Vill samvinnu á vinnumarkaði til að viðhalda verðstöðugleika

Gylfi Zoega segir COVID-krepp­unni nú vera lokið, en að helsta mark­mið hag­stjórnar væri nú að halda verð­bólg­unni í skefjum. Til þess segir hann að gott sam­spil þurfi á milli Seðla­bank­ans, rík­is­stjórnar og aðila vinnu­mark­að­ar­ins.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Nauð­syn­legt er að aðilar á vinnu­mark­aðnum vinnu svo að verð­bólgan valdi ekki skaða og krefj­ist ekki meiri fórna í fram­tíð­inni í formi hærri vaxta. Þetta segir Gylfi Zoega, sem er hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands og situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Samkvæmt Gylfa er krepp­unni sem fylgdi COVID-19 heims­far­aldr­inum lokið hér á landi, þar sem atvinnu­leysi er orðið það sama og það var í árs­byrjun árið 2020. Töpuð störf vegna far­sótt­ar­innar séu að fullu end­ur­heimt þrátt fyrir að ferða­þjón­ustan hafi ekki enn náð fyrri styrk, en aðrar greinar hafi fyllt í skarðið eins og ger­ist í mark­aðs­hag­kerfum.

Verðbólgan vegna lægri vaxta og hærri launa

Samhliða betri efna­hags­horfum hafa verð­bólgu­horfur hins vegar versnað. Gylfi segir verð­bólg­una einkum stafa af auk­inni eft­ir­spurn inn­an­lands og að erlendar verð­hækk­anir á hrá­vörum ekki hafa eins mikil áhrif hér og í öðrum Evr­ópu­löndum. Stærstu liðir í hækkun neyslu­verðs­vísi­töl­unnar séu hús­næð­islið­ur­inn og almenn þjón­usta, en Gylfi telur þá báða end­ur­spegla inn­lendar launa­hækk­anir.

Gylfi bætir þó við að hækkun fast­eigna­verðs megi rekja til ýmissa þátta en segir samt að aukn­ing í kaup­mætti launa á síð­ustu tveimur árum hafi aukið eft­ir­spurn eftir hús­næði. Sömu­leiðis segir hann að vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans hafi haft mikil áhrif, þar sem eft­ir­spurn eykst á hús­næð­is­mark­aði þegar vextir á íbúða­lánum lækka.

Hins vegar telur Gylfi það ekki vera rétt að fullu að segja að hús­næð­is­verð sé hátt vegna skorts á fram­boði á fast­eigna­mark­aðnum. Hann segir verð­hækk­an­irnar eiga að leiða fram­boðs­aukn­ingar, þar sem meira verður byggt vegna þess að fast­eigna­fram­kvæmdir eru orðnar arð­bær­ari.

Samkvæmt honum er spurn­ing hvort pen­inga­stefnan hafi örvað hag­kerfið of mikið á tímum COVID-19, hér á landi sem ann­ars staðar. En jafn­vel þótt svo hefði verið þá segir Gylfi að henni hafi tek­ist að minnka áhrif far­sótt­ar­innar á lífs­kjör og atvinnu.

Hægt að bæta lífskjör á annan hátt en með krónuhækkunum

„Horf­urnar eru bjartar fyrir þetta ár með væntum hag­vexti og bættum lífs­kjörum,“ segir Gylfi í grein­inni sinni. „En helsta mark­mið hag­stjórnar verður að vera að halda verð­bólgu í skefjum til þess að hún valdi ekki skaða og krefj­ist ekki meiri fórna í fram­tíð­inni,“ bætir hann við.

Til þess að ná þessu mark­miði segir Gylfi að mik­il­vægt sé að skapa gott sam­spil á milli Seðla­bank­ans, rík­is­stjórnar og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Einnig segir hann að hafa þurfi í huga að unnt sé að bæta lífs­kjör á „marg­vís­legan annan hátt en með hækkun krónu­launa.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár