Þórólfur veit af þreytunni – ekki þýði þó að „loka augum og eyrum“

Enn einn upp­lýs­inga­fund­ur­inn. 22.086 til­fellum eftir að fyrsta kór­ónu­veirusmitið greind­ist fyrir 22 mán­uðum. Veiran er „sniðug og virð­ist alltaf ná að leika á okkur,“ segir land­læknir. „Áfram veg­inn,“ segir Víðir.

Þríeykið: Víðir, Þórólfur og Alma á upplýsingafundi dagsins.
Þríeykið: Víðir, Þórólfur og Alma á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Almannavarnir

„Þá erum við hér eina ferð­ina enn og veiran að trufla jóla­haldið, því miður,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi sem hald­inn var í dag, á Þor­láks­messu. Þetta er fyrsti upp­lýs­inga­fund­ur­inn sem hald­inn er vegna heims­far­ald­urs­ins í 48 daga. Slíkur fundur var síð­ast hald­inn 5. nóv­em­ber. Þá höfðu liðið tæpir þrír mán­uðir á milli funda.

Þríeykið hefur þó engu gleymt. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn heils­aði með sinni gleði­legu kveðju: „Góðan og bless­aðan dag­inn“. Hann lauk svo fund­inum einnig eins og svo aftur áður með því að stappa stál­inu í þjóð­ina við skjá­inn. Hvetja fólk til að passa upp á hvert annað og standa saman.

[adspot]

Sam­staðan var tölu­vert rædd á fund­inum. Og þreytan. Þreyta eftir langan óvissu­tíma. Þríeykið var þó sam­mála um að sam­staðan væri ekki að rofna. Enda þýddi ekk­ert, að sögn sótt­varna­læknis, að „loka augum og eyrum“ við ástand­inu.

Fyrsta til­fellið af kór­ónu­veirunni var stað­fest hér á landi 28. febr­úar árið 2020. Síðan þá eru liðnir 22 mán­uðir og frá þeim tíma hafa 22.087 smit greinst. 37 hafa lát­ist á Íslandi vegna COVID-19.

Í gær greindust 494 með kór­ónu­veiruna. Smitin voru lang­flest inn­an­lands en þó fjöl­mörg á landa­mær­unum eða 51. Níu liggja á sjúkra­húsi með COVID-19 þar af þrír á gjör­gæslu og eru þeir allir í önd­un­ar­vél.

„Við höfum áfram mestar áhyggjur af því að álagið á heil­brigð­is­kerfið verði of mikið því okkar hættu­mat bendir til að það geti orðið raunin,“ sagði Víðir. Smitrakn­ing nái ekki að anna álagi í augna­blik­inu og einnig var á fund­inum nefnt að eitt for­gangs­at­riði væri að efla COVID-göngu­deild­ina, m.a. með auk­inni sjálf­virkni og spurn­inga­listum til smit­aðra.

Hinn óútreiknanlegi faraldur

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir minnti á, líkt og oft áður, að far­ald­ur­inn væri óút­reikn­an­legur og því þurfi stöðugt að aðlaga sótt­varna­að­gerðir í takti við það. „Síð­ast­liðið sumar heldum við að okkur væri að takast að vinna bug á veirunni með tveimur bólu­setn­ingum fyrir hvern ein­stak­ling. En það reynd­ist ekki vera raunin.“

Delta-afbrigðið hafi reynst skæð­ara en þau fyrri og bólu­setn­ing dugar ekki til að halda smitum í skefjum. Þá var gripið til þess að hefja örv­un­ar­bólu­setn­ingu. „Það virk­aði mjög vel og allt stefndi í að okkur myndi takast að hamla útbreiðslu veirunnar. Því miður var raunin önnur með til­komu nýs afbrigðis, ómíkron, sem hefur komið með leift­ur­hraða inn á sjón­ar­sviðið með nýja eig­in­leika sem sett hafa fyrri áætl­anir í upp­nám.“ Sagði hann útlit fyrir að ómíkron nái að „taka yfir“ delta-afbrigðið á næstu dögum eða vikum.

Smitast mun hraðar

Eig­in­leikar ómíkron fel­ast m.a. í smit­hæfn­inni sem er mun meiri en ann­arra afbrigða sem þýða að mun fleiri smit­ast á styttri tíma.

Þá er með­göngu­tími veirunnar styttri sem þýðir að tím­inn frá því að smit á sér stað og þar til ein­kenna koma fram er nú aðeins þrír dagar en var að minnsta kosti fjórir hvað delta varðar.

„Spurn­ingin er svo sú: Veldur ómíkron-afbrigðið öðru­vísi sjúk­dómi en fyrri afbrigði? Sjúk­dóms­ein­kennin eru svipuð en vís­bend­ingar eru uppi um að alvar­leg veik­indi séu fátíð­ari. Þetta er hins vegar ekki alveg ljóst.“ Nefndi hann í þessu sam­bandi að í Danmörku væru flestir sem greinst hafa með afbrigðið ungt, full­frískt og full­bólu­sett fólk. Staðan gæti orðið önnur ef það færi að grein­ast hjá við­kvæmum hópum. Milli 0,5 og 1 pró­sent þeirra sem greinst hafa með ómíkron í Danmörku hafa þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús.

Þórólfur sagði þetta í sjálfu sér ánægju­leg tíð­indi en að í ljósi mik­illar smit­hæfni afbrigð­is­ins gæti „nettóút­koman“ orðið sú að margir veik­ist hér alvar­lega á stuttum tíma. „Álag á spít­ala­kerfið getur þannig orðið mjög mikið með alvar­legum afleið­ingum.“

En hver er þá vernd bólu­efn­anna gagn­vart ómíkron?

Rann­sóknir eru enn af skornum skammti. Ein dönsk og önnur bresk benda þó til að bólu­setn­ing með tveimur sprautum veiti „þokka­lega“ vernd gegn smiti og vægum ein­kennum. Vernd gegn alvar­legum veik­indum sé hins vegar ekki þekkt en að lík­indum sé hún meiri en vernd gegn smiti.

Verndin virð­ist hins vegar batna mikið eftir örv­un­ar­skammt, bæði varð­andi smit og vægum ein­kennum og sagð­ist Þórólfur telja að hún væri almennt meiri gegn alvar­legum veik­indum em smiti.

„Til að koma í veg fyrir neyð­ar­á­stand á sjúkra­húsum er nauð­syn­legt að ná tökum á þeirri upp­sveiflu sem við erum að sjá hvað varðar fjölda dag­legra smita. Við vitum ekki hversu margir munu veikj­ast alvar­lega á næst­unni og þurfa á inn­lögn að halda.“ Enn sem komið er hafi inn­lögnum ekki fjölgað en það kunni að breyt­ast á næst­unni ef þró­unin verður svipuð hér og í Danmörku. „Vonandi mun það þó ekki ger­ast og von­andi mun víð­tæk bólu­setn­ing koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi.“

Baráttan verður að halda áfram

Þórólfur sagði að sam­staðan um aðgerð­irnar til að hefta útbreiðsl­una væri áfram lyk­il­at­riði. „Það er hins vegar ljóst að mikil þreyta og upp­gjöf er komin í nán­ast alla í sam­fé­lag­inu gagn­vart COVID-19. En við við megum ekki láta það láta draga úr okkur þrek og þor. Við verðum að halda bar­átt­unni áfram því ann­ars munum við sjá víð­tækar heilsu­fars­legar afleið­ingar.“

Álagið á Land­spít­ala hefur verið mikið um langt skeið, sagði Alma. Allar legu­deildir væru fullar, fyrir utan smit­sjúk­dóma­deild­ina, og vel það. Þá væri mikið álag á gjör­gæslu og „staðan á bráða­mót­töku hefur verið óásætt­an­leg til lengri tíma“.

Til ýmissa ráða hafi verið gripið til að reyna að létta álagið en engu að síður væri staðan á spít­al­anum þung. „Þess vegna höfum við áhyggjur af þess­ari stóru bylgju ómíkron-smita og ef smitin verða mörg má búast við auknum fjölda inn­lagna.“

Land­læknir biðl­aði til fólks að fylgja áfram öllum reglum og ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum eins og að nota grímur sem væri sér­lega mik­il­vægt nú þegar glímt væri við svo smit­andi afbrigði.

Þórólfur sagði að smitin í gær og síð­ustu daga ekki hægt að rekja til sér­stakra við­burða. Fólk hefði verið mikið á ferð­inni og „smit hefðu getað orðið hvar sem er.“

Hraðpróf gefa frekar falska jákvæða niðurstöðu

Spurður hvort að hrað­próf væru að reyn­ast óáreið­an­legri en talið var sagð­ist Þórólfur hafa fengið fréttir af vanda­málum þar að lút­andi. Hann hefði ekki gögn um þá sem greinst hefðu nei­kvæðir á hrað­prófi en svo jákvæðir á PCR-prófi. „En við erum hins vegar með upp­lýs­ingar um að þeir sem hafa greinst jákvæðir á hrað­grein­ing­ar­prófum og síðan nei­kvæðir á PCR-prófi. Hátt í helm­ing­ur­inn sem hafa greinst jákvæðir á hrað­prófi hefur svo í raun­inni reynst nei­kvæður.“ Sagði hann mjög mik­il­vægt að treysta ekki um of á hrað­grein­in­ar­prófin. Þeir sem finni ein­kenni eigi að fara í PCR-próf. Alma sagði Dani hafa áhyggjur af blöndun kyn­slóða yfir hátíð­arnar. Þessu ætti að taka alvar­lega og hvatti hún alla til að gæta sér­stak­lega að sér.

[adspot]

„Við höfum allan tím­ann verið að binda vonir við að eitt­hvað nýtt sé að koma sem muni binda enda á þetta fár sem við erum í,“ sagði Þórólfur, spurður hvort að hyllti undir enda­lok alvar­leika far­ald­urs­ins með væg­ara afbrigði. „Það er allt í lagi að binda vonir en megum ekki halda að það verði þannig. Nákvæm­lega eins og í sumar þegar við héldum að þetta væri að klár­ast með bólu­setn­ingum. Við þurfum að vera undir það búin eftir sem áður að upp komi nýtt afbrigði sem jafn­vel veldur alvar­legri sjúk­dómi. Hvort að það sé lík­legt eða ólík­legt, menn geta fabúlerað um það fram og til baka.“

Veiran sniðug

Spurður hvort það væru ekki von­brigði hversu far­ald­ur­inn hefði dreg­ist á lang­inn sagði hann þau vissu­lega vera til staðar en að það þýði ekki „að loka aug­unum og segja að nú sé lið­inn svo langur tími og að nú eigi þetta bara að vera í lagi. Við þurfum að skoða þetta með til­liti til þeirrar veiru sem er í gangi og aðlaga okkar aðgerðir að því.“

Alma bætti við að „þessi veira“ væri ein­fald­lega mikil von­brigði, „hvað hún er sniðug og tekst að leika á okkur þótt að við séum sífellt að reyna að vera skrefi á undan“.

Þórólfur sagð­ist aldrei hafa sagt hvenær far­aldr­inum myndi ljúka, aðeins hvernig útlitið væri á hverjum tíma. „En ég hef alltaf sagt að við þurfum að vera undir það búin að eitt­hvað nýtt komi fram.“

Land­læknir minnti á að á hverjum tíma væru ákvarð­anir teknar út frá þeirri þekk­ingu sem liggi fyrir.

„Mark­miðin okkar eru áfram þau sömu,“ sagði Víðir undir lok fund­ar­ins. „Við ætlum að tempra hann, draga úr smitum og verja heil­brigð­is­kerfið. Við ætlum að halda áfram að verja við­kvæma hópa. Við ætlum áfram að leita leiða til að berj­ast við veiruna á landa­mær­unum og hefta sam­fé­lags­legt smit með það að mark­miði að geta lifað hér í sem opn­ustu og frjáls­ustu sam­fé­lagi og á sama tíma haldið uppi ásætt­an­legu örygg­is­stigi.

Áfram veg­inn – það er ekk­ert annað í boði. Og ég held að við séum til­búin í það öll. Setjum undir okkur haus­inn. Stöndum saman. Við kunnum þetta, við getum gert þetta. Passið vel upp á hvert annað og sýnið hvert öðru kær­leika á öllum sviðum.

Gleði­lega hátíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár