Tæknifyrirtækin allsráðandi á First North-markaðnum

Fjölmörg fyr­ir­tæki sem eru í örum vexti ein­blína á tækni­þróun með ein­hverjum hætti fóru í frumút­boð á hluta­bréfa­markað í fyrra á Norð­ur­löndum. Baldur Thorlacius hjá Nasdaq Iceland fer yfir stöð­una í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland.
Baldur Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland. Mynd: Nasdaq Iceland

Tækni­þróun er það ofurafl sem flest vaxt­ar­fyr­ir­tæki sem skráðu sig á First North- hluta­bréfa­mark­að­inn í fyrra gera út á, en auk þess eru fyr­ir­tæki í líf­tækni, heil­brigð­is­vís­indum og umhverf­is­málum áber­andi. Þetta segir Baldur Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Ár útboða

Í grein­inni fer Baldur yfir frumút­boð fyr­ir­tækja sem skráðu sig á First North vaxt­ar­mark­að­inn í kaup­höllum Norð­ur­land­anna í fyrra. Samkvæmt honum voru þau alls 136, en til við­bótar skráði 31 þeirra sig á markað án útboða. Hann segir að metár hafi verið í frumút­boðum á Norð­ur­löndum og í Banda­ríkj­unum, þar sem áhugi fjár­festa var mik­ill og aðstæður til útboða þóttu almennt góðar.

Baldur flokkar fyr­ir­tækin sem fóru í frumút­boð eftir svoköll­uðum ofuröflum (e. megatrends), en það eru straumar og stefnur sem móta og gjör­bylta sam­fé­lag­inu okkar. Ofuröflin sem hann til­greinir eru fimm tals­ins: Færsla á efna­hags­legu valdi, þétt­býl­is­myndun, lofts­lags­breyt­ingar, breyt­ingar í lýð­fræði og tækni­þróun.

Lang­flest fyr­ir­tækj­anna, eða 81 pró­sent þeirra, gerðu út á tækni­þróun með einum eða öðrum hætti. Í öðru sæti er svo lýð­fræði og sam­fé­lags­legar breyt­ingar, en 22 pró­sent fyr­ri­tækj­anna virð­ast leggja áherslu á þann lið. Í þessum flokki eru fyr­ir­tæki sem startfa á sviði heilsu­tækni, auk ann­arra sem sinna þjón­ustu við aldr­aða.

Í þriðja sætið eru umhverf­is­mál, en sá mála­flokkur er hluti af kjarna­starf­semi fimmt­ungs fyr­ir­tækj­anna sem fóru í frumút­boð í fyrra. Minna er um fyr­ir­tæki sem gera út á þétt­ingu byggðar og færslu á efn­hags­legu valdi, en sam­an­lagt leggja um átta pró­sent fyr­ir­tækj­anna áherslu á þá liði.

„Þegar ég horfi til fram­tíðar í gegnum óvís­inda­legu nor­rænu frumút­boðs­gler­augun mín sé ég að tæknin er alls­ráð­andi,“ segir Baldur í grein­inni sinni. „Þetta kemur auð­vitað ekki á óvart. Fyr­ir­tæki í líf­tækni og öðrum heil­brigð­is­vís­indum eru orðin meira áber­andi í hópi stærstu og öfl­ug­ustu fyr­ir­tækja Norð­ur­land­anna og umhverf­is­málin eru orðin risa­vax­inn iðn­aður.“

Hann bætir við að tím­inn muni leiða í ljós hvort þessar áherslur mark­að­ar­ins hafi verið réttar, en mögu­lega séu þarna ein­hver tæki­færi sem mark­að­ur­inn sé að missa af. Slíkt verði hins vegar ein­ungis útkljáð á meðal frum­kvöðla og fjár­festa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár