Sóttvarnareglur framlengdar um þrjár vikur

Núgild­andi sótt­varna­reglur, sem gilda til 12. jan­úar, verða fram­lengdar um þrjár vikur. Rík­is­stjórnin ræddi nýtt minn­is­blað sótt­varna­læknis á fundi sínum fyrir hádegi og féllst á til­lögur hans um fram­leng­ingu aðgerða.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fór að ráðum sóttvarnalæknis í minnisblaði sem barst honum í gær og framlengdi gildandi sóttvarnareglur um þrjár vikur.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra fór að ráðum sótt­varna­læknis í minn­is­blaði sem barst honum í gær og fram­lengdi gild­andi sótt­varna­reglur um þrjár vikur. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég held að við þurfum að taka á honum stóra okkar enn um sinn,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í hádeg­inu. Minn­is­blað sótt­varna­læknis sem hann skil­aði til heil­brigð­is­ráð­herra síð­degis í gær var til umræðu á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun sem sam­þykkti að fara eftir til­lögum sótt­varna­læknis í einu og öllu, það er að fram­lengja gild­andi tak­mark­anir um þrjár vikur.

Aðgerð­irnar fela í sér áfram­hald­andi 20 manna sam­komu­tak­mark­anir, með und­an­tekn­ingu varð­andi 50 gesti á sitj­andi við­burðum og 200 gesti með nei­kvætt hrað­próf. Tveggja metra nálægð­ar­tak­mörk verða áfram í gildi og grímu­skylda þar sem ekki er unnt að tryggja tveggja metra regl­una. Sótt­varna­reglur hvað varðar skóla­starf mið­ast áfram við 50 nem­endur. Þá mega veit­inga­staðir með vín­veit­inga­leyfi, skemmti­staðir og krár hafa opið til klukkan 21 en allir gestir þurfa að hafa yfir­gefið stað­inn klukkan 22. Skíða­svæði, sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða opnar fyrir 50% af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta.

Núgild­andi sótt­varna­reglur, sem hafa verið í gildi frá því á Þor­láks­messu, renna út á morgun en verða fram­lengdar til 2. febr­úar. Aðgerðir voru hertar vegna fjölda smita, ekki síst vegna ómíkron-afbrigð­is­ins, sem greind­ist hér á landi í des­em­ber en hvert smit­metið var slegið á fætur öðru í aðdrag­anda jóla og náði hámarki 30. des­em­ber þegar 1.553 smit greindust inn­an­lands og á landa­mærum.

Um 20 þús­und manns hófu árið í ein­angrun eða sótt­kví og á föstu­dag tóku gildi breyttar reglur um sótt­kví þar sem þrí­bólu­settir eru und­an­þegnir hefð­bund­inni sótt­kví. Reglunum var breytt af fag­legum ástæðum að sögn sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra sagði breyt­ing­arnar gerðar til að halda sam­fé­lag­inu gang­andi eins og fram­ast er kostur.

„Við erum ekki öll heilbrigð“

1.191 smit greind­ist inn­an­lands í gær og 41 á landa­mær­unum, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum frá almanna­vörnum. Kona á níræð­is­aldri lést á Land­spít­ala með COVID-19 í gær. 41 hefur látið lífið frá því að far­ald­ur­inn braut út fyrir tæpum tveimur árum, þar af fjórir á fyrstu dögum þessa árs. Í dag eru 39 á Land­spít­ala með COVID-19. Sjö eru á gjör­gæslu og fjórir þeirra í önd­un­ar­vél. Með­al­aldur þeirra sem eru á spít­ala er 64 ár.

Már Krist­jáns­son, for­stöðu­maður lyf­lækn­inga og bráða­þjón­ustu Land­spít­ala, bendir á að hér á landi er ekki eins­leitur hópur af heil­brigði fólki. Í dag liggja til að mynda tveir á COVID-deild Land­spít­ala sem eru alla jafna í skilun, þá er einnig líf­færa­þegi, sjúk­lingur með sprung­inn botn­langa og barns­haf­andi konur. Þetta kom fram í máli Más áopnum fundi vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í morgun þar sem fram­kvæmd sótt­varna­að­gerða var til umræðu.

Már sagði mik­il­vægt að allir geri sér grein fyrir því að ekki er um eins­leitan hóp af heil­brigðu fólki að ræða í íslensku sam­fé­lagi heldur sam­bland af fólki með lang­vinn veik­indi sem gerir það að verkum að mjög mörg okkar standa höllum fæti. Að mati Más það skiptir höf­uð­máli að útbreiðsla bólu­setn­inga í sam­fé­lag­inu sé með þeim hætti sem stefnt er að þar sem hún dregur úr hættu á alvar­legum veik­indum hjá fólki sem stendur höllum fæti. „Fólk þarf að hafa það í huga, við erum ekki öll heil­brigð,“ sagði Már.

Varhugavert að stytta einangrun frekar að mati sóttvarnalæknis

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sat einnig fyrir svörum á fund­inum þar sem hann var meðal ann­ars spurður út í mögu­leika þess að stytta ein­angrun smit­aðra frekar, en hún hefur nú þegar verið stytt úr tíu dögum í sjö. Þórólfur sagði það var­huga­vert þar sem það auki hættu á frek­ari útbreiðslu veirunnar.

[links]„Mín fram­tíð­ar­sýn er sú að við þurfum að búa við ein­hverjar tak­mark­anir núna til þess að halda far­aldr­inum í skefjum,“ sagði Þórólfur. Hann sagði marga hafa talað niður þær aðgerðir sem gripið hefur verið til und­an­farið og að þær hafi ekki skilað neinu. „Það er bara ekki rétt. Vegna þess að ef að við hefðum ekki verið með þessar aðgerðir þá hefði far­ald­ur­inn verið í veld­is­vexti, hann er í línu­legum vexti vegna þess að við erum með sama fjölda smita á dag,“ sagði Þórólfur, sem telur mögu­legt að hjarð­ó­næmi mynd­ist á næstu vikum eða mán­uðum.

Að hans mati má lítið út af bregða svo afleið­ing­arnar far­ald­urs­ins verði alvar­legar. Þá segir hann raun­hæft að stefna að 500 smitum og einum til tveimur inn­lögnum á spít­ala á dag. „Ef við missum þol­in­mæð­ina og fáum gjör­sam­lega nóg af þessu öllu saman og viljum bara hætta þessu þá fáum við þetta í bakið aftur, því miður,“ sagði sótt­varna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár