Kaupmáttur ungra karlmanna hefur minnkað á síðustu áratugum

Á meðan heild­ar­laun fólks yfir fer­tugt hefur auk­ist mynd­ar­lega frá árinu 1994 mátti ekki greina neina aukn­ingu í kaup­mætti hjá körlum undir þrí­tugu, sam­kvæmt grein í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Karlar undir þrí­tugu höfðu ýmist lak­ari eða jafn­góð laun að raun­virði árið 2018, miðað við árið 1994. Á sama tíma jókst kaup­máttur fólks á aldr­inum 40-64 ára að jafn­aði um rúm­lega 2 pró­sent á ári. Þetta kemur fram í grein sem Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, skrifar í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Samkvæmt grein­inni er mik­ill munur á kaup­mátt­ar­aukn­ingu síð­ustu ára­tuga eftir ald­urs­hópum, þar sem kaup­máttur ungra hefur auk­ist mun minna en þeirra sem eldri eru. Þá hefur kaup­máttur kvenna auk­ist meira en karla, en Benedikt segir það skýr­ast af auk­inni atvinnu­þátt­töku kvenna, auk þess sem laun kvenna­stétta hafi lík­lega hækkað meira en ann­ara.

Að mati Bene­dikts gefur kaup­mátt­ar­aukn­ing karla á sama tíma þó betra spá­gildi um hækkun raun­launa í fram­tíð­inni, þar sem atvinnu­þátt­taka þeirra breytt­ist ekki mikið á milli 1994 og 2018. Samkvæmt henni má búast við stöðugri 1,5 pró­sent hækkun heild­ar­launa að raun­gildi fyrir fólk á aldr­inum 40-67 ára.

Kaup­mátt­ar­aukn­ing á meðal yngri karla var aftur á móti nokkuð minni, sem gæti gefið til kynna að ekki ætti að búast við jafn­háum raun­launa­hækk­unum í þeim ald­urs­hópum. Fyrir karla undir 27 ára aldri dróst kaup­mátt­ur­inn meira að segja saman á tíma­bil­inu og fyrir karla um þrí­tugt hélst hann nær óbreyttur.

Þó bætir Benedikt við að lak­ari staða karla fyrir þrí­tugt kunni að end­ur­spegla breyttan vinnu­markað, þar sem störfum í ferða­þjón­ust­unni, sem eru yfir­leitt í lægri launa­þrepum, fjölg­aði mikið á þessu tíma­bili.

Hægt er að lesa grein Bene­dikts í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár