„Það er tími til að velja hvar í þessu nýja landslagi stórvelda Ísland verður“

Gylfi Zoega segir Ísland þurfi að hámarka kosti og lág­marka kostnað þess að vera sjálf­stætt ríki. Samkvæmt honum er það gert innan NATO og innri mark­aðar Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hags­munum Íslands, sem þarf að reiða sig á alþjóða­sam­vinnu vegna smæðar sinnar, er best borgið með aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og í nánu sam­starfi við lýð­ræð­is­ríki Evrópu. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kostir og gallar við smæð Íslands

Í grein­inni sýnir Gylfi fram á kosti þess og galla við að vera smá­ríki út frá hag­fræði­legum kenn­ingum. Ábatinn sé sá að íbúar séu yfir­leitt sam­leitn­ari, sem geri lýð­ræð­is­lega ákvörð­una­töku auð­veld­ari. Því til stuðn­ings nefnir hann smá­ríki Norð­ur­landa, þar sem jafnan er auð­veld­ara að ná sátt um nið­ur­stöður um ráð­stöfun skatt­tekna og upp­bygg­ingu vel­ferð­ar­kerf­is­ins.

Hins vegar fylgi smæð­inni einnig kostn­aður, sem kemur í veg fyrir að Norð­ur­löndin sundrist í enn smærri ein­ingar og fylki Banda­ríkj­anna lýsi yfir sjálf­stæði. Dæmi um slíkan kostnað eru ýmis almanna­gæði sem hag­kvæmara er að hafa í stórum ríkjum, líkt og land­varnir og gjald­mið­ill.

Gylfi segir að nauð­syn­legt sé að hafa þessa kosti og galla til hlið­sjónar þegar stjórn­völd Íslands eigi að hámarka vel­ferð lands­ins. Að hans mati er það gert með því að njóta sam­eig­in­legra varna NATO-ríkj­anna og sam­eig­in­legan markað Evr­ópu­sam­bands­ins.

ESB mikilvægara fyrir Ísland en áður

Samkvæmt Gylfa hefur mik­il­vægi Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir Ísland auk­ist til muna á síð­ustu árum, eftir því sem alþjóða­væð­ingu hefur farið aftur og efna­hags­leg tengsl á milli aust­urs og vest­urs hafa minnkað. Samhliða því mun innri mark­aður aðild­ar­ríkja sam­bands­ins skipta meira máli fyrir íslenskan útflutn­ing, en einnig mun land­fræði­leg lega Íslands skipta miklu máli fyrir Evr­ópu­ríki, sem munu auka land­varnir sínar og hern­að­ar­mátt til að geta varist Rússum.

Gylfi segir Evr­ópu­sam­bandið þegar hafa sannað mik­il­vægi sitt fyrir inn­rás Rússa inn í Úkraínu, með þróun og dreif­ingu bólu­efna gegn kór­ónu­veirunni. Íslend­ingar nutu góðs af þessu fyr­ir­komu­lagi, sem tryggði öllum ríkjum innan sam­tak­anna, smáum sem stórum, jafnan rétt að bólu­efn­unum.

Hann bætir því einnig við að fyrri hug­myndir Íslands um að hér gæti risið alþjóð­leg fjár­mála­mið­stöð sem ekki nyti þeirra sam­gæða sem fel­ast í traustri mynt, fjár­mála­eft­ir­liti og sterkum seðla­banka, hafi reynst byggðar á sandi. Sömu­leiðis byggj­ast hug­myndir um að gefa Evr­ópu­sam­starf upp á bát­inn og bjóða Kína vel­komið á sama sandi.

„Það er tími til að velja hvar í þessu nýja lands­lagi stór­velda Ísland verður,“ skrifar Gylfi. „Vonandi verður það á meðal lýð­ræð­is­ríkja Evrópu.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár