Efnahagslegar refsiaðgerðir ekki beitt vopn

For­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar HÍ segir að refsi­að­gerðir vest­rænna ríkja muni senni­lega ekki hafa mikil áhrif á stefnu ráða­manna í Rúss­landi einar og sér. Þegar fram líða stundir muni Rússar geta aðlag­ast aðgerð­unum og fundið sér nýja mark­aði.

Refsi­að­gerðir gegn Rúss­landi vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu munu senni­lega skipta litlu máli fyrir gang stríðs­ins, þar sem venju­lega dregur úr biti slíkra aðgerða ef þeim er beitt lengi. Þetta segir Sigurður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Samkvæmt Sigurði hefur æ oftar verið gripið til við­skipta­þving­ana á síð­ustu eftir lok seinni heims­styrj­ald­ar­innar, enda séu efna­hags­legar refsi­að­gerðir oft ákjós­an­legri en hern­aður í huga flestra. Fyrst um sinn stund­uðu einkum Banda­ríkja­menn slíkar aðgerðir gegn öðrum þjóðum, en þegar leið að alda­mótum voru Sam­ein­uðu þjóð­irnar og Evr­ópu­sam­bandið einnig farin að beita þeim.

Sigurður bendir líka á sam­an­tekt um 200 refsi­að­gerðir sem var beitt á síð­ustu öld, en sam­kvæmt honum hafði meiri­hluti þeirra engin áhrif á stefnu landa sem þær bein­ast gegn. Árang­ur­inn væri þeim mun minni sem meira væri í húfi, en þegar aðgerðum er beint að stríðs­rekstri voru ein­ungis 20 pró­sent líkur á að þær hefðu áhrif.

Einnig bendir Sigurður á að mesti kraft­ur­inn fari jafnan úr refsi­að­gerðum eftir eitt til tvö ár. Þá hafi löndin sem refsað er oft­ast fundið nýja við­skipta­vini í stað þeirra sem standa fyrir aðgerð­unum.

„Vestræn ríki grípa núna til víð­tæk­ari refs­inga en áður,“ segir Sigurður. „ Þær valda meiri óþæg­indum fyrst um sinn, en óþæg­indin minnka með tím­anum og Rússar munu senni­lega þola þau,“ bætir hann við.

Samkvæmt honum dregur það úr biti aðgerð­anna að fjöl­margar þjóðir taka ekki þátt í þeim, og því geti Rússar fundið sé nýja mark­aði. Ekki virð­ist hafa komið til tals að Mið-Evr­ópu­þjóðir hætti að kaupa olíu og gas af Rússum og því muni núver­andi refsi­að­gerðir vest­rænna ríkja senni­lega ekki hafa mikil áhrif á stefnu ráða­manna í Rúss­landi.

Hægt er að lesa grein Sigurðar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár