Hvert er Play eiginlega að fara að fljúga?

Fæstir nema hörð­ustu flugnördar höfðu heyrt um flug­völl­inn New York Stewart International er Play til­kynnti á þriðju­dag að þangað ætl­aði félagið að fljúga til að tengja New York við leiða­kerfi sitt. Þaðan fljúga ein­ungis tvö flug­fé­lög í dag.

Flugfélagið Play ætlar að hefja sig á loft til Stewart-flugvallar, sem er um hundrað kílómetrum frá Manhattan, í sumar og fram á haust.
Flug­fé­lagið Play ætlar að hefja sig á loft til Stewart-flug­vallar, sem er um hund­rað kíló­metrum frá Man­hattan, í sumar og fram á haust. Mynd: Play

New York Stewart International. Fæstir nema harðsvíruð­ustu flugnördar hér á landi höfðu heyrt þennan flug­völl nefndan er flug­fé­lagið Play til­kynnti fyrr í vik­unni að til stæði að hefja dag­legt áætl­un­ar­flug þangað frá Keflavík.

Um er að ræða lít­inn fyrr­ver­andi her­flug­völl við bakka Hudson-árinnar, tæpum hund­rað kíló­metrum frá Man­hattan, sem þjónar í dag ekki einu ein­asta milli­landa­flugi, en var á meðal áfanga­staða norska lággjalda­flug­fé­lag­ins Norwegian áður en félagið tók Boeing MAX-vélar sínar úr notkun.

Einungis tvö flug­fé­lög halda uppi áætl­un­ar­flugi í gegnum völl­inn í dag. Frontier Airlines flýgur þaðan til Orlando í Flórída fjórum sinnum í viku og þrisvar í viku til borg­anna Tampa og Fort Lauder­dale. Flug­fé­lagið Alleg­i­ant flýgur svo þaðan til fimm áfanga­staða í Flórída, Georgíu og Suður-Karólínu.

Play sagði frá því í til­kynn­ingu sinni um þessa nýju flug­leið að lend­ing­ar­gjöld á Stewart-flug­velli væru um 80 pró­sentum lægri, sem geri það að verkum að félagið geti boðið upp á lægstu far­gjöldin á milli New York og Evrópu.

Í til­kynn­ingu Play sagði að Stewart-flug­völlur væri í um 75 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Times Square á Man­hattan. Það stenst, ef engar umferð­ar­tafir eru á þjóð­veg­unum, sam­kvæmt útreikn­ingum á ferða­tíma í Google Maps. Þar má þó einnig sjá að búast má við því að ferðin á milli flug­vallar og borgar taki nokkuð lengri tíma á álags­tímum.

Flug­vélar Play munu fara frá Stewart-flug­velli áleiðis til Kefla­víkur kl. 18:45. Ef fólk ætlar sér að vera komið á flug­völl­inn tveimur tímum fyrir flug, eða kl. 16:45, segir Google að reikna megi með því að ferðin frá Man­hattan taki mögu­lega allt að tveimur tímum.

Samkvæmt áætlun Play munu flug­vélar félags­ins lenda á Stewart-flug­velli kl. 17:35. Ef gert er ráð fyrir því að hægt sé að halda af stað frá flug­vell­inum kl. 18:30 mun ferða­lagið til Times Square taka á bil­inu 75-120 mín­útur, sam­kvæmt útreikn­ingum Google.

Sérstök rútu­þjón­usta kemur til með að ferja far­þega Play á milli flug­vall­ar­ins og New York og munu mið­arnir kosta 20 Banda­ríkja­dali fyrir full­orðna. Samkvæmt til­kynn­ingu Play verður það ódýrasta leiðin til þess að fara á milli borg­ar­innar og flug­vall­ar­ins, en einnig er bent á að hægt sé að taka bíl á leigu og finna leigu­bíla og lest sem fer til borg­ar­innar.

Til sam­an­burðar tekur það rétt innan við klukku­stund að kom­ast frá bæði Newark-flug­velli og JFK að Times Square í New York með almenn­ings­sam­göngum frá þeim flug­völlum. Í til­kynn­ingu Play er þess þó getið að á þeim flug­völlum sé afgreiðslu­tími í vega­bréfa­skoðun og tösku­af­hend­ingu lengri en á Stewart-flug­velli.

Play reiknar með mestri umferð til Dublin

Fjallað var um vænt­an­lega komu Play til Stewart-flug­vallar í stað­ar­miðl­inum Spectrum News á þriðju­dag­inn. Í frétt mið­ils­ins segir frá því að eig­endur flug­vall­ar­ins, sem eru hafn­ar­yf­ir­völd í New York, séu að reyna að koma flug­vell­inum aftur af stað eftir tíma­bil lág­deyðu. Þar er nýlega búið að byggja sér­staka flug­stöð fyrir alþjóða­flug.

[adspot]

Spectrum News ræddi við nokkuð mæddan rútu­bíl­stjóra á gal­tómum flug­vell­inum sem virð­ist von­góður um að Play færi honum aukin við­skipti, en fram kemur í frétt­inni að vegna COVID-19 far­ald­urs­ins hafi bæði American og JetBlue hætt flugi til Stewart-flug­vallar.

Í frétt­inni er einnig haft eftir Birgi Jónssyni for­stjóra Play að félagið búist við því að frá Stewart-flug­velli verði teng­ing þaðan áfram til Dublin á Írlandi vin­sælasta flug­leiðin. Flug Norwegian um völl­inn var einmitt beint til Dublin.

Ferða­mála­stjóri Orange County seg­ist svo í frétt­inni sér­stak­lega spennt yfir því að koma Play gæti fjölgað gestum sem heim­sækja Legoland, sem er stað­sett í bænum Goshen, nærri flug­vell­inum.

Norskt flugfélag skoðar líka flug til Stewart

Ekki er víst að Play verði lengi eina flug­fé­lagið sem ætlar að nýta sér Stewart-flug­völl sem tengi­stöð við New York fyrir flug yfir Atl­ants­hafið.

Nýtt norskt lággjalda­flug­fé­lag, Norse Atlantic Airways, hefur einnig verið að skoða það að fljúga til Stewart-flug­vallar, beint frá Ósló.

Í áður­nefndri frétt Spectrum News kom fram að það væri þó ekki búið að klára neina samn­inga við norska flug­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár