4.200 baðferðir keyptar fyrir ferðagjöfina

Alls hafa 205 millj­ónir króna af ferða­gjöf stjórn­valda verið nýttar nú þegar. Bað­staðir víða um land hafa sam­tals tekið við 21 milljón króna í formi ferða­gjafar en ætla má að sú upp­hæð hafi nýst fyrir 4.200 bað­ferðir.

Heimsóknir á baðstaði víða um land vega þungt í notkun á ferðagjöfinni.
Heim­sóknir á bað­staði víða um land vega þungt í notkun á ferða­gjöf­inni. Mynd: Skjáskot

Alls hafa 205 millj­ónir króna verið greiddar út í formi ferða­gjafar rík­is­stjórn­ar­innar nú þegar um mán­uður er lið­inn frá því að opnað var fyrir notkun hennar. Ferða­gjöf er 5.000 króna ávísun sem ein­stak­lingar með lög­heim­ili á Íslandi, fæddir árið 2002 eða fyrr, geta fengið til kaupa á ein­hvers konar ferða­tengdri þjón­ustu eða afþr­ey­ingu inn­an­lands.

Áætlaður kostn­aður rík­is­sjóðs vegna ferða­gjaf­ar­innar er um 1.500 millj­ónir króna, þannig að tæp 14% hafa nýtt gjöf­ina það sem af er sumri. Ferða­gjöf­ina þarf að nýta fyrir árs­lok 2020.

Minnst gist á Suðurnesjum og hálendinu

Flestir nýta ferða­gjöf­ina til að kaupa gist­ingu en alls hafa 66 millj­ónir króna í formi ferða­gjafa runnið til gisti­staða víða um land, eða ríf­lega 32 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. Þeir sem nýta gjöf­ina upp í gist­ingu kjósa flestir að halla sínu höfði á Suð­ur­landi, Vest­ur­landi eða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Alls hafa 44 millj­ónir króna runnið til gisti­staða á þessum svæðum.

Norð­lenskir gisti­staðir hafa tekið við tæpum 11 millj­ónum króna í formi ferða­gjafa sem skipt­ist til­tölu­lega jafnt milli Norð­ur­lands vestra og eystra, rúmar fimm millj­ónir í hvorn lands­hluta. Gisti­staðir á Aust­ur­landi hafa fengið sjö millj­ónir króna í formi ferða­gjafa og á Vest­fjörðum hafa ferða­gjafir að and­virði fjórar millj­ónir króna runnið til gisti­staða.

Fæstir nýta ferða­gjöf­ina til að kaupa sér gist­ingu á Suð­ur­nesjum og hálendi Íslands. Hálf milljón króna hefur farið á gisti­staði á Suð­ur­nesjum gegnum ferða­gjöf­ina og innan við tvö hund­ruð þús­und krónur í gist­ingu á hálendi Íslands.

Baðstaðir víða um landið trekkja að

Nærri jafnhá upp­hæð og runnið hefur til gisti­staða hefur farið í ýmiss konar afþr­ey­ingu, alls 60 millj­ónir króna. Í þeim flokki er ferða­gjöfin mest nýtt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða fyrir 17 millj­ónir króna. Næst mest á Norð­ur­landi eystra þar sem 11 millj­ónir hafa verið skildar eftir í formi ferða­gjafar síð­ast­lið­inn mánuð. Þar á eftir kemur Aust­ur­land með níu millj­ónir króna í afþr­ey­ingu og átta millj­ónir á Suð­ur­nesjum. Á Suð­ur­landi hefur ferða­gjöf að and­virði sjö mil­i­jónir verið nýtt til afþrey­ingar, fyrir fjórar millj­ónir á Vest­ur­landi og sitt­hvorar tvær millj­ón­irnar á Norð­ur­landi og Vest­fjörðum.

Í afþrey­ing­ar­flokknum vega ýmiss konar bað­staðir þungt. Bláa lónið hefur tekið við ferða­gjöfum að and­virði átta millj­ónir króna og Vök Baths á Aust­ur­landi fyrir fjórar millj­ónir. Sjóböðin á Húsavík og Jarð­böðin við Mývatn hafa tekið við tveimur millj­ónum hvort og Bjór­böðin á Árskógs­sandi hafa fengið eina milljón í formi ferða­gjafa. Þá hafa þrjár millj­ónir runnið til Kraumu við Deild­ar­tungu­hver og ein milljón króna til Laug­ar­vatns Fontana. Sam­an­lagt hafa hand­hafar ferða­gjafar því nýtt 21 milljón króna í formi ferða­gjafar í það að baða sig á þessum stöðum.

Miðað við að hver ferða­gjöf er 5.000 krónur þá má ætla að ferða­gjöfin hafi nú þegar runnið upp í 4.200 bað­ferðir.

57 milljónir í mat

Eitthvað þarf fólk víst að borða líka og veit­inga­staðir lands­ins hafa tekið við ferða­gjöfum að and­virði 57 millj­ónir króna. Mest fer fyrir höf­uð­borg­ar­svæð­inu í þeirri tölu, alls hafa veit­inga­staðir þar tekið við ferða­gjöfum fyrir 29 millj­ónir króna.

Á Suð­ur­landi hafa verið skildar níu millj­ónir króna eftir og sama tala á Norð­ur­landi eystra. Ferða­gjöfin hefur verið nýtt fyrir átta millj­ónir króna á veit­inga­stöðum á Vest­ur­landi, þrjár millj­ónir á Suð­ur­nesjum, tvær millj­ónir á Aust­ur­landi ogo sömu tölu á Norð­ur­landi vestra. Fæstir snæða fyrir ferða­gjöf­ina á Vest­fjörðum en vest­firskir veit­inga­staðir hafa tekið við um 400 þús­und krónum í formi ferða­gjafar enn sem komið er.

Sam­an­lagt hafa lands­menn varið 183 millj­ónum króna af and­virði ferða­gjafar í gist­ingu, afþr­ey­ingu og veit­inga­þjón­ustu frá því opnað var fyrir ferða­gjöf­ina í lok júní. 22 millj­ónir hafa farið í sam­göngur, bíla­leigu­bíla og þjón­ustu ferða­skrif­stofa.

Austurland vinsæll áfangastaður

Á heild­ina litið hafa alls 80 millj­ónir króna í formi ferða­gjafar orðið eftir hjá fyr­ir­tækjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða rúm 39 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. 31 milljón eða um 15 pró­sent hefur farið til fyr­ir­tækja á Suð­ur­landi. Litlu minna hefur runnið til fyr­ir­tækja á Vest­ur­landi og Norð­ur­landi eystra, eða 28 millj­ónir og 25 millj­ónir króna, sem nemur 13,7 pró­sentum til ferða­þjón­ustu­fyr­ir­ækja á Vest­ur­landi og 12,2 pró­sentum til fyr­ir­tækja á Norð­ur­landi eystra.

Hlutur Aust­ur­lands í heild­ar­notkun á ferða­gjöf­inni vekur athygli en alls hafa 19 millj­ónir króna orðið eftir í þeim lands­hluta eða um 9,3 pró­sent þess sem nýtt hefur verið af ferða­gjöf­inni hingað til. Á Suð­ur­nesjum hefur 13 millj­ónum króna verið varið í formi ferða­gjafa, um 6,3 pró­sent. Einna minnstu verja hand­hafar ferða­gjafar á Norð­ur­landi vestra, alls níu millj­ónum, og Vest­fjörðum þar sem sjö millj­ónir hafa orðið eftir hjá ferða­þjón­ustu­að­ilum í formi ferða­gjafar enn sem komið er. Lang­minnst fær þó hálendið en ferða­þjón­ustu­að­ilar þar hafa tekið við alls rúm­lega 600 þús­und krónum.

Af ein­stökum fyr­ir­tækjum sem taka við ferða­gjöf­inni hefur mest farið til Hótels Hamars í Borg­ar­firði, alls 10 millj­ónir hafa verið nýttar þar. Fast á hæla koma Íslands­hótel og Flyover Iceland með níu millj­ónir króna. Þá hefur Bláa lónið tekið við alls átta millj­ónum króna og Flug­fé­lag Íslands við sjö millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár