Tugir nýrra starfa í netverslun: Krónan stefnir á heimsendingar innan skamms

Tugir nýrra starfs­manna hafa tekið til starfa hjá Nettó og Heim­kaupum vegna auk­innar eft­ir­spurnar í net­verslun. Krónan ætlar að opna snjall­verslun innan skamms og byrja að senda mat heim til fólks.

Nettó og Heimkaup hafa ráðið inn tugi nýrra starfsmanna til að mæta aukinni eftirspurn í netverslun og Krónan hyggur á opnun netverslunar innan skamms.
Nettó og Heimkaup hafa ráðið inn tugi nýrra starfs­manna til að mæta auk­inni eft­ir­spurn í net­verslun og Krónan hyggur á opnun net­versl­unar innan skamms. Mynd: Anton Brink

Nettó hefur bætt við sig tugum nýrra starfs­manna vegna mik­illar eft­ir­spurnar í net­verslun fyr­ir­tæk­is­ins og Heimkaup, sem einnig rekur net­verslun með mat­væli, hefur gert slíkt hið sama.

Krónan vinnur nú að því að svara þess­ari auknu eft­ir­spurn og stefnir að því að opna net­verslun eins fljótt og hægt er, en Bónus ætlar ekki inn á þennan markað, sam­kvæmt svörum for­svars­manna versl­an­anna við fyr­ir­spurnum Kjarnans.

Á sjötta tug nýrra starfs­manna hafa tekið til starfa hjá Nettó vegna mik­illar eft­ir­spurnar í net­verslun fyr­ir­tæk­is­ins. Þeirra á meðal eru tutt­ugu bíl­stjórar og fyr­ir­tækið Aha, sem sér um útkeyrslu fyrir Nettó, hefur keypt tíu nýja bíla, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Nettó.

Allt að tveggja sólarhringa bið

Gunnar Egill Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri versl­un­ar­sviðs Samkaupa, sem rekur Nettó og fleiri versl­anir, segir í til­kynn­ing­unni að við­skipta­vinir net­versl­un­ar­innar eigi hrós skilið fyrir að sýna skiln­ing á þessum óvissu­tímum, en stundum hafi tafir orðið of miklar, þar sem inn­viðir versl­un­ar­innar hafi ekki ráðið við álagið.

„Á hverjum degi koma nýjar áskor­anir og okkur hefur tek­ist að aðlaga verk­ferla okkar og skipu­lag að þessum breyttu aðstæðum. Eins og staðan er nú er allt að tveggja sóla­hringa bið eftir afgreiðslu hjá okkur en það er heldur stuttur tími sam­an­borið við Danmörku og England þar sem er allt að tveggja vikna bið eftir mat­vörum úr net­verslun,“ er haft eftir Gunnari í til­kynn­ing­unni, en hann hrósar starfs­mönnum Samkaupa fyrir sín störf á þessum álags­tímum.

Seldu meiri mat á einni viku en allan mánuðinn þar á undan

Guð­mundur Magnason, fram­kvæmda­stjóri Heim­kaupa, segir að fyr­ir­tækið hafi bætt við sig um 25 bíl­stjórum og 25 manns í vöru­húsi, allt í allt um fimm­tíu manns, frá því að álagið fór að aukast. Hann seg­ist gera ráð fyrir því vöxtur verði í net­verslun til fram­tíðar, heims­myndin sé breytt.

[adspot]

Fram­kvæmda­stjór­inn gerir þannig ráð fyrir að nokkur hluti þess­ara nýju starfs­manna geti unnið hjá fyr­ir­tæk­inu til fram­tíðar, en ekki bara tíma­bundið nú þegar far­ald­ur­inn gengur yfir.

„Ég þurfti meiri mat­vöru í síð­ustu viku en allan mán­uð­inn þar á undan,“ segir Guð­mundur, spurður um hversu mikil aukn­ingin hafi verið í mat­væla­sölu Heim­kaupa að und­an­förnu. Ennþá er hægt að fá vörur afhentar sam­dæg­urs.

„Ég er með svo rosa­lega gott fólk, ég er alveg hissa á því hvernig við erum að ná að halda þessu,“ segir Guð­mundur og segir blaða­manni að ef pöntun væri lögð inn um hádeg­is­bil í dag gæti hann ábyrgst að hún kæm­ist til skila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á milli kl. 17 og 19.

Krónan ætlar að setja snjallverslun í loftið sem fyrst

„Við erum að vinna dag og nótt,“ segir Gréta María Grét­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í sam­tali við Kjarnann, en fyr­ir­tækið hefur und­an­farnar tvær vikur verið að vinna að því að setja upp snjall­verslun á net­inu og í appi, þar sem fólk mun geta verslað mat­vöru og ýmist sótt hana eða fengið senda heim.

Fyr­ir­tækið hafði áætl­anir um að setja slíka verslun í loftið í sumar, en vinn­unni hefur verið flýtt, í ljósi aðstæðna. „Það er bara alveg á næstu dögum,“ segir Gréta María, spurð út í vænta tíma­setn­ingu á opnun net­versl­un­ar­innar, en starf­semin verður kynnt nánar þegar þar að kemur. 

Gréta seg­ist renna nokkuð blint í sjó­inn með áætl­anir um hversu mörgum starfs­mönnum fyr­ir­tækið þurfi að bæta við sig til þess að anna væntri eft­ir­spurn í net­verslun, en bæði þarf að ráða inn fólk til þess að tína saman vörur fyrir við­skipta­vini og bíl­stjóra til þess að keyra vör­urnar heim að dyrum, kjósi við­skipta­vinir það.

Bónus ætlar ekki í netverslun

Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónuss, segir að fyr­ir­tækið ætli sér ekki inn á net­versl­un­ar­mark­að­inn að svo stöddu. Rekstr­ar­módel fyr­ir­tæk­is­ins ein­fald­lega bjóði ekki upp á það.

„Það þarf ein­hver að borga fyrir þetta og okkar álagn­ing er það lág að hún ræður ekki við það,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann, en bætir við að ómögu­legt sé að spá fyrir um hvað fram­tíðin beri í skauti sér.

Leigubílstjórar byrjaðir að skutlast með mat

Fjöldi veit­inga­staða sem alla jafna bjóða ekki upp á heim­send­ingar eru nú byrj­aðir að senda mat heim að dyrum til fólks og bregð­ast þannig við sam­komu­banni og dvín­andi eft­ir­spurn.

Sem dæmi má nefna að Grandi Mathöll hefur opnað sam­eig­in­legan pönt­un­ar­vef fyrir alla veit­inga­stað­ina þar inn­an­húss og að veit­inga­staðir í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Gleðip­inna (Saffran, Ham­borga­fa­brikkan, Roadhouse o.fl.) eru komnir í sam­starf við leigu­bíla­stöð­ina Hreyfil um heim­send­ingar á mat.

„Leigu­bíl­stjórar, líkt og aðrir í þjóð­fé­lag­inu, hafa verið áhyggju­fullir yfir stöð­unni. Þetta sam­starf kom sér því afar vel fyrir okkur og fer kröft­ug­lega af stað,“ er haft eftir Haraldi Axel Gunn­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Hreyfils í til­kynn­ingu frá Gleðipinnum.

Pósturinn merkir mikla aukningu á netverslun almennt

Póst­ur­inn segir að 20 pró­sent aukn­ing hafi orðið á inn­lendri net­verslun almennt og sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi út í dag hefur eft­ir­spurn eftir heim­keyrslu og notkun póst­boxa hjá Póstinum auk­ist að und­an­förnu. Segir Póst­ur­inn að þessar leiðir hafi mikla kosti, enda lág­marki þær báðar útbreiðslu á kór­ónu­veirunni.

„Við erum strax farin að sjá tölu­verða aukn­ingu í net­verslun og búumst við að sjá jafn­vel enn meiri aukn­ingu á kom­andi vikum. Heim­keyrslan okkar er gríð­ar­lega öflug þjón­usta sem getur hjálpað mikið í því ástandi sem nú er í þjóð­fé­lag­inu. Við teljum að heim­keyrsla sé í lyk­il­hlut­verki nú þegar lands­menn verja meiri tíma heima og forð­ast fjöl­menni. Þá höfum við talað fyrir kostum Póstboxa áður en nú sem aldrei fyrr sýnir sig hve mik­il­væg þau eru í raun og veru. Með því að nýta sér þessa leið erum við að taka öll sam­skipti þar sem tvær mann­eskjur hitt­ast úr jöfn­unni og þar með lág­marka smit­hættu eins mikið og hægt er,“ er haft eftir Sesselíu Birg­is­dóttur, fram­kvæmda­stjóra þjón­ustu- og mark­aðs­sviðs Póstsins í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár