Hvernig forðast ég smit?

Þú getur varið þig og aðra gegn smiti nýju kór­ónu­veirunnar með því að fylgja ein­földum ráðum.

Gömul vísa er aldrei of oft kveðin: Hand­þvottur er öflug vörn gegn smiti nú þegar far­aldur nýrrar kór­ónu­veiru geisar og gert er ráð fyrir að sam­komu­bann fleiri en hund­rað manna verði sett á frá og með 15. mars. Land­læknir hefur gefið út leið­bein­ingar sem fylgja hér að neðan.

[adspot]

  • Þvoðu hendur þínar reglu­lega með vatni og sápu, minnst 20 sek­úndur í hvert skipti.
  • Ef vatn og sápa eru utan seil­ingar er gott að nota hand­spritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslu­kort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurð­ar­húna. Á vef land­læknis eru góðar upp­lýs­ingar um hvernig gæta má var­úðar gegn sýk­ingum.
  • Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota oln­boga­bót­ina eða einnota klúta. Þannig kem­urðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.
  • Tak­mark­aðu náin sam­skipti við annað fólk, t.d. handa­bönd og faðm­lög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa, sem ekki fela í sér snert­ingu.
  • Reyndu að bera ekki hendur upp að and­lit­inu, sér­stak­lega augum, nefi og munni.
  • Þrífðu oftar fleti sem eru mikið not­aðir.
  • Ef þú ert eldri borg­ari eða með ákveðna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma er ráð­lagt að halda sig fjarri manna­mótum og fjölda­sam­komum.
  • Forðastu að umgang­ast fólk sem er með ein­kenni sem minna á flensu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár