Tap Isavia frá því að faraldurinn hófst nemur 18,3 milljörðum króna

Sam­an­lagt rekstr­ar­tap sam­stæðu Isavia á síð­asta ári og fyrstu sex mán­uðum þessa árs nemur 18,3 millj­örðum króna. Rekstr­ar­af­koman á fyrri helm­ingi þessa árs var nei­kvæð um 5,1 millj­arð.

Samanlagt rekstrartap Isavia á síðasta ári og fyrstu sex mánuðum þessa árs nemur 18,3 milljörðum króna.
Sam­an­lagt rekstr­ar­tap Isavia á síð­asta ári og fyrstu sex mán­uðum þessa árs nemur 18,3 millj­örðum króna. Mynd: Isavia

Rekstr­ar­tap sam­stæðu opin­bera hluta­fé­lags­ins Isavia á fyrri hluta þessa árs nam 5,1 millj­arði króna, sem er svipuð afkoma og á fyrri hluta sein­asta árs. Í fyrra tap­aði Isavia 13,2 millj­örðum og sam­an­lagt rekstr­ar­tap Isavia árið 2020 og á fyrri hluta þessa árs nemur því 18,3 millj­örðum króna.

Isavia segir frá rekstr­ar­af­komu sinni á fyrri hluta árs í til­kynn­ingu í dag. Í henni segir að áhrifa kór­ónu­veirunnar hafi enn gætt veru­lega á rekstur félags­ins á fyrri hluta árs­ins, en sam­dráttur tekna var um 27 pró­sent miðað við fyrri helm­ing síð­asta árs og 65 pró­sent miðað við fyrri helm­ing árs­ins 2019. Ef ein­göngu er horft til móð­ur­fé­lags­ins, sem sinnir rekstri Kefla­vík­ur­flug­vallar er tekju­sam­drátt­ur­inn enn meiri, eða um 83 pró­sent miðað við fyrri helm­ings árs 2019.[links]

„Miðað við fyrri helm­ing árs­ins 2020 fóru 76% færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl en á sama tíma­bili á þessu ári. Ef bornir eru saman fyrri helm­ingar áranna 2019 og 2021 nemur sam­drátt­ur­inn um 93%,“ segir í til­kynn­ingu Isavia.

Í til­kynn­ing­unni segir að heild­ar­af­koma tíma­bils­ins hafi verið nei­kvæð um 3,5 millj­arða króna sam­an­borið við nei­kvæða afkomu um 7,6 millj­arða króna fyrir sama tíma­bil í fyrra. Þann við­snún­ing segir að rekja megi til „jákvæðra geng­is­á­hrifa vegna lang­tíma­lána í erlendum gjald­miðlum.“

Forstjórinn segir sóttvarnatakmarkanir skýra færri farþega en búist var við

Svein­björn Ind­riða­son for­stjóri Isavia segir í til­kynn­ingu að áhrifa veirunnar gæti enn veru­lega á rekstur flug­valla og flug­leið­sögu­þjón­ustu og segir hann sömu­leiðis að harðar sótt­varna­tak­mark­anir á landa­mærum hafi dregið úr fjölda far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl.

„End­ur­heimtin á Kefla­vík­ur­flug­velli hefur farið hægar af stað en við áttum von á. Ljóst er að fjöldi far­þega á síð­ustu mán­uðum þessa árs verður minni en við von­uð­umst eftir og má rekja það beint til harðra tak­mark­ana sótt­varn­ar­yf­ir­valda á landa­mærum Íslands. Flug­fé­lög hafa dregið úr fram­boði sínu og þeim flug­fé­lögum, sem við töldum að myndu sinna flugi til Íslands yfir vetr­ar­mán­uð­ina, hefur fækkað og gæti þeim auð­veld­lega fækkað enn frekar. Þessi staða er mikið áhyggju­efni, og í raun alvar­leg, þar sem við ættum að vera að vinna með end­ur­heimt­inni en ekki gegn henni,“ er haft eftir Svein­birni í til­kynn­ingu Isavia.

[adspot]

Áfram haldið með uppbyggingu í Keflavík

Í til­kynn­ing­unni er segir að þrátt fyrir óvissu í vetur hafi Isavia að nýju hafið fram­kvæmdir á Kefla­vík­ur­flug­velli í sam­ræmi við upp­bygg­ing­ar­á­ætlun félags­ins:

„Ákvörðun um að auka hlutafé í Isavia fyrr á árinu gerði okkur mögu­legt að hefj­ast handa við upp­bygg­ing­una á Kefla­vík­ur­flug­velli og stuðla þannig áfram að end­ur­reisn ferða­þjón­ust­unnar. Frekari upp­bygg­ing, og þá ekki síst þegar kemur að tengi­stöð­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli, styður við fjölgun öfl­ugra flug­teng­inga en þær eru ein af lyk­il­for­sendum lífs­gæða á Íslandi,” er haft eftir for­stjór­anum um þetta efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár