„Miðstýrt hagkerfi“ HÍ sagt óhagkvæmt og koma í veg fyrir nýliðun

Hag­fræði­deild Háskóla Íslands er hætt komin, sam­kvæmt einum af kenn­urum deild­ar­innar. Hann segir stöð­una að mörgu leyti til­komna vegna fjár­veit­ing­ar­kerfis háskól­ans, sem sé mið­stýrt og óhag­kvæmt.

Fjár­veit­ing­ar­kerfi Háskóla Íslands felur í sér mikið óhag­ræði, sem end­ur­spegl­ast meðal ann­ars í hvötum til að lág­marka kennslu og miklum halla­rekstri hag­fræði­deildar skól­ans. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við skól­ann, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kaldhæðnisleg örlög hagfræðideildar

Gylfi er einn af sjö fast­ráðnum kenn­urum við hag­fræði­deild háskól­ans, en á und­an­förnum árum hafa þrír kenn­arar þar hætt störfum. Þar af hafa tveir þeirra farið á eft­ir­laun, en einn þeirra, Ásgeir Jónsson, er nú seðla­banka­stjóri. Samkvæmt Gylfa er fyr­ir­séð að tveir aðrir kenn­arar í deild­inni fari á eft­ir­laun á næstu tveimur til þremur árum.

„Þrátt fyrir að mörgu leyti ágætan árangur af starfi hag­fræði­deildar þá ber skugga á þegar kemur að fjár­hag deild­ar­innar,“ segir Gylfi og bætir við að það sé kald­hæðn­is­legt að sú deild sem fjallar um rekstur fyr­ir­tækja og kostn­aðar- og ábata­grein­ingu hafi verið rekin með halla flest árin frá því hún var fyrst sett á lagg­irnar.

Þessi halli gerir hag­fræði­deild­inni erfitt fyrir að bæta við sig starfs­mönnum, þrátt fyrir að kenn­urum hafi fækkað sem um munar. Vonir standa nú til að hægt verði að ráða einn kenn­ara í við­bót og verða þeir því sex í árs­lok 2025, sem er um helm­ings­fækkun frá því sem var fyrir nokkrum árum.

Ójöfn fjármögnun og skrýtnir hvatar

Samkvæmt Gylfa er hall­inn til­kom­inn vegna fjár­mögn­un­ar­kerfis Háskóla Íslands, sem sé byggt á svoköll­uðu deili­lík­ani. Líkanið úthlutar fasta fjár­hæð fyrir hvern útskrif­aðan nem­anda sem útskrif­ast innan hverrar deildar, en fjár­hæðin á hvern nem­anda er mis­mun­andi eftir deildum. Þannig fær hug- og félags­vís­inda­deild, ásamt stærð­fræði- og tölv­un­ar­fæði­deild minnsta pen­ing­inn fyrir hvern útskrif­aðan nem­anda, á meðan þau eru mun hærri í verk­fræði og raun­vís­indum, kennslu­fræðum og heil­brigð­is­vís­indum.

Til við­bótar við ójafna fjár­mögnun bendir Gylfi á að kerfið bjóði upp á ýmsa aðra skrýtna hvata, líkt og að kenn­arar hvetji ekki nem­endur sína til að taka nám­skeið í öðrum deildum eða að þeir leggi ofurá­herslu á rann­sóknir í stað kennslu en vilji þó fjölga nem­endum.

„Eins og í mið­stýrðum hag­kerfum felur mið­stýrt hag­kerfi Háskóla Íslands í sér margs konar óhag­ræði,“ bætir Gylfi við. „Það er offram­leiðsla á sumu og ekki nóg fram­leitt af öðru.“ Þá segir hann að hvati kenn­ara til að lág­marka kennslu gera þá dýr­ari og að hækk­andi kostn­aður þeirra komi í veg fyrir nýliðun.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár