Bólusetning barna: Þriggja ára í Kína en fimm ára í Bandaríkjunum

Í umræðu um bólu­setn­ingu barna gegn COVID-19 hefur verið tek­ist á um hvort ávinn­ing­ur­inn sé meiri en mögu­leg áhætta. Eftir því sem hlut­fall bólu­settra í heim­inum hækkar fær­ist umræðan nær bólu­setn­ingu barna. En við hvaða aldur skal miða?

Kínversk yfirvöld hyggjast hefja bólusetningu þriggja ára barna á næstunni. Í Kambódíu er bólusetning barna á aldrinum 6-12 ára hafin.
Kínversk yfir­völd hyggj­ast hefja bólu­setn­ingu þriggja ára barna á næst­unni. Í Kambódíu er bólu­setn­ing barna á aldr­inum 6-12 ára hafin. Mynd: EPA

Börn allt niður í þriggja ára verða bólu­sett gegn COVID-19 í Kína á næst­unni ef áform kín­verskra yfir­valda ganga eftir. Aðeins á Kúbu hafa svo ung börn verið bólu­sett en þar hafa börn allt niður í tveggja ára verið bólu­sett. Í flestum öðrum ríkjum mið­ast bólu­setn­ing barna við 12 ára aldur enn sem komið er.

Bólu­setn­ing ungra barna er liður í stefnu kín­verskra yfir­valda að koma í veg fyrir útbreiðslu kór­ónu­veirunnar á ný. Hér­aðs­yf­ir­völd í að minnsta kosti fimm hér­uðum í Kína hyggj­ast hefja bólu­setn­ingu barna á aldr­inum 3-11 ára á næst­unni. Af 1,4 millj­örðum Kínverja hefur rúm­lega millj­arður verið bólu­settur.

„Ég vil að minnsta kosti ekki að hann verði fyrstur“

Tvö bólu­efni, Sin­oph­arm og Sinavac, hafa fengið mark­aðs­leyfi hjá þessum yngsta ald­urs­hópi en bæði koma frá kín­verskum fram­leið­endum og eru aðeins notuð í Kína. Wang Lu, sem býr í borg­inni Fuzhou í suð­ur­hluta Fujian-hér­aðs, er óviss hvort hún vilji láta bólu­setja þriggja ára gamlan son sinn, aðal­lega þar sem hún er óviss um öryggi bólu­efn­is­ins. „Ég vil að minnsta kosti ekki að hann verði fyrstur,“ segir Lu í sam­tali við AP-frétta­stof­una. Wu Cong, móðir sjö ára stúlku í Shanghai, telur bólu­setn­ingu gegn COVID-19 ekki vera frá­brugðna hefð­bund­inni inflú­ensu­bólu­setn­ingu. „Ég hef ekki miklar áhyggjur.“

Bólu­setn­ing barna undir 12 ára aldri er hafin víða í Asíu, meðal ann­ars í Kambódíu þar sem sér­stök bólu­setn­ing­ar­her­ferð barna á aldr­inum 6-12 ára hófst 17. sept­em­ber eftir að smitun í land­inu fór að fjölga.

Yfir 3,8 millj­arðar jarð­ar­búa hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni gegn COVID-19 eða um helm­ingur íbúa heims­ins. Töl­fræði­upp­lýs­ingar um bólu­setn­ingar barna liggja ekki fyrir en stór hluti ríkja heims­ins hafa haf­ist handa við bólu­setn­ingu 12 ára og eldri og nú er litið til næsta ald­urs­hóps fyrir neðan: 5-11 ára. Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna (FDA) vinnur „myrkr­anna á milli við að gera bólu­setn­ingar aðgengi­legar börnum yngri en 12 ára“, líkt og segir í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni frá því á föstu­dag. Ráð­gjafar banda­rískra stjórn­valda á sviði heil­brigð­is­mála komu saman í dag til að ræða hvort veita eigi bólu­efni Pfizer gegn COVID-19 bráða­birgða­leyfi fyrir börn á aldr­inum 5-11 ára. Anthony Fauci, yfir­maður smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna, hefur áður gefið út að haf­ist verið handa við að bólu­setja 5-11 ára börn í fyrri hluta nóv­em­ber og að stór hluti þeirra verði full­bólu­settur í lok árs.

Bólusetning barna 6-11 ára hefjist hér á landi eftir áramót

Á Íslandi eru tæp 64% barna á aldr­inum 12-15 ára full­bólu­sett en bólu­setn­ing þessa hóps hófst í ágúst. Ekkert smit hefur greinst í þessum ald­urs­hópi. Stjórn­völd hér á landi greindu frá því í gær að þess er vænst að fljót­lega verði unnt að bjóða börnum á aldr­inum 6-11 ára bólu­setn­ingu með bólu­efni Pfizer. Rann­sóknum á notkun bólu­efn­is­ins fyrir þennan ald­urs­hóp er lokið og er reiknað með að leyfi fyrir notkun lyfs­ins handa börnum á þessum aldri verði veitt fyrir ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár