Ráðherra segir að pakkaferðafrumvarp hennar hafi ekki meirihluta á þingi

Frumvarp Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur um að heim­ila ferða­skrif­stofum að borga neyt­endum í inn­eign­arnótum í stað pen­inga mun ekki verða afgreitt á Alþingi. Hluti stjórn­ar­þing­manna styður það ekki.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

„Mér sýn­ist nú ljóst að frum­varpið sem ég lagði fram hafi ekki meiri­hluta­stuðn­ing á Alþingi.“ Þetta skrifar Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, í stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hún fjallar um frum­varp sitt sem átti að heim­ila ferða­skrif­stofum að fresta end­ur­greiðslum pakka­ferða sem falla niður um allt að tólf mán­uði með því að gefa út inn­eign­arnótur fyrir and­virði ferð­ar­inn­ar. Frum­varpið átti að vera aft­ur­virkt til 15. mars og til­gangur þess að var sagður að forða því að ferða­skrif­stofur fari í þrot, en á sama tíma væri einnig tryggt að inn­eign­ar­nóta neyt­and­ans félli undir trygg­inga­vernd.

Þórdís segir í stöðu­upp­færsl­unni að hún jafi staðið með frum­varp­inu eins og það var lagt fram en það hafi ekki stuðn­ing. „Ég geri því ekki ráð fyrir að þingið afgreiði það.“

Fyrirséð að frumvarpið yrði umdeilt

Hún segir að í mál­inu veg­ist á sterk rök á báða bóga, ann­ars vegar um rétt neyt­enda og hins vegar um það að sá neyt­enda­réttur hafi ekki verið lög­festur með þá stöðu í huga sem nú sé komin upp, algjöra stöðvun ferða­þjón­ust­unnar og yfir­vof­andi gjald­þrot margra ferða­skrif­stofa sem krafðar væru um fullar end­ur­greiðslur án þess að fá nokkrar tekjur á móti. Það hafi því verið fyr­ir­séð að frum­varpið yrði umdeilt.

Staða ferða­skrif­stofa sé mjög mis­mun­andi og vandi þeirra mis­mik­ill, en ljóst sé að neyt­enda­rétt­ur­inn verði ein­hverjum þeirra ofviða að óbreyttu. „Mögulegt hefði verið að koma til móts við báðar hliðar máls­ins á kostnað skatt­greið­enda, með því að aflétta ekki bara skyld­unni um end­ur­greiðslu í pen­ingum af fyr­ir­tækj­unum heldur inn­leiða sam­tímis rík­is­á­byrgð á kröfum neyt­enda. Nið­ur­staðan var að gera það ekki,“ skrifar Þórdís.

[adspot]Í fjöl­miðlum í dag hefur verið greint frá því að verið sé að hverfa frá þeirri leið sem hún vildi feta með frum­varp­inu í nágranna­löndum, meðal ann­ars í Danmörku. „Hugs­an­lega er þar að baki póli­tísk ákvörðun innan ESB um að hvika hvergi frá sam­eig­in­legu regl­unum og sá mögu­leiki er auð­vitað alltaf til staðar að gripið verði til aðgerða gegn löndum sem víkja frá þeim.“

Þá séu aðstæður að breyt­ast frá því að frum­varpið var samið og lagt fram. „Þá var allt eins útlit fyrir að engin eða nær engin ferða­lög yrðu á milli landa fyrr en í haust eða vetur. Nú sjáum við að lönd eru að opna landa­mæri sín nú þegar eða eftir nokkra daga, miklu fyrr en talið var lík­legt fyrir fáeinum vikum. Það þýðir vænt­an­lega að ferða­skrif­stofur standa frammi fyrir færri afbók­unum en ella og geta líka selt nýjar ferðir fyrr en ella. Þrátt fyrir það er mér vel ljóst að sum þeirra standa frammi fyrir mjög alvar­legri stöðu, þó að staða þeirra sé ólík eins og áður segir.“

Ljóst sé þó að frum­varpið hafi ekki stuðn­ing, sem þýðir að hluti stjórn­ar­þing­manna mun ekki styðja við það. Því gerir Þórdís ekki ráð fyrir að Alþingi muni afgreiða málið.

Hleypur á milljörðum

Neyt­enda­sam­tökin og ýmsir aðrir hafa gagn­rýnt frum­varpið harð­lega og sagt það fela í sér að ferða­skrif­stofur fái vaxta­laus lán hjá neyt­endum án þess að þeir hafi nokkuð um það að segja. Breki Karls­son, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, sagði við Kjarn­ann í maí að þetta virt­ist vera „default“-still­ingin hjá stjórn­völd­um, neyt­endur geti átt sig, en fyr­ir­tækj­unum verði að hjálpa. Neyt­enda­sam­tökin hafa fengið inn á sitt borð stór­auk­inn fjölda kvart­ana og ábend­inga frá neyt­endum sem telja á sér brotið eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst.

Breki sagði í Kast­ljósi skömmu áður að Neyt­enda­sam­tökin hefðu giskað á að féð sem íslenskir neyt­endur ættu inni hjá íslenskum ferða­skrif­stofum væri á bil­inu 1,5-2,5 millj­arðar króna. Hann sagð­ist hafa fulla samúð með fyr­ir­tækj­un­um, en neyt­endur ættu ekki að þurfa veita fyr­ir­tækjum vaxta­laus lán til þess að verja eigið fé þeirra í gegnum hremm­ing­arn­ar. Þeir glími nefni­lega líka við lausa­fjár­vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár