Útgjaldaaukning til Landspítalans að miklu leyti vegna launahækkana

Gylfi Zoega segir að ef til­lit sé tekið launa­hækk­ana þá hafi fjár­fram­lög hins opin­bera til Land­spít­al­ans ekki auk­ist jafn­mikið og þörfin fyrir sjúkra­hús­þjón­ustu á síð­ustu árum.

Færa má rök fyrir því að Land­spít­al­ann skorti fjár­magn, þrátt fyrir að fjár­fram­lög til hans hafi hækkað tölu­vert á síð­ustu árum. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor í HÍ, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Í grein­inni sýnir Gylfi ýmsar leiðir til að mæla þróun opin­berra útgjalda til Land­spít­al­ans síð­ustu 20 árin. Ein þeirra leiða er að setja fjár­fram­lögin á fast verð­lag með vísi­tölu neyslu­verðs, en með því fæst virði útgjald­anna mældur í vöru og þjón­ustu á hverju ári fyrir sig. Einnig væri hægt að festa verð­lagið með launa­vísi­töl­unni, en þannig feng­ist virði útgjald­anna til Land­spít­al­ans mælt í fjölda starfs­manna sem hægt væri að ráða.

Með sam­settri vísi­tölu úr bæði verð­hækk­unum og launa­hækk­unum mælir Gylfi útgjalda­aukn­ingu rík­is­sjóðs og ber svo hana saman við fjár­þörf­ina fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu. Þessi fjár­þörf hefur einnig auk­ist á sama tíma, meðal ann­ars vegna fólks­fjölg­unar og öldr­unar þjóð­ar­innar.

Aukin þörf á heilbrigðisþjónustu

Samkvæmt útreikn­ingum Gylfa hefur rekstr­ar­fram­lög rík­is­sjóðs auk­ist tölu­vert á síð­ustu 20 árum, en sú aukn­ing virð­ist þó aðal­lega vera vegna launa­hækk­ana í sam­fé­lag­inu. Ef tekið er til­lit til þess­ara launa­hækk­ana hafa útgjöld hins opin­bera í raun minnkað miðað við fjár­þörf­ina á heil­brigð­is­þjón­ustu á síð­ustu árum.

Með þessu segir Gylfi að bæði stjórn­mála­menn og stjórn­endur Land­spít­al­ans hafi nokkuð til síns máls í sínum mál­flutn­ingi á síð­ustu vikum. Fjár­fram­lög til Land­spít­al­ans hafi vissu­lega auk­ist , en þar sem aukn­ingin sé ekki í takti við launa­þróun og meiri þörf fyrir sjúkra­hús­þjón­ustu geti stjórn­endur kvartað undan skorti á fjár­mögnun með til­heyr­andi erf­ið­leikum í starfs­manna­haldi.

„Eftir stendur að mik­il­vægt er að fjár­magn sé notað á skyn­sam­legan hátt innan heil­brigð­is­kerf­is­ins,“ skrifar Gylfi. „Rekstur þess er flók­inn og hags­munir fara ekki alltaf saman. Þeir sem veita þjón­ust­una vita meira en þeir sem þiggja hana og þriðji aðili, þ.e.a.s. rík­is­sjóður, greiðir að miklu leyti fyrir hana.”

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár