Nýting lítilla flugvalla svar við samkeppnishamlandi umhverfi

Lággjalda­flug­fé­lög eiga erfitt með að fá pláss á stórum flug­völlum vegna núver­andi úthlut­un­ar­kerfis á afgreiðslu­tímum, segir hag­fræð­ingur í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Kerfið hefur neytt flug­fé­lögin til að róa á önnur mið og sækja á smærri flug­velli.

Núver­andi úthlut­un­ar­kerfi á afgreiðslu­tímum flug­valla í Evrópu er óskil­virkt og hamlar sam­keppni á milli flug­fé­laga. Lággjalda­flug­fé­lög hafa brugð­ist við þess­ari óskil­virkni með því að fljúga til smærri flug­valla, en það hefur gjör­breytt mark­aðnum fyrir flug. Þetta skrifar Þórunn Helga­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Compass Lexecon í Madríd, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kerfið hyglir eldri flugfélögum

Í grein sinni fer Þórunn yfir stýr­ingu evr­ópska flugnets­ins og hag­ræn áhrif þess, auk áhrif­anna sem inn­koma lággjalda­flug­fé­laga hefur haft á mark­að­inn á síð­ustu árum. Samkvæmt henni hefur kerfið sem er notað til að úthluta afgreiðslu­tímum á flug­völlum í álf­unni verið gagn­rýnt fyrir að hamla sam­keppni og nýt­ast einkum eldri flug­fé­lögum.[adspot]

Í kerf­inu búa eldri flug­fé­lög, sem fengu upp­haf­lega úthlutað afgreiðslu­tímum á mik­il­vægum tengi­höfnum líkt og Charles de Gaulle í París eða Heathrow í London, yfir miklum verð­mætum þar sem þau hafa for­gangs­rétt að sínum plássum. Þetta gerir lággjalda­flug­fé­lög­unum erfitt fyrir að ná afgreiðslu­tíma á stóru flug­völl­unum.

„Draugaflug“ eru samkeppnishamlandi

Réttur flug­fé­lag­anna til að halda sínum afgreiðslu­tíma hefur hins vegar verið í hættu vegna lít­illar eft­ir­spurnar eftir flug­ferðum í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins, en sam­kvæmt úthlut­un­ar­kerf­inu þurfa þau að nýta ákveðið hlut­fall af sínum lend­ingar- og brott­far­ar­tímum. Vegna þess hafa félögin tekið upp á því að fljúga tómum vélum á milli flug­valla í svoköll­uðum „drauga­flugum“.

[links]

„Slík flug fela aug­ljós­lega í sér mikla sóun og stang­ast á við umhverf­is­mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins að draga úr losun,“ segir Þórunn í grein­inni sinni. Einnig bendir hún á að athæfið sé sam­keppn­is­hamlandi og þar af leið­andi skað­legt neyt­endum, þar sem það kemur í veg fyrir að önnur flug­fé­lög geti nýtt sér afgreiðslu­tím­ana.

Betri sætanýting með litlum flugfélögum

Svar lággjalda­flug­fé­lag­anna við þessu sam­keppn­is­hamlandi úthlut­un­ar­kerfi er að lenda á svoköll­uðum auka­flug­völlum, líkt og Gatwick hjá London og Orly hjá París, þar sem lend­inga­gjöld eru almennt lægri og ólík­legra er að tafir verði á flugi vegna minni umferðar.

Þórunn segir inn­komu lággjalda­flug­fé­laga hafa gjör­breytt mark­aðnum fyrir flug með því að bjóða upp á tíðar ferðir á lágu verði sem byggir oft­ast á beinu flugi milli áfanga­staða. Sæta­nýt­ing er einnig betri hjá lággjalda­flug­fé­lögum, sem leiðir til þess að útblástur á hvern seldan sæt­iskíló­metra hefur dreg­ist saman.

Þó bætir Þórunn við að túlka þurfi þessar tölur var­lega þar sem flug­um­ferð hafi auk­ist vegna til­komu lággjalda­flug­fé­laga, en með meiri flug­um­ferð hefur losun á kolefn­is­út­blæstri sömu­leiðis auk­ist.

Áhugavert útspil hjá PLAY

Þórunn nefnir einnig áform PLAY um að hefja flug til New York í grein­inni sinni, þar sem flug­fé­lagið hyggst fljúga til auka­flug­vallar sem er í nokk­urri fjar­lægð frá borg­inni. Með því segir hún að félagið sé að feta í fót­spor ann­arra lággjalda­flug­fé­laga sem hafa gef­ist upp á bar­átt­unni um afgreiðslu­tíma á stærstu tengi­höfn­unum sem Icelandair hefur aðgang að.

„Það verður áhuga­vert að sjá hvernig far­þegar bregð­ast við þessu útspili,“ segir Þórunn og bætir við að lend­ing­ar­gjöld eigi að vera um 80 pró­sentum lægri á auka­flug­vell­inum heldur en á öðrum flug­völlum í New York. „Hvort það sé nóg til að vega upp á móti smærri mark­aði sem þeim býðst á auka­flug­velli þarf tím­inn að leiða í ljós,“ segir hún einnig.

Hægt er að lesa grein Þórunnar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár