Segir eðlilegra að hlúa að grunnstoðum heldur en að örva hagkerfið

Aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka segir dýr­mætt svig­rúm til pen­inga­prent­unar hafa verið nýtt í hús­næð­is­mark­að­inn til fólks sem stendur betur en með­al­mað­ur­inn í stað þeirra sem þurfa meira á fjár­magni að halda í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kristrún Frostadóttir aðalhagfræðingur Kviku banka
Kristrún Frosta­dóttir aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka Mynd: Aðsend

Stór hluti pen­inga­magns­ins sem bæst hefur við í fjár­mála­kerf­inu ratar mest­megnis í hækk­andi eign­ar­verð á fast­eigna­mark­aði, sem hefur ekk­ert með nauð­syn­legan stuðn­ing að gera á núver­andi krísu­tímum, sam­kvæmt Kristrúnu Frosta­dóttur, aðal­hag­fræð­ingi Kviku banka. Að mati hennar væri eðli­legra fyrir hið opin­bera að hlúa að mannauði, fram­leiðslu­getu og atvinnustigi hag­kerf­is­ins heldur en að örva hag­kerfið með skuld­setn­ingu í einka­geir­anum.

Í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar skrifar Kristrún um aukn­ingu pen­inga í umferð í kjöl­far vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans á síð­ustu mán­uðum, en sam­kvæmt henni hafa nær 300 millj­arðar króna bæst við pen­inga­magnið á þessum tíma. Nánast öllu þessu fjár­magni hefur verið miðlað í gegnum banka­kerfið, sem hefur aukið útlán sín tölu­vert.

Meiri­hluti þess­arar aukn­ingar hefur runnið til heim­ila, á meðan ein­ungis átta pró­sent þeirra hafa farið til fyr­ir­tækja. Samhliða því hafa skuldir heim­il­anna auk­ist um fjögur pró­sent á árinu árinu.

„Því sem ekki hefur verið velt upp í þessu sam­hengi er hvort við ættum að nýta rúm­lega 100 ma. kr. af nýjum pen­ingum til að veita út á hús­næð­is­mark­að­inn til fólks sem sam­kvæmt Fjár­mála­stöð­ug­leika­hefti Seðla­bank­ans stendur betur en með­al­mað­ur­inn í lána­safni bank­anna,“ skrifar Kristrún í grein­inni.

Munur á örvun og stuðningi

Samkvæmt Kristrúnu er mik­il­vægt að gera grein­ar­mun á örv­un­ar­að­gerðum hjá hinu opin­bera og stuðn­ingi. Þar sem núver­andi krísa sé ekki hefð­bundin hag­sveifla heldur afleið­ing þess að fyr­ir­tæki í ýmsum geirum hafi orðið fyrir tíma­bundnu tekju­falli sé hag­kerfið ekki mót­tæki­legt fyrir örvun núna. Mik­il­væg­ara sé að koma í veg fyrir rýrnun mannauðs og að efna­hags­reikn­ingar holist að innan út af tekju­stoppi í núver­andi ástandi.

Aukning hús­næð­is­skulda hefur hins vegar fyrst og fremst leitt til hækk­andi eigna­verðs á hús­næð­is­mark­aði. „Þetta hefur ekk­ert með nauð­syn­legan stuðn­ing að gera á núver­andi krísu­tímum,“ segir Kristrún. „Þetta er hel­ber örvun.“

Hætta á að stuðningur fari ekki til þeirra sem þurfa hann

Kristrún bætir einnig við að þó að neysla auk­ist vegna hærra eigna­verðs sé lík­legt að fjár­magnið sem bætt hefur verið við hag­kerfið skili sér ekki til þeirra sem þurfa á því að halda. Þeir sem orðið hafa fyrir tekju­falli í núver­andi kreppu séu þeir sem reka starf­semi sem felur ekki í sér snert­ingu, þar sem fólk ótt­ast að smit­ast af veirunni. Ekki er víst hvort örvunin muni skila sér í auknum við­skiptum til þeirra.

Hægt er að lesa grein Kristrúnar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár