Rifist um draugaflug

Flug­fé­lagið Luft­hansa seg­ist þurfa að fljúga tómum vélum á milli flug­valla til að halda sínum flug­véla­stæðum í vetur. Önnur flug­fé­lög eru þó and­víg slíkum flug­ferðum og segja þær bæði slæmar fyrir neyt­endur og umhverfið.

Fjöldi svokallaðra draugafluga, þar sem flugvélum er flogið án farþega, gæti verið floginn á næstu mánuðum.
Fjöldi svo­kall­aðra drauga­fluga, þar sem flug­vélum er flogið án far­þega, gæti verið flog­inn á næstu mán­uðum.

Mikill þrýst­ingur hefur verið á fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins vegna áforma evr­ópskra flug­fé­laga að stunda svokölluð drauga­flug með engum far­þegum á milli evr­ópskra flug­valla til að við­halda sínum stæðum í vetur.

Hvorki Icelandair né PLAY hafa þurft að grípa til þess­ara ráð­staf­ana, en Luft­hansa seg­ist vera til­neytt til að fljúga tómum vélum á milli evr­ópskra flug­valla 18 þús­und sinnum í vetur vegna þessa. For­stjóri Ryanair sakar Luft­hansa um hræsni í umhverf­is­málum og hvetur Evr­ópu­sam­bandið til að breyta ekki reglum sínum um lág­marks­nýt­ingu á flug­vall­ar­stæðum.

Óþarfa flug til að halda lendingarrétti

Umræðan um drauga­flug hófst eftir að Carsten Spohr, for­stjóri Luft­hansa, til­kynnti áform flug­fé­lags­ins um tómar flug­ferðir til að við­halda stæðum sínum á evr­ópskum flug­völlum í des­em­ber í fyrra. Samkvæmt Spohr hefur félagið þurft að aflýsa 33 þús­und flugum í vetr­ar­á­ætl­un­inni sinni, eða um tíu pró­sentum af öllum flug­unum sínum.

Þessi dræma eft­ir­spurn hjá Luft­hansa getur haft langvar­andi áhrif á rekstur félags­ins, þar sem reglur Evr­ópu­sam­bands­ins kveða nú á um að flug­fé­lög þurfi að nýta að minnsta kosti helm­ing allra lend­ing­ar­tíma sem þeim hefur verið gef­inn til að við­halda sínum lend­ing­ar­rétti á flug­völl­unum. Luft­hansa hafi því ákveðið að grípa til þess ráðs að hefja drauga­flug með tómum vélum til þess að kom­ast í veg fyrir að þessi réttur skerð­ist.

Spohr kall­aði eftir meiri sveigj­an­leika í reglum Evr­ópu­sam­bands­ins til að koma í veg fyrir að slíkar flug­ferðir verði farnar. Samkvæmt honum ganga þær í ber­höggi við yfir­lýst mark­mið sam­bands­ins um að draga úr losun á næstu árum.

Tals­maður IATA, sem eru alþjóð­leg hags­muna­sam­tök flug­fé­laga, tekur í sama streng í við­tali við franska frétta­mið­il­inn Rfi. Þar segir hann að 50 pró­senta lág­marks­nýt­ing í vetur sé óraun­hæf fyrir evr­ópsk flug­fé­lög, sökum sam­drátt­ar­ins í flug­um­ferð vegna nýrrar bylgju heims­far­ald­urs­ins.

Sam­göngu­ráð­herra Belgíu, George Gilkinet, kall­aði sömu­leiðis eftir því að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins grípi fljótt til aðgerða og lækki lág­marks­nýt­ing­una. Einnig vill Gilkinet að und­an­þágu­heim­ildir séu veittar til flug­fé­laga frá þess­ari lág­marks­nýt­ingu fram eftir sumri, hð minnsta.

Lágmark til að viðhalda samkeppni

Evr­ópu­sam­bandið hefur nú þegar lækkað lág­marks­nýt­ingu á lend­ing­ar­tímum flug­fé­laga vegna far­ald­urs­ins, en áður en hann skall á þurftu flug­fé­lög að nýta 80 pró­sent allra lend­ing­ar­tíma sem þau fengu til að við­halda lend­ing­ar­rétt­inum á evr­ópskum flug­völlum. Stefnt er svo að því að hækka lág­markið í 64 pró­sent í sumar sam­hliða auk­inni flug­um­ferð um álf­una.

Yfir­maður sam­göngu­mála hjá Evr­ópu­sam­band­inu, Adina Valean, sagði að núver­andi reglur byðu nú þegar upp á mik­inn sveigj­an­leika svo að hægt sé að kom­ast í veg fyrir drauga­flug í við­tali við Financial Times. Einnig benti hún á að vís­bend­ingar væru uppi um að nýtt afbrigði veirunnar hefði ekki jafnslæm áhrif á flug­geir­ann og áður var talið, en flug­um­ferð þessa stund­ina er um 79 pró­sent af venju­legri umferð á sama árs­tíma.

Samkvæmt Valean eru reglur sam­bands­ins nauð­syn­legar til að vernda starf­semi flug­valla og kjör neyt­enda, þar sem þær við­halda sam­keppni á milli flug­fé­laga.

Ekki sama hljóð í Icelandair, PLAY og Ryanair

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans seg­ist Icelandair ekki hafa þurft að fljúga tómum flug­vélum á milli flug­valla til að við­halda lend­ing­ar­rétti sínum á evr­ópskum flug­völlum. Þar þakkar flug­fé­lagið sér­stak­lega ákvörðun Evr­ópu­sam­bands­ins um að lækka lág­marks­nýt­ingu á lend­ing­ar­tímum niður í 50 pró­sent, auk tíma­bund­inna und­an­þága í löndum þar sem ferða­tak­mark­anir gilda.

„Það hefur verið mik­il­vægt að hafa þennan sveigj­an­leika og við höfum fulla trú á að komið verði áfram til móts við flug­fé­lög hvað þetta varðar ef far­ald­ur­inn dregst enn frekar á lang­inn,“ bætir flug­fé­lagið við.

PLAY seg­ist heldur ekki hafa haldið úti flugi til að tryggja sér lend­ing­ar­rétt á flug­völlum í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Samkvæmt flug­fé­lag­inu eru fela drauga­flugin svoköll­uðu ekki í sér góða þróun fyrir neyt­endur, þar sem þau koma í veg fyrir að önnur flug­fé­lög geti nýtt sér þessa lend­ing­ar­tíma og hamli því sam­keppni. Einnig bætir félagið við að ekki megi gleyma umhverf­is­þætt­inum, óþarfa flug­ferðir hafi mjög slæm áhrif á umhverfið.

Michael O’Leary, for­stjóri Ryanair var ómyrk­ari í máli um drauga­flug Luft­hansa í til­kynn­ingu sem hann sendi til fjöl­miðla fyrr í vik­unni. Þar hvatti hann fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins til að hunsa ummæli Carsten Spohr og sagði að lausnin við þessum tómu flug­ferðum væri ein­föld: Luft­hansa þyrfti ein­ungis að selja fleiri flug­miða.

„Luft­hansa elskar að gráta krókó­díl­stárum um umhverfið á meðan það gerir allt í sínu valdi til að halda í lend­ing­ar­rétt­inn sinn,“ bætti O’Leary við í til­kynn­ingu sinni. Einungis yrði hægt að auka eft­ir­spurn eftir flugi með lægra verði, en þannig yrði hægt að hraða við­spyrn­una í flug­geir­anum í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár