Góðar horfur í útflutningi í ár

Aðal­hag­fræð­ingur Seðla­banka Íslands segir ýmis­legt benda til þess að útflutn­ingur og einka­neysla muni aukast tölu­vert í ár, en að útflutn­ings­horf­urnar á næsta ári hafi versnað frá því í vor.

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.
Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­banka Íslands. Mynd: Aðsend/Seðlabankinn

Líklegt er að útflutn­ingur verði meiri í ár heldur en búist var við í vor, auk þess sem einka­neysla mun aukast hratt. Hins vegar gætu lak­ari horfur í ferða­þjón­ustu og áætlun um minni þorskafla skapað bakslag í útflutn­ingi á næsta ári. Þetta skrifar Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­banka Íslands í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út á föstu­dag­inn.

Í grein sinni fer Þórarinn yfir stöðu og horfur í efna­hags­málum hér­lendis og dregur hann saman helstu nið­ur­stöður úr síð­asta hefti Pen­inga­mála, sem kom út í lok ágúst. Samkvæmt þeim hafa inn­lendar efna­hags­horfur batnað á síð­ustu mán­uðum, en þar vegur þungt örari fjölgun ferða­manna í sumar en gert var ráð fyrir.

Hagstæð skilyrði í ár en verri horfur á næsta ári

Þórarinn segir að ferða­menn hafi verið fleiri í sumar heldur en gert hafði verið ráð fyrir, en bætir þó við að talið sé að fjölgun smita og staða Íslands á rauðum lista hjá sótt­varn­ar­stofnun Evrópu dragi heldur úr fjölgun þeirra þegar líða tekur á haustið. Þó býst Seðla­bank­inn við að 680 þús­und ferða­menn komi til lands­ins í ár, sem er meira en í fyrra.

Til við­bótar við aukna virkni í ferða­þjón­ust­unni nefnir Þórarinn að útlit sé fyrir tölu­vert meiri útflutn­ing sjáv­ar­af­urða í ár, vegna hag­stæðrar loðnu­ver­tíðar. Einnig eru bættar horfur fyrir útflutn­ing kís­il­járns og eld­is­fisks, auk þess sem álverð hefur hækkað mikið og við­snún­ingur hefur orðið í verði á sjáv­ar­af­urðum. Hins vegar býst bank­inn við minni útflutn­ingi á næsta ári en hann gerði í vor, meðal ann­ars vegna lak­ari horfa í ferða­þjón­ustu og áætlun um minni þorskafla.

Samkvæmt Þórarni eru heim­ili og fyr­ir­tæki nú orðin fær­ari en áður í að halda efna­hags­starf­semi sinni gang­andi sam­hliða sótt­varn­ar­að­gerðum. Sökum þess­arar auk­innar aðlög­un­ar­hæfni og minna íþyngj­andi aðgerðum er útlit fyrir kröft­ugan bata í einka­neyslu í ár. Horfur eru á að neyslan auk­ist um rúm fjögur pró­sent á árinu, en búist er svo við enn meiri vexti á næstu tveimur árum.

Slakinn breytist í spennu á næsta ári

Samhliða auk­inni einka­neyslu og útflutn­ingi segir Þórarinn að mæl­ingar Seðla­bank­ans sýni skýrt minnk­andi slaka í þjóð­ar­bú­skapnum þessa stund­ina. Hann bendir einnig á sum­ar­könnun Gallup á meðal 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins, en sam­kvæmt henni vilja tæp 40 pró­sent fyr­ir­tækja fjölga starfs­fólki á meðan aðeins 8 pró­sent þeirra vilja fækka því. Sömu­leiðis sýnir fyr­ir­tækja­könnun Hag­stof­unnar að lausum störfum og fyr­ir­tækjum sem búa við skort á starfs­fólki hafi fjölgað mikið, en sam­kvæmt honum er bat­inn mestur í ferða­þjón­ustu, verslun og bygg­inga­starf­semi.

Hins vegar segir Þórarinn að slak­inn sé ekki horf­inn úr hag­kerf­inu, enn séu fram­leiðslu­þættir van­nýttir. Þó telur hann að fram­leiðsluslak­inn sem nú er til staðar muni breyt­ast í spennu í lok næsta árs.

Hægt er að lesa grein Þórarins í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár