Ekki á móti bólusetningum en tilbúinn að fórna fleiri titlum

„Ég var aldrei á móti bólu­setn­ingnum,“ segir Novak Djokovic, fremsti tenn­is­spil­ari heims, í við­tali þar sem hann gerir upp brott­vís­un­ina frá Melbourne í jan­úar. „En ég hef alltaf stutt frelsi til að velja hvað þú setur í lík­ama þinn.“

Novak Djokovic segist frekar vera tilbúinn að fórna fleiri risatitlum í tennis en að láta bólusetja sig. Að minnsta kosti enn um sinn.
Novak Djokovic seg­ist frekar vera til­bú­inn að fórna fleiri risatitlum í tennis en að láta bólu­setja sig. Að minnsta kosti enn um sinn. Mynd: EPA

Serbneski tenn­is­spil­ar­inn Novak Djokovic seg­ist aldrei hafa verið á móti bólu­setn­ingum en að hann myndi frekar fórna mögu­legum tennistitlum í fram­tíð­inni heldur en að láta bólu­setja sig gegn COVID-19.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali við Djokovic á BBC, sem er það fyrsta sem hann veitir eftir að land­vist­ar­leyfi hans í Ástralíu var aft­ur­kallað og hann þurfti að yfir­gefa landið áður en opna ástr­alska meist­ara­mótið í tennis hófst í jan­úar.

Bólu­setn­ing gegn COVID-19 var skil­yrði fyrir þátt­töku á mót­inu. Djokovic er óbólu­settur en sótti um und­an­þágu sem yfir­völd í Vikt­or­íu­fylki veittu honum, af lækn­is­fræði­legum ástæðum, en Djokovic greind­ist með COVID-19 í des­em­ber.

[links]Þegar hann kom til lands­ins var honum hins vegar meinuð inn­ganga af landamæra­vörð­um. Scott Morri­son, for­sæt­is­ráð­herra Ástr­al­íu, var í fyrstu hlynntur ákvörðun yfir­valda í Vikt­or­íu­fylki um að veita Djokovic und­an­þágu en skipti síðar um skoðun þar sem hann sagði að eng­inn ætti að vera haf­inn yfir gild­andi regl­ur. Það var svo í höndum Alex Hawke, inn­flytj­enda­ráð­herra Ástralíu, að ógilda land­vist­ar­leyfið á þeim grund­velli að vera Djokovic gæti hvatt til upp­þota meðal almenn­ings og ýtt undir sjón­ar­mið þeirra sem eru á móti bólu­setn­ingum.

Djokovic kærði ákvörð­un­ina en dóm­stóll stað­festi ákvörðun yfir­valda um að ógilda land­vist­ar­leyfið. Djokovic, sem dvaldi á umdeildu flótta­manna­hót­eli á meðan mál hans var til með­ferðar, hélt því heim á leið og tók ekki þátt á opna ástr­alska meist­ara­mót­inu í tennis að þessu sinni. Hann sagð­ist virða nið­ur­stöð­una sem væri engu að síður mikil von­brigði.

Tilbúinn að fórna opna franska og Wimbledon

„Ég var aldrei á móti bólu­setn­ingnum,“ segir Djokovic í BBC-við­tal­inu þar sem hann gerir upp dag­ana í Melbourne í síð­asta mán­uði. Hann seg­ist ekki vilja að fólk tengi hann við þá sem eru alfarið á móti bólu­setn­ingum. „En ég hef alltaf stutt frelsi til að velja hvað þú setur í lík­ama þinn,“ segir Djokovic.

Full­yrð­ing Djokovic stang­ast þó á við það sem hann hefur áður sagt. „Per­sónu­lega er ég á móti bólu­setn­ingum og myndi ekki vilja láta ein­hvern neyða mig í bólu­setn­ingu til að geta ferð­ast,“ sagði Djokovic í opnu streymi á Facebook í apríl 2020. „En ef það verður gert að skyldu, hvað þá? Ég mun þurfa að taka ákvörðun. Ég hef mínar skoð­anir á mál­inu og hvort þær skoð­anir muni breyt­ast á ein­hverjum tíma­punkti á eftir að koma í ljós,“ sagði Djokovic jafn­framt.

Fyrir opna ástr­alska mótið var Djokovic sig­ur­sæl­asti tennis­maður á stór­mótum ásamt Roger Federer og Rafael Nadal með 20 risatitla. Nadal sigr­aði opna ástr­alska og er því, sem stendur, sig­ur­sæl­asti tennis­maður heims. Djokovic, sem er 34 ára, seg­ist vona að bólu­setn­ing­ar­kröfum á stór­mótum verði breytt og von­ast hann til að geta „spilað í mörg ár til við­bótar“.

Hann seg­ist þó til­bú­inn að fórna titlum og mögu­leik­anum á að verða far­sæl­asti tennis­maður sög­unnar ef til þess kæmi. Aðspurður hvort hann sé til­bú­inn að fórna vænt­an­legum stór­mótum á borð við opna franska meist­ara­mótið og Wimbledon svarar Djokovic ját­andi. „Grund­vall­ar­at­riði þegar kemur að ákvörð­unum sem varða lík­ama minn eru mik­il­væg­ari en nokkur tit­ill eða eitt­hvað annað. Ég er að reyna að vera í eins góðum tengslum við lík­ama minn eins og ég get,“ segir Djokovic.

Frelsi einstaklingsins eða hagur heildarinnar?

Óhefð­bundnar aðferðir Djokovic til að ná árangri á ferl­inum hafa vakið athygli. Hann hefur til að mynda beðið bænir í þeim til­gangi að hreinsa mengað vatn. Þá hefur hann setið inni í egg­laga belg á stór­mótum í til að auka blóð­streymi lík­am­ans og auka fram­leiðslu rauðra blóð­korna. Hingað til hafa þessi upp­á­tæki mest mefgnis vakið upp kátínu meðal stuðn­ings­manna hans og sjálfur segir Djokovic að ákvörðun hans um að afþakka bólu­efni stafi meðal ann­ars af því að hann er ánægður með þær ákvarð­arnir sem hann hefur tekið sem varða eigin lík­ama. Í dag byrjar hann hvern dag á glasi af heitu vatni og tveimur skeiðum af manuka-hun­angi.

Að vissu leyti er hægt að full­yrða að hvað Djokovic varðar vegur frelsi ein­stak­lings­ins þyngra en hagur heild­ar­innar. Sem afrek­s­í­þrótta­maður telur hann að lík­ami hans komi aðeins honum við og því sé honum frjálst að taka þær ákvarð­anir sem honum sýn­ist. Bólu­setn­ing gegn COVID-19 er þó ekki úti­lokuð í fram­tíð­inni að hans mati. „Við erum öll að reyna að finna bestu mögu­legu leið­ina til að enda far­ald­ur­inn.“

En sem stendur er það ekki inni í mynd­inni að láta sprauta sig.

Viðtal Amol Rajan við Djokovic verður sýnt í heild sinni á BBC One klukkan 20:30 í kvöld, þriðju­dags­kvöld. Viðbrögð við brot­unum sem birt hafa verið í dag láta þó ekki á sér standa.

Íþrótta­sál­fræð­ing­ur­inn Bradley Busch segir eitt­hvað vera við eðli afrek­s­í­þrótta­fólks sem gerir það lík­legra til að aðhyll­ast „óhefð­bundnar lækn­ingar“. Hann segir afrek­s­í­þrótta­fólk á sínu sviði ávallt leit­ast eftir „þessu auka einu pró­senti“. „Þau eru í góðu formi og heil­brigð og ákvarð­anir sem þau hafa tekið hafa skilað sér á ferl­inum. Það er því auð­velt fyrir þau að fest­ast í þeirri „búbblu“ sem lætur þau trúa að þau viti betur en lækna­vís­indin segja til um,“ segir Busch, sem veltir fyrir sér hvort þanka­gangur Djokovic verði hluti af „falli fer­ils hans á næstu árum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár