Sala í matvöruverslunum Haga dróst saman um 6,8 prósent milli ára

Hagar seldi vörur fyrir 6,6 millj­örðum minna á síð­asta rekstr­ar­ári en árið áður. Stærsta ástæðan er breytt umhverfi með til­komu Costco. Til stendur að kaupa Olís á 10,4 millj­arða. Stærstu eig­endur sátu hjá við atkvæða­greiðslu um starfs­kjara­stefnu.

Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins, er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni.
Bónus, stærsta versl­un­ar­keðja lands­ins, er krúnu­djá­snið í Haga­sam­stæð­unni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sala í mat­vöru­versl­unum Haga dróst saman um 6,8 pró­sent milli ára, magnið sem þær seldu minnk­aði um 3,3 pró­sent og við­skipta­vinum þeirra fækk­aði um 1,4 pró­sent. Alls minnk­aði vöru­sala félags­ins, sem er stærsti smá­sali á Íslandi, um 6,6 millj­arða króna og var 73,9 millj­arðar króna á síð­asta rekstr­ar­ári. Hún hefur ekki verið lægri frá því fyrir rekstr­ar­árið 2013/2014. Ef tekið er til­lit til aflagðrar starf­semi dróst salan um 4,5 pró­sent.

Þetta er meðal þess sem kom fram í kynn­ingu sem Finnur Árnason, for­stjóri Haga, hélt á aðal­fundi félags­ins sem fram fór á mið­viku­dag.

Rekstr­arár Haga er ann­ars konar en ann­arra félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Það stendur yfir frá 1. mars til lok febr­úar hvers árs. Í árs­reikn­ingi Haga, sem birtur var í maí, kom fram að rekstr­ar­hagn­aður félags­ins hafi dreg­ist saman úr sex millj­örðum króna á rekstr­ar­ár­inu 2016/2017 í 4,1 millj­arð króna á því sem nú er nýlokið. Hagnaður Haga nán­ast helm­ing­að­ist, fór úr fjórum millj­örðum króna í 2,4 millj­arða króna. Eig­in­fjár­staða félags­ins er mjög sterk, en eig­in­fjár­hlut­fallið er 61,1 pró­sent.

Costco áhrifin

Helstu ástæður þess að sam­dráttur varð í rekstr­inum eru nokkuð aug­ljósar. Sú sem mestu máli skipti var breytt rekstr­ar­um­hverfi eftir inn­komu Costco á íslenskan mat­vöru­markað í maí 2017. Í kjöl­far þeirrar opn­unar sendu Hagar frá sér tvær afkomu­við­var­anir vegna þess sölu­sam­dráttar sem áttu sér stað á fyrstu mán­uð­unum eftir að Costco hóf starf­semi. Samkvæmt könnun sem birt var í Við­skipta­blað­inu eiga 67 pró­sent Íslend­inga með­lima­kort í Costco, eða hafa átt slíkt. Og 85 pró­sent þeirra hafa end­ur­nýjað kortið eða ætla sér að gera það. Costco virð­ist því vera komið til að vera.

Hluta­bréf í Högum lækk­uðu mikið í kjöl­far inn­komu Costco á íslenskan markað, eða um 33,8 pró­sent á árinu 2017. Þau hafa hækkað umtals­vert það sem af er árinu 2018 þótt þau séu enn 15 pró­sent verð­minni en þau voru í maí 2017.

Ætla að kaupa Olís á 10,4 milljarða

Í kynn­ing­unni á aðal­fundi Haga voru einnig taldir til aðrir þættir sem orsaki afkom­una. Þar á meðal eru verð­hjöðnun, kostn­að­ar­hækk­anir þar sem launa­þáttur vegur mest, lok­anir versl­ana (Þeim fækk­aði úr 52 í 46 á rekstr­ar­ár­inu), tekju­tap vegna tíma­bund­inna lok­ana á versl­unum sem verið var að breyta og ein­skiptis­kostn­aður upp á 445 millj­ónir króna vegna leigu­skuld­bind­inga sem greiddar voru þegar ákveðið var að loka Hagkaup í Holta­görðum.

Ofan­greindar hag­ræð­ingar eru ekki einu við­brögðin sem Hagar hafa gripið til vegna eðl­is­breyt­inga á sam­keppn­isum­hverf­inu. Félagið reyndi að kaupa Lyfju en Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði þeim sam­runa sum­arið 2017. Í apríl sama ár til­kynntu Hagar um að félagið ætl­aði að kaupa Olís. Sam­keppn­is­eft­ir­litið and­mælti þeim sam­runa í skjali sem það sendi á Olís í lok jan­úar síð­ast­lið­inn en stjórn Haga sam­þykkti í kjöl­farið að ganga til sátta­við­ræðna við eft­ir­litið til úrlausnar þeim þáttum sem taldir eru raska sam­keppni. Því er gengið út frá því að Hagar klári kaupin. Í kynn­ing­unni kom fram að vænt kaup­verð sé 10,4 millj­arðar króna, sem er umtals­vert hærra en þeir 9,1 millj­arðar króna sem upp­haf­lega stóð til að greiða fyrir olíu­fé­lagið. Ástæðan er góð afkoma Olís á árinu 2017.

Gildi bókaði um starfskjarastefnu

Á aðal­fund­inum var sam­þykkt að hækka stjórn­ar­laun í Högum um tíu pró­sent. Stjórn­ar­for­maður félags­ins fær nú 660 þús­und krónur greiddar á mán­uði, vara­for­mað­ur­inn 495 þús­und krónur og aðrir stjórn­ar­menn 330 þús­und krónur.

Þá var ný starfs­kjara­stefna sam­þykkt en hún er óbreytt frá því sem áður var. Athygli vakti að Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi lagði fram sér­staka bókun vegna þessa og sat síðan hjá við afgreiðslu starfs­kjara­stefn­unnar ásamt þremur öðrum stórum líf­eyr­is­sjóðum sem eru á meðal helstu eig­enda Haga.

Í bókun Gildis segir m.a. að sam­kvæmt hlut­hafa­stefnu Gildis telji sjóð­ur­inn „rétt við ákvörðun launa for­stjóra að líta til innri þátta félags, launa­dreif­ingar innan þess og launa sem ætla má að for­stjóra bjóð­ist á þeim mark­aði sem félagið starfar á.[...]mik­il­vægt er í til­felli Haga hf. að stjórn félags­ins upp­lýsi nánar um það með hvaða hætti heild­ar­laun stjórn­enda eru mótuð og við hvaða sam­an­burð þau miða“.

Í bók­un­inni er því enn fremur beint til stjórnar að „sund­ur­liða fram­vegis greiðslur til stjórn­enda þannig að greiðslur sam­kvæmt árang­urstengdu launa­kerfi komi fram og að skýrsla um fram­kvæmd starfs­kjara­stefnu verði útbúin og hér eftir birt með góðum fyr­ir­vara fyrir aðal­fund félags­ins“.

Finnur Árnason, for­stjóri Haga, var með 70,5 millj­ónir króna í laun og hlunn­indi á síð­asta rekstr­ar­ári. Það eru tæp­lega 5,9 millj­ónir króna á mán­uði. Til við­bótar greiddi félagið 13,3 millj­óna króna fram­lag í líf­eyr­is­sjóð fyrir Finn. Sam­an­lagðar greiðslur Haga til Finns (laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur) lækk­uðu um 1,9 millj­ónir króna á milli rekstr­ar­ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matvöruverslun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár