Bandaríkin setja Ísland á þriðja áhættustig af fjórum

Sótt­varna­stofnun Banda­ríkj­anna ræður nú óbólu­settum ferða­mönnum frá því að fara í ónauð­syn­legar ferðir til Íslands. Enn sem komið er bæt­ist Ísland þó ekki í flokk ríkja sem stofn­unin mælir gegn því að fólk ferð­ist til, bólu­sett eða óbólu­sett.

Um það bil helmingur þeirra ferðamanna sem hafa komið til landsins um Keflavíkurflugvöll undanfarna mánuði hafa verið Bandaríkjamenn.
Um það bil helm­ingur þeirra ferða­manna sem hafa komið til lands­ins um Kefla­vík­ur­flug­völl und­an­farna mán­uði hafa verið Banda­ríkja­menn. Mynd: Bára Huld Beck

Banda­ríska sótt­varna­stofn­unin CDC hefur upp­fært áhættu­mat sitt fyrir ferða­lög til Íslands upp á þriðja stig af fjórum, sem þýðir að Banda­ríkja­mönnum er ráð­lagt að tryggja að þeir séu bólu­settir ef þeir hyggja á ferða­lög til Íslands, en óbólu­settum er ráð­lagt frá því að ferð­ast til lands­ins ef erindið er ekki brýnt.

Ísland er ekki komið á þann stað í áhættu­mati CDC að sótt­varna­stofn­unin mæli alfarið gegn ferða­lögum til Íslands, óháð því hvort ferða­menn eru bólu­settir eða ekki.

Nokkrum Evr­ópu­ríkjum hefur í vik­unni verið bætt í þann hóp, en nú mæl­ast banda­rísk sótt­varna­yf­ir­völd gegn því að fólk ferð­ist til Andorra, Gíbraltar, Grikk­lands, Írlands og Möltu. Að auki hafa banda­rísk sótt­varna­yf­ir­völd mælst gegn ferða­lögum til Kýpur, Spánar, Portú­gals, Bret­lands og Hollands frá því fyrr í sumar.

Er smitum tók að fjölga á Íslandi og útlit varð fyrir að Ísland færi að detta inn á „rauða lista“ hvað varðar ferða­lög utan úr heimi og hingað lýstu tals­menn ferða­þjón­ust­unnar sem atvinnu­greinar yfir miklum áhyggjum af stöðu mála.

For­sæt­is­ráð­herra sagði sömu­leiðis eftir rík­is­stjórn­ar­fund á Egils­stöðum þar sem ákveðið var að herða sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands að ein af ástæð­unum fyrir því að rík­is­stjórnin hefði tekið ákvörðun um að grípa til tak­mark­ana væri að það væri mik­il­vægt að Ísland lenti ekki á rauðum lista hvað varðar ferða­lög hingað.

Ísraelar munu þurfa í sóttkví eftir Íslandsferð

Upp­færðar reglur taka gildi í Ísrael á mið­viku­dag í næstu viku, sem skikka komu­far­þega frá ákveðnum löndum í sótt­kví, óháð aldri og því hvort fólk er bólu­sett eða ekki. Ísland er á meðal þeirra ríkja sem munu bæt­ast við list­ann í næstu viku, sam­kvæmt frétt ísra­elska blaðs­ins Haaretz.

Farþegar sem fara frá Íslandi til Ísrael munu því þurfa að und­ir­gang­ast tvær skimanir með sjö daga sótt­kví á milli. Hið sama mun eiga við um far­þega sem koma frá Banda­ríkj­unum, Þýska­landi og fleiri ríkjum til við­bótar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár