Ráðleggja óbólusettum – einnig börnum – frá ónauðsynlegum ferðalögum

Sótt­varn­ar­læknir segir þær ráð­legg­ingar emb­ætt­is­ins að óbólu­settir ferð­ist ekki til útlanda gildi einnig fyrir börn. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um almenna bólu­setn­ingu barna.

Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um hvort og þá hvenær farið verður að bólusetja börn við COVID-19 á Íslandi.
Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um hvort og þá hvenær farið verður að bólu­setja börn við COVID-19 á Íslandi. Mynd: EPA

„Við höfum gefið út að við ráð­leggjum óbólu­settum ekki að ferð­ast og gildir það í raun einnig um börn,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir spurður hvort að óhætt sé að ferð­ast til útlanda með börn um þessar mundir. Hann segir þessar ráð­legg­ingar gilda um ferða­lög til allra landa nema Græn­lands.

[adspot]

Ráð­legg­ing­arnar sem Þórólfur vísar í er að finna á vefnum COVID.is og eru eft­ir­far­andi: „Íbúum Íslands er ein­dregið ráðið frá ónauð­syn­legum ferða­lögum til áhættu­svæða vegna COVID-19 nema vera full bólu­sett.“ Þar sem ekki er almennt farið að bólu­setja börn yngri en sextán ára á Íslandi eiga þessi var­úð­ar­orð einnig við um þau – ekki aðeins full­orðna ein­stak­linga.

Börn fædd árið 2005 eða síðar þurfa að fara í sýna­töku á landa­mærum við kom­una til lands­ins en eru, ólíkt því sem almennt á við full­orðna óbólu­setta ein­stak­linga, und­an­þegin skyldu til að fram­vísa nei­kvæðu PCR-vott­orði (COVID-prófi) við komu. Misjafnt er hvernig þessu fyr­ir­komu­lagi er háttað í öðrum löndum.

„Fólk sem ferð­ast þarf að gæta að sýk­inga­vörnum fyrir sig, hvort sem það er bólu­sett eða óbólu­sett, og sín börn,“ segir Þórólfur við Kjarnann. „Það eiga allir að vita hvaða sýk­inga­varnir þetta eru.“

Öllum sextán ára og eldri sem búsettir eru á Íslandi býðst að fara í bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Mikil umræða er nú víða um lönd um hvort og þá hvenær eigi að hefja bólu­setn­ingu barna. Dönsk stjórn­völd hafa til að mynda ákveðið að bólu­setn­ing meðal 12-15 ára hefj­ist síðar á þessu ári. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um almenna bólu­setn­ingu barna,“ svarar Þórólfur aðspurður um stöðu þessa máls á Íslandi.

Bólu­setn­ing barna með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma á aldr­inum 12-15 ára er hafin og hafa 322 ein­stak­lingar í ald­urs­hópnum fengið fyrri skammt bólu­efnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár