Ábyrgðin á verðstöðugleika ekki einungis í höndum launþega

Það er ekki rétt að fela laun­þegum einum ábyrgð á þróun verð­bólgu og almenns stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu, segir Gylfi Zoega. Vinnu­veit­endur og stjórn­völd ættu einnig að leggja sitt af mörkum.

Það þarf meira en bara framlag launþega til þess að tryggja frið á vinnumarkað, samkvæmt Gylfa.
Það þarf meira en bara fram­lag laun­þega til þess að tryggja frið á vinnu­markað, sam­kvæmt Gylfa. Mynd: Bára Huld Beck

Friður á vinnu­mark­aði felur ekki ein­ungis í sér að launa­fólk gæti hófs í launa­kröfum heldur einnig að vinnu­veit­endur gæti hófs í kröfum um hagnað og arð­semi fjár­magns. Þetta segir Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Gylfi segir að útlit sé fyrir að mikil óvissa verði um efna­hags­mál innan lands sem utan á þessu ári. Hér á landi er óvissan mikil um gengi krón­unnar, einkum vegna þess að áhrif far­sótt­ar­innar og stríðs­ins í Úkraínu á ferða­þjón­ust­una eru óljós. Einnig er óvissa um verð á olíu og annarri hrá­vöru vegna stríðs­ins, auk þess sem ekki er vitað hvernig verð­lag á inn­fluttum vörum verður vegna verð­bólgu í nágranna­löndum.

Í slíkum aðstæðum gæti reynst erfitt að ljúka kjara­samn­ingum í haust, en þótt ekki hafi enn heyrst mik­ill sátta­tónn frá aðilum vinnu­mark­aðar þá sé brýn ástæða til þess að bæði laun­þegar og vinnu­veit­endur séyni var­færni í kröfu­gerð og kom­ist að sam­komu­lagi án þess að til mik­illa átaka komi.

Launþegar stilli launakröfum í hóf

Samkvæmt Gylfa ættu laun­þegar að taka til­lit til þess að mis­mikið svig­rúm sé fyrir launa­hækk­anir á milli atvinnu­greina, þar sem þær hafa kom­ist mis­vel úr far­aldr­inum. Því teld­ist það varla vera skyn­sam­legt að hækka öll laun óháð því hvort fyr­ir­tæki geti staðið undir slíkri kjara­bót.

Einnig ætti ekki að bregð­ast við inn­flutta verð­bólgu frá nágranna­löndum með sjálf­krafa launa­hækk­unum inn­an­lands, þar sem slíkt myndi ein­ungis bjóða upp á víxl­verkun launa og verð­bólgu. Því væri þáttur laun­þega í því að koma á sátt að stilla kaup­kröfum í hóf.

Fyrirtæki stilli arðsemiskröfum í hóf

Aftur á móti segir Gylfi að vinnu­veit­endur þurfi einnig að leggja sitt af mörkum til að tryggja frið á vinnu­mark­aði, það sé ekki rétt að fela laun­þegum einum ábyrgð á þróun verð­bólgu og almenns stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu.

Þá ættu inn­lend fyr­ir­tæki, sem mörg hver hagn­ast vegna fákeppn­is­stöðu á mark­aði, að draga úr kröfum sínum um hagnað og arð­semi eigin fjár. Sem dæmi nefnir Gylfi sér­stak­lega banka­kerfið, sem skil­uðu miklum hagn­aði á síð­asta ári og við­halda vaxta­mun í sam­ræmi við eigin kröfu um arð­semi.

Stjórnvöld geta líka hjálpað

Til við­bótar við þátt vinnu­veit­enda og laun­þega segir Gylfi að stjórn­völd gætu einnig lagt sitt af mörkum til að tryggja bætt lífs­kjör án þess að verð­stöð­ug­leik­anum sé ógnað. Ein leið til þess væri að auka fram­boð á ódýru íbúð­ar­hús­næði, sem myndi lækka verð almennt á minni eignum.

Til skamms tíma væri svo hægt að lækka álögur á elds­neyti, svo hækkun á olíu­verði á heims­mark­aði hafi minni áhrif á inn­lent elds­neyt­is­verð. Samkvæmt Gylfa er það ekki sjálf­sagt að styrj­öld í Evrópu sem hækkar heims­mark­aðs­verð á olíu auki tekjur rík­is­sjóðs.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár