Segir nýja lotu í hinum alþjóðlega peningaleik hafna

Innrás Rúss­lands í Úkraínu og við­brögðin við henni hafa breytt alþjóð­lega fjár­mála­kerf­inu, segir doktor í fjár­málum. Hann segir helstu von­ina í fjár­mála­stríð­inu á milli aust­urs og vest­urs liggja í þéttu sam­starfi Evr­ópu­landa.

Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum.
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjár­málum. Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Engin sögu­leg for­dæmi eru fyrir efna­hags­að­gerðum sem settar hafa verið á Rússland vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Aðgerð­irnar eru ný teg­und af efna­hags­legum hern­aði og hafa leitt til mik­illa breyt­inga í alþjóð­lega fjár­mála­kerf­inu. Þetta skrifar Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjár­málum, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Samkvæmt Ásgeiri Brynjari eru aðgerð­irnar ein­stakar vegna hraða þeirra og sam­taka­máttar ríkj­anna sem beita þeim. Þessi við­brögð, til við­bótar við sjálf­vilj­ugar aðgerðir alþjóð­legra fyr­ir­tækja sem hafa flúið Rússland með hverjum deg­inum sem líður, eru að hans mati heims­sögu­legur við­burður.

Hann bætir við að aðgerð­irnar, sem heims­byggðin hefur ráð­ist í til að reyna að kremja Rússland efna­hags­lega, séu líkar stríðs­að­gerðum að því leyt­inu til að þær bitna á sak­lausum almenn­ingi í land­inu. Einnig verði almenn­ingur um allan heim fyrir barð­inu á afleið­ingum aðgerð­anna, þar sem verð á ýmsum hrá­vörum hefur hækkað tölu­vert vegna þeirra.

Vegna þess­ara afleið­inga segir Ásgeir að nauð­syn­legt verði að styðja við bæði úkra­ínskan og rúss­neskan efna­hag að stríð­inu loknu, fari svo að Rússland verði lýð­ræð­is­ríki og hætti við inn­rás­ina, en sam­kvæmt honum mun þurfa ígildi Marshall-aðstoð­ar­innar til að end­ur­reisa hag­kerfi beggja ríkj­anna.

Önnur fórn­ar­lömb efna­hags­að­gerð­anna eru rúss­neskir ólíg­arkar, sem urðu ríkir með því að sölsa undir sig auð­lindir rúss­nesku þjóð­ar­innar eftir fall Sov­ét­ríkj­anna. Að mati Ásgeirs áttu Vest­ur­lönd sinn þátt í auðgun þeirra með því að hvetja Rússland til að for­gangs­raða mark­aðsum­bætur umfram stjórn­ar­fars­legar umbætur á sínum tíma.

Ásgeir segir nýja lotu í hinum alþjóð­lega pen­inga­leik vera hafna með fryst­ingu á eignum ólíg­ar­kanna um allan heim, sem áhuga­vert sé að fylgj­ast með. Mögulega verði spilin stokkuð upp á nýtt, þótt það sé einnig yfir­vof­andi hætta á að þeir sem svindli mest græði áfram mest. Samkvæmt honum liggur helsta vonin í fjár­mála­stríð­inu í þéttu sam­starfi Evr­ópu­ríkja, sem sé drifið áfram af vilj­anum til að stöðva stríð.

Hægt er að lesa grein Ásgeirs Brynjars í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár