Verðlagseftirlit ASÍ gerði athugasemdir við að Heimkaup segðist ódýrast

Athuga­semdir voru gerðar við að Heimkaup segð­ist ódýr­ast, en net­versl­unin var þó oft­ast með ódýr­ustu vör­una í nýj­ustu könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. Heimkaup seg­ist óvart hafa sent út drög að aug­lýs­inga­pósti með röngu orða­lagi.

Heimkaup var oftast með lægsta verðið í nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ, en verðlagseftirlitið gerði athugasemdir við tölvupóst þar sem vísað var í niðurstöðurnar.
Heimkaup var oft­ast með lægsta verðið í nýrri könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ, en verð­lags­eft­ir­litið gerði athuga­semdir við tölvu­póst þar sem vísað var í nið­ur­stöð­urnar. Mynd: Heimkaup

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ kom í gær athuga­semdum á fram­færi við vef­versl­un­ina Heimkaup, vegna aug­lýs­inga­pósts frá fyr­ir­tæk­inu þar fram kom að Heimkaup væru „ódýr­ust“. Í tölvu­póst­inum var fjallað um að Heimkaup hefði oft­ast verið með lægsta verðið í síð­ustu verð­lagskönnun verð­lags­eft­ir­lits­ins hvað mat­vöru og annað til heim­il­is­ins varðar.

„Í stuttu máli þá má ekki nýta verðkann­anir frá okkur til aug­lýs­inga með þeim hætti sem Heimkaup gerir þarna og ég er búin að hafa sam­band við þá vegna þess,“ segir Auður Alfa Ólafs­dóttir, verk­efna­stjóri verð­lags­eft­ir­lits ASÍ, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna aug­lýs­ing­ar­innar.

Aug­lýs­ing Heim­kaups barst til þeirra sem eru á póst­lista fyr­ir­tæk­is­ins í gær undir yfir­skrift­inni „Ódýrust sam­kvæmt verð­könnun ASÍ.“

Auður Alfa segir að verð­lags­eft­ir­lit ASÍ veiti leyfi fyrir því að nið­ur­stöður kann­ana þeirra séu nýttar í mark­aðs­legum til­gangi þegar fal­ast sé eftir slíku leyfi. Hins vegar skipti máli að „það séu ekki dregnar álykt­anir út frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar umfram það sem nið­ur­stöð­urnar fela í sér,“ en ljóst er að fyr­ir­sögn tölvu­pósts­ins frá Heimkaup gerði það.

Í texta inni í aug­lýs­inga­póst­inum sjálfum var hins vegar farið rétt með, en þar segir að í þess­ari verð­könnun ASÍ, sem fram­kvæmd var 25. mars, hafi Heimkaup oft­ast verið með lægsta verðið á mat­vöru og öðrum heim­il­is­vörum. Heimkaup var ódýr­ast hvað varðar 37 af þeim 112 vörum sem skoð­aðar voru í könn­un­inni, en Bónus kom næst og var 33 sinnum með ódýr­ustu vör­una.

Segja drög að tölvupósti óvart hafa farið út

Thelma Björk Wilson, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu- og not­enda­upp­lif­unar hjá Heimkaup, segir í svari til Kjarnans að mis­tök hafi verið gerð. Hún segir að orða­lagið hafi verið borið undir ASÍ, en síðan hafi óvart verið send drög að tölvu­pósti á við­skipta­vini, þar sem fram kom að Heimkaup væru ódýr­ust.

„Það er óná­kvæmt, því við vorum bara með flestar vörur á lægsta verði. Við lög­uðum það hjá okkur, strax og við átt­uðum okkur á því, enda var ekki mein­ingin að nota það orða­lag,“ segir Thelma Björk.

[adspot]

Eins og alltaf í könn­unum verð­lags­eft­ir­lits ASÍ var aðeins um beinan verð­sam­an­burð að ræða á hillu­verði. Ekki er lagt mat á gæði eða þjón­ustu sölu­að­ila.

Til þess að fá fría heim­send­ingu á vörum frá Heimkaup innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þarf að panta vörur fyrir 14.900 krónur, en tekið er 745 króna heim­send­ing­ar­gjald fyrir pant­anir yfir 9.900 krónum og pant­anir undir því verð­marki bera 1.490 króna heim­send­ing­ar­gjald, sam­kvæmt vef versl­un­ar­innar.

Að sama skapi þarf fólk ekki að gera sér ferð í búð­ina, þegar pantað er á net­inu og greitt fyrir heim­send­ingu. Net­verslun með mat­vöru hefur auk­ist mikið frá því að COVID-19 far­ald­ur­inn fór af stað fyrir rúmu ári síðan. Auk Heim­kaups bjóða Nettó og Krónan nú upp á mat­vöru í net­versl­unum.

Netverslun sigurvegarinn í faraldrinum?

Thelma Björk segir að vöxt­ur­inn hjá Heimkaup hvað mat­vöru varðar í far­aldr­inum hafi verið „með ólík­indum“ og að Heimkaup hafi „meira en tvö­faldað velt­una í mat­vöru frá síð­asta mán­uði - og það var fyrir sam­komu­tak­mark­anir stjórn­valda.“

Hún segir að í síð­asta mán­uði hafi Heimkaup byrjað að keyra vörur heim í klukku­tíma hólfum innan dags­ins og að svo virð­ist sem spurn sé eftir slíkri þjón­ustu.

„Við vitum ekki hvernig öðrum gengur, en það gæti allt eins verið að þeir væru líka að vaxa hratt,“ segir Thelma og bætir við að sig­ur­veg­ar­inn í far­aldr­inum sé ef til vill net­verslun, sem fleiri og fleiri séu að til­einka sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matvöruverslun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár