Bólusetning barna nauðsynleg til að koma í veg fyrir alvarleg veikindi að mati sóttvarnalæknis

Öll rök hníga að því að bólu­setn­ing barna sé nauð­syn­leg til að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi að sögn sótt­varna­læknis. Eitt barn á fyrsta ári liggur inni á spít­ala með COVID-19. Sótt­varna­læknir mun mögu­lega leggja til harð­ari aðgerðir á næstu dögum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir öll rök hníga að því að bólusetning barna sé nauðsynleg til að koma í veg fyrir alvarleg veikindi.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir öll rök hníga að því að bólu­setn­ing barna sé nauð­syn­leg til að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi. Mynd: Bára Huld Beck

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir fór yfir áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á börn hér á landi á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Bólu­setn­ing 5-11 ára barna hófst í Laug­ar­dals­höll í vik­unni og vildi sótt­varna­læknir fara yfir atriði sem tengj­ast ann­ars vegar börnum sem veikj­ast af COVID-19 og hins vegar að því sem snýr að bólu­setn­ingum barna. Eitt barn á fyrsta ári er á Land­spít­ala vegna COVID-19 sem stendur.

Alvarlegar aukaverkanir hjá börnum eftir COVID þrisvar sinnum hærri en eftir bólusetningu

Þórólfur segir öll rök hníga að því að bólu­setn­ing barna sé nauð­syn­leg til að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi þeirra.

[adspot]Frá því að far­ald­ur­inn braust út hér á landi fyrir tæpum tveimur árum hafa tíu börn yngri en 16 ára hafa þurft á inn­lögn að halda af völdum COVID-19 af um 9.300 börnum sem hafa greinst, eða 0,1 pró­sent. Tvö börn hafa lagst inn á gjör­gæslu með COVID-19. Að auki hafa hund­ruð barna verið í nánu eft­ir­liti barna­spít­al­ans vegna veik­inda af völdum COVID-19 en ekki þurft á inn­lögn að halda.

[links]Hins vegar hefur eitt barn, 17 ára, þurft að leggj­ast inn vegna auka­verk­ana eftir bólu­setn­ingu. Þá hafa sex til­kynn­ingar borist um alvar­legar auka­verk­anir sem tengj­ast bólu­setn­ingu af um 22 þús­und bólu­setn­ingum eða 0,03%.

„Þannig er ljóst að hér á landi eru alvar­legar auka­verk­anir hjá börnum eftir COVID að minnsta kosti þrisvar sinnum hærri en eftir bólu­setn­ingu. Þetta er í sam­ræmi við reynslu og upp­gjör erlendis, bæði í Banda­ríkj­unum og Danmörku,“ sagði Þórólfur í yfir­ferð sinni á upp­lýs­inga­fund­inum.

Leggur mögulega fram hertar aðgerðir á næstu dögum

Varðandi stöð­una á far­aldr­inum almennt segir Þórólfur að til greina komi að hann leggi til hertar aðgerðir í vik­unni. Núgild­andi sótt­varna­reglur voru fram­lengdar um þrjár vikur í gær og eru í gildi til 2. febr­úar en það gæti mögu­lega breyst. Þórólfur horfir samt sem áður björtum augum til fram­tíðar.

„Þó útlitið sé kannski ekki bjart akkúrat þessa stund­ina varð­andi COVID-19 hér á landi þá held ég að til lengri tíma litið sé útlitið bjart og þá er ég að tala um næstu vikur eða mán­uði. Með útbreiddri bólu­setn­ingu sem kemur í veg fyrir alvar­leg veik­indi en einnig að hluta í veg fyrir smit þá getum við sætt okkur við ákveð­inn fjölda smita í sam­fé­lag­inu þannig að almenn veik­indi sligi ekki heil­brigð­is­kerfið og ýmsa inn­viði. Okkur mun þannig takast að auka hér ónæmi í sam­fé­lag­inu hægt og bít­andi sem gerir okkur kleift að slaka á ýmsum tak­mörk­unum í sam­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár