á hót­el­inu.

Mohammad Joy Miah hefur dvalið á hót­el­inu í nokkurn tíma og seg­ist vera and­lega nið­ur­brot­inn. „Ég hef hvorki fengið að fara út í dags­birt­una eða andað að mér fersku lofti. Líf mitt er her­bergið,“ segir hann í sam­tali við BBC. Þá deildi hann mynd af mat sem hann fékk sendan upp á her­bergi í lok des­em­ber en þar mátti finna maðk. „Ég borð­aði tvo eða þrjá sem voru í brokkolí­inu mínu áður en vörð­ur­inn sam­þykkti að fjar­lægja mál­tíð­ina,“ segir hann. Vera Djokovic á hót­el­inu hefur óneit­an­lega vakið athygli, en til­finn­ingar þeirra sem einnig eru á hót­el­inu eru blendnar. „Fjöl­miðlar munu fjalla meira um okkur og lík­lega heim­ur­inn allur, bara af því að Djokovis verður hérna í nokkra daga, sem er í raun mjög sorg­legt,“ segir Mehdi Ali, hæl­is­leit­andi sem dvelur á hót­el­inu. Hann hefur rætt við fjöl­marga fjöl­miðla um mál Djokovic og er gagn­rýn­inn á þá í færslu á Twitter. „Ég er búinn að vera í búri í níu ár, ég er 24 ára í dag og eina sem þið viljið tala um við mig er þetta [mál Djokovic],“ tísti Mehdi Ali á afmæl­is­dag­inn sinn á fimmtu­dag.

Hver verður niðurstaðan?

En mun Djokovic geta talað sig inn á Opna ástr­alska meist­ara­mótið? Það gæti skýrst á mánu­dag þegar ákvörðun yfir­valda um að vísa honum úr landi verður tekin fyrir. Mótið er mik­il­vægt fyrir Djokovic sem á mögu­leika á vinna það í tíunda skipti og tekið þannig fram úr sínum helstu keppi­nautum, Rafael Nadal og Roger Federer, en allir þrír hafa unnið 20 risa­mót í tennis.Stað­reyndin að Djokovic er á meðal fremstu og þekkt­ustu tenn­is­spil­ara heims skiptir máli í stóra sam­heng­inu. „Allir vissu að hann væri vænt­an­legur og ég held að það sé ekki ásætt­an­legt ef rík­is­stjórnin segir að hún hafi ekki vitað mála­vöxtu fyrr en hann kom til Ástralíu. Þau leyfðu honum að fara um borð í flug­vél­ina.“ segir Mary Crock, sér­fræð­ingur í inn­flytj­enda­lögum við Háskól­ann í Sydney, í sam­tali við BBC.

Fyr­ir­liggj­andi gögn benda til að Djokovic mun að öllum lík­indum ekki hafa betur í dóm­sal á morgun. En ef það verður nið­ur­staðan, til að mynda ef dóm­ar­inn snýr við ógild­ingu yfir­valda á vega­bréfs­á­ritun Djokovic verður honum frjálst að koma inn í landið og gefst þá vika til að und­ir­búa sig fyrir mótið, svo lengi sem yfir­völd aðhaf­ast ekki frekar í mál­inu.

Ef hann hins vegar tapar mál­inu gæti hann vísað því til áfrýj­un­ar­dóm­stóls. Það gæti þó reynst dýr­keypt þar sem það mun að öllum lík­indum taka um viku að koma mál­inu á dag­skrá og þá verður Djokovic enn í mála­ferlum þegar mótið hefst, í engri leikæf­ingu og enn á flótta­manna­hót­el­inu umdeilda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár