Bandaríski lyfjarisinn Pfizer og þýska líftæknifyrirtækið BioNTech sóttu í gær um markaðsleyfi fyrir bóluefni gegn COVID-19 fyrir börn fimm ára og yngri og allt niður í hálfs árs gömul. Verði það samþykkt gæti bólusetning barna undir 5 ára hafist í Bandaríkjunum í lok febrúar eða byrjun mars.
Lyfja- og matvælaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hvatti fyrirtækin til að skila umsókn um leyfið sem fyrst, sem verður að teljast nokkuð óvanalegt. Rök FDA byggja á að stemma þurfi stigu við ómíkron-afbriðgðinu hjá börnum. Um 19 milljónir barna tilheyra þessum yngsta aldurshópi í Bandaríkjunum. 1,6 milljón barna undir fjögurra ára hafa smitast af veirunni, 12 börn undir fimm ára hafa látist
Samtök barnalækna í Bandaríkjunum segja foreldra barna undir fimm ára búa við „afar krefjandi aðstæður á þessu stigi heimsfaraldursins“. Mark Del Monte, formaður samtkanna, segist vel skilja óþreygjufulla foreldra. „Við bíðum eftir gögnunum og höldum áfram að fara eftir vísindunum,“ segir hann.
[links]Leyfisbeiðnin byggir á bólusetningu í tveimur skömmtum en rannsóknir standa yfir á virkni þriðja skammtsins. Rannsóknir á bóluefni fyrir þennan aldurshóp hafa staðið yfir um tíma og um miðjan desember greindu Pfizer og BioNTech frá því að börn á aldrinum sex mánaða til tveggja ára sem fengu tvo skammta af bóluefni með um tíunda hluta af því magni sem fullorðnum er gefinn hafa myndað jafn mikið ónæmi og ungmenni á aldrinum 16-25 ára. Börn eldri en tveggja ára og til fjögurra ára sýndu ekki eins mikla svörun.
Fyrirtækin ákváðu samt sem áður sækja um leyfi til að stemma stigu við útbreiðslu ómíkron-afbrigðisins. Ef rannsókna um virkni þriðja skammtsins er beðið gæti leyfi fyrir aldurshópinn tafist fram á vor. Kathrin Jansen, yfirmaður bólusetningarannsókna hjá Pfizer, segir að stefnan sé samt sem áður sett á að sækja um leyfi fyrir þriðja skammtinum af bóluefni fyrir börn í þessum yngsta aldurshópi.
Ef leyfið verður samþykkt verður annar skammturinn gefinn þremur vikum eftir fyrsta skammtinn og örvunarskammtur, eða þriðji skammtur, tveimur mánuðum eftir annan skammtinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir