Vill efla menntakerfið til að koma í veg fyrir starfamissi

Mörg störf sem hurfu í heims­far­aldr­inum munu ekki koma aftur vegna auk­innar sjálf­virkni­væð­ingar. Hag­fræð­ingur hjá Við­skipta­ráði segir mennta­kerfið leika lyk­il­hlut­verki í að lág­marka starfs­miss­inn vegna tækni­breyt­inga fram­tíðar.

Elísa Arna Hilmarsdóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði.
Elísa Arna Hilm­ars­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Við­skipta­ráði. Mynd: Aðsend

Fjölga ætti háskóla­nemum í vís­inda-, tækni-, verk­fræði- og stærð­fræði­greinum hér á landi og efla end­ur­menntun svo að mögu­legt sé að mæta auk­inni sjálf­virkni­væð­ingu starfa og bæta sam­keppn­is­hæfni á vinnu­mark­aðnum á næstu árum. Þetta skrifar Elísa Arna Hilm­ars­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Við­skipta­ráði, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Samkvæmt Elísu Örnu eru sterkar vís­bend­ingar um að efna­hags­þreng­ing­arnar í kjöl­far útbreiðslu far­sótt­ar­innar hafi leitt til var­an­legs brott­falls fjölda starfa um allan heim, sökum hrað­ari sjálf­virkni­væð­ingar. Hún segir störfin sem séu hvað mest ber­skjölduð fyrir sjálf­virkni­væð­ingu fela í sér mikla end­ur­tekn­ingu á ein­földum og fyr­ir­sjá­an­legum verk­efnum, en meiri­hluti þeirra sé unn­inn af ungu fólki og þeim sem hafa litla menntun. [adspot]

Búist er við því að enn fleiri störf muni verða sjálf­virkni­væð­ing­unni að bráð á næstu árum, en Elísa Arna bendir á að tæpur helm­ingur allra starfa hér­lendis geti horfið vegna hennar.

Fjölga STEM-menntuðum

„Á þessum umbrota­tímum, í hring­iðu fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og við lok heims­far­ald­urs með til­heyr­andi umróti, er nauð­syn­legt að marka skýra stefnu í atvinnu­líf­inu og hlúa að sam­keppn­is­hæfni vinnu­mark­að­ar­ins,“ bætir hún við. Þar segir hún að mennta­kerfið leiki lyk­il­hlut­verki í því að koma í veg fyrir töpuð störf með því að und­ir­búa fólk til að starfa í atvinnu­greinum sem eru ekki ber­skjald­aðar fyrir sjálf­virkni­væð­ingu.

Elísa Arna segir einnig að tölu­vert mis­ræmi sé á milli mennt­unar fólks og starfa þeirra hér­lendis, í sam­an­burði við önnur Norð­ur­lönd og með­al­talið í Evrópu. Leiða megi líkur að því að þetta ósam­ræmi skýrist að hluta til vegna þess hversu fáir nem­endur eru í vís­inda-, tækni-, verk­fræði- og stærð­fræði­greinum (e. STEM).

Hærra hlut­fall STEM-mennt­aðra hér­lendis gæti aukið sam­keppn­is­hæfni Íslands og tryggt vinnu­mark­að­inn fyrir þeim tækni­breyt­ingum sem er fyr­ir­séð að eigi sér stað á næstu árum. Einnig væri hægt að hlúa betur að þeim sem eiga á hættu að missa störf sín með auknum tæki­færum til sí- og end­ur­mennt­unar, en Elísa Arna segir þá leið hafa verið farna í Danmörku.

Hægt er að lesa grein Elísu Örnu í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár