Ísland „heitasti ferðamannastaðurinn í sumar“ að mati Sunday Times

Dag­blaðið The Sunday Times segir Breta mega búast við því að geta ferð­ast til Íslands í sumar og skoðað landið án áreitis frá fjölda ann­arra ferða­manna.

Breskir ferðamenn hafa nú gott tækifæri til að skoða landið í friði í sumar, að mati Sunday Times.
Breskir ferða­menn hafa nú gott tæki­færi til að skoða landið í friði í sumar, að mati Sunday Times. Mynd: Bára Huld Beck

Geld­inga­da­la­gosið, ásamt fáum COVID-19 smitum hér­lendis og hæfi­legum sótt­vörnum á landa­mær­unum, gerir Ísland að álit­legum áfanga­stað fyrir breska ferða­menn þetta sum­arið, að mati blaðs­ins Sunday Times. Blaðið birti ítar­lega umfjöllun um Ísland í gær, en sam­kvæmt henni er senni­legt að komu­far­þegar frá land­inu þyrftu ekki að fara í sótt­kví í Bret­landi eftir 17. maí.

Ferðabanni vonandi aflétt í maí

Frá upp­hafi þessa árs hefur breska rík­is­stjórnin bannað fólki að fara frá landi að nauð­synja­lausu. Samkvæmt breska blað­inu The Independent munu þeir sem reyna að kom­ast til útlanda í frí þurfa að greiða sekt upp á 5 þús­und pund, en það jafn­gildir um 880 þús­und íslenskra króna.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag birti svo sam­göngu­ráðu­neyti Bret­lands áætlun um til­slak­anir á ferða­bann­inu á næstu vikum. Samkvæmt henni stendur til að taka upp lita­kóð­un­ar­kerfi á landa­mær­unum þann 17. maí næst­kom­andi, þar sem komu­far­þegar frá hættu­minni löndum þurfa ein­ungis að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi og þurfa ekki að fara í sótt­kví.

Í umfjöllun The Sunday Times er farið yfir sótt­varn­ar­að­gerðir á landa­mær­unum hér­lendis, þar sem bólu­settir far­þegar, auk þeirra sem hafa mótefni gegn veirunni mega sleppa við sótt­kví. Þar sem smit eru fá hér­lendis og 15 pró­sent lands­manna hafa nú þegar verið bólu­sett gegn veirunni segir blaðið að Ísland sé lík­legt til að enda á grænum lista í lita­kóð­un­ar­kerfi bresku rík­is­stjórn­ar­innar og þyrftu því komu­far­þegar frá land­inu ekki að fara í sótt­kví.

Dag­blaðið segir landið vera upp­fullt af nátt­úru­undrum og nefnir þar sér­stak­lega Bláa lónið og eld­gosið í Geld­inga­dölum. Einnig bætir blaðið við að ólík­legt sé að landið verði yfir­fullt af ferða­mönnum í sumar og sé því gullið tæki­færi til að skoða landið í friði þetta sum­arið.

300 þúsund farþegar frá Bretlandi

Samkvæmt tölum frá Ferða­mála­stofu var fjórði hver brott­far­arfar­þegi í Leifs­stöð í fyrra frá Bret­landseyjum, en alls komu rúm­lega 109 þús­und far­þegar þaðan. Árin 2016, 2017, 2018 og 2019 var fjöldi far­þega frá Bret­landi þó nokkuð stöð­ugur og nær 300 þús­undum, en það sam­svar­aði um 13 til 15 pró­sentum af heild­ar­fjölda far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl á þeim tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár